Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Ford F150 F250 F350
This topic contains 17 replies, has 1 voice, and was last updated by Ágúst Þór Guðbergsson 18 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
31.12.2005 at 16:22 #196958
Sælir.
Veit einhver helstan mun á þessum 3 gerðum af nýlegum Ford pickup? Hver er td. þyngdarmunurinn, munur á drifum og hver hentar best til breytinga? Eru þeir allir fánlegir með dísel?Áramótakveðjur,
Jökull -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
31.12.2005 at 17:23 #537578
???
31.12.2005 at 17:29 #537580sæll
veldu 150 eða 250 fordinn
31.12.2005 at 17:40 #537582Mér finnst vanta rökstuðning. Láttu hann fylgja með.
Áramótakveðja
Ágúst
31.12.2005 at 17:49 #537584350 bíllinn mesta burðinn og styrkleikann til breytinga? er náttúrulega aðeins þyngri fyrir vikið
31.12.2005 at 17:50 #537586mundi velja 150 bílinn
með bensín mótor hagkvæmastur í rekstri þarft ekki meira próf og ert löglegur á 90 km
og sjálfsagt eyðslan svipuð og disilinn og vetrar vandamál úr sögunni sem hefur hrjáð disilinn
þetta er mín skoðun
áramótarkveðjur
01.01.2006 at 00:38 #537588Er ekki nýrri 150 bílarnir einfaldlega allt allt aðrir bílar en 250 og uppúr? Diesel bara fáanlegt í 250 og uppúr. 150 bíllinn er töluvert minni og rennilegri en hin monsterin.
kv
Rúnar
01.01.2006 at 10:51 #537590
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég ath einu sinni hver munurinn var á 250 vs 350, minnir það hafi verið einungis verið sterkari grind í 350 og númeri stærri afturhásing, Dana 90 vs 80 í 250 ef það er rétt munað hjá mér. 350 bíllinn fæst líka á tvöföldu að aftan en ekki 250, að öðru leyti eru þetta sömu bílarnir.
150 er bara minni bíll og svipar lítið til 250/350.
http://www.fordf150.net/specs/05sd_specs.pdf
01.01.2006 at 13:56 #537592F150 er ekki mikið minni bíll en hinir þó hann virðist vera það.
Afturhásingin í 250/350 er Ford 10.5" og framhásingin Dana 60 Reverse. Eini gallinn við þessar hásingarnar eru hjóllegurnar sem eru heldur veikar.
Ég held að burðurinn í 350 breyti engu, er það ekki bara mismunandi fjöðrun sem gerir það og sama grindin undir báðum? Finnst það a.m.k. líklegast…
02.01.2006 at 10:40 #537594…er stærsti munurinn á 150 annars vegar og 250/350 hinsvegar sá, að 150 bíllinn er á klafafjöðrun að framan, en hinir á röri. Munurinn á 250 og 350 er svo fyrst og fremst burðar- og dráttargeta, 350 bíllinn er með sterkari grind, öflugri fjaðrir og drifbúnað. Nú, svo er ekki hægt að fá 150 bílinn með Power Stroke diesel vélinni, heldur með að mig minnir fernskonar, mismunandi bensínvélum, einni 6 cyl. og þremur 8 cyl. En 150 bíllinn er anski skemmtilegt ökutæki, enda meðal mest seldu bifreiðagerða þar vestra allavega.
kv.
02.01.2006 at 13:47 #537596Einu sinni var það þannig að það var sama hús á 150-250-350 (og GM/Dodge 1500-2500-3500) mismunurinn lá undirvagninum og þar með burðargetu, dráttarhæfni,bremsum og svo framvegis. Síðan var hægt að fá allar gerðir í mismunandi lengdum á húsi og palli, veit ekki hvort þetta hefur breyst á síðari árum.
02.01.2006 at 15:43 #537598Sæll,
ég er nýbúinn að kynna mér þessi mál og keypti síðan F-150, þetta er of langt mál að telja upp hér, ég veit ekki hvernið þú hyggst nota bílinn og hverju þú ert að fiska eftir.
Þú mátt hringja í mig í síma 695 1854 og ég skal segja þér það sem ég veit.Kveðja
Einar Gylfason
04.01.2006 at 17:20 #537600Takk félagar, og þér Einar fyrir að bjóða mér símtal! Mér finnst þó skemmtilegra að fá þessar upplýsingar hér á spjallinu, þannig nýtast þær fleirum.
Veit einhver þyngd þessara bíla? Er hægt að setja 15" felgur undir þessa bíla án þess að breyta bremsum? Ég á gamlan 12 ára gamlan Patrol á 38" dekkjum í dag og langar í endurnýjun. Gott væri að hafa möguleuka á pallhýsi fyrir sumarferðir á hálendinu! Hvað þarf ég td. stór dekk undir f250 til að fá sama flot og á Patrolnum?kv,
Jökull
04.01.2006 at 19:39 #537602Þetta er nokkuð spennandi þráður. Er einhver þarna úti sem á svona bíl almennilega breyttann, þá er ég að tala um 46" breytingu, sem gæti miðlað af reynslu sinni. Þeir sem hafa ferðast með svona bílum mættu gjarnan láta í sér heyra. Það væri gaman að heyra líka hvað breytingar kosta fyrir hin ýmsu stig. Endilega segið okkur frá. Ég er nefninlega að spá í svona bíl og þarf endilega að fá reynslusögur.
Kveðja:
Erlingur Harðar
04.01.2006 at 20:34 #537604Sælir.
Fann hér á vefnum:
https://old.f4x4.is/new/forum/?file=bila … ingar/5713og þennan:
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/defau … 32%2f24555
eða:
[img:gagqpefx]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/3732/24555.jpg[/img:gagqpefx]
05.01.2006 at 01:01 #537606Já 46" hljómar nokkuð vel en 49" betur í mörgum tilfellum. Hver er megin munurinn á breytingunni? Eru sömu hlutföll, er kanski allt það sama fyrir 46" og 49" nema e.t.v. meiri hækkun og meiri úrklipping? Þá er spurningun; er þetta verðskulduð viðbót. Kanski svolítið grand ef hægt væri að keyra með Camper á 46" á sumrin og pallhús og 49" á veturna!!!
Önnur spurning; hvar fæ ég Camper? Er ekki einhver íslenskur framleiðandi af svona húsum?Þórir, áttu ekki myndir af þínum bíl?
Fordáhugakveðja:
Erlingur Harðar
05.01.2006 at 01:32 #537608Formverk.is
Haffi H-1811
05.01.2006 at 13:32 #537610Sælir. Veit að Þorvaldur Apótekari keypti sér Camper í Þýskalandi á langann 8" HD350 í sumar Hann var búinn að spá mikið í þetta og það varð niðurstaðann því þeir voru úr trefjaplasti og miklu léttari en þessir frá USA. Því miður mann ég ekki hvað þeir heita en ef þú heimsækir hann í Drive-Inn apótekinu við Smáralind er hann örugglega til í að segja þér allt sem þú vilt.
Kveðja
Agust thor.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.