FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Flugeldar BJÖRGUNARSVEITANA

by Baldur Pálsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Flugeldar BJÖRGUNARSVEITANA

This topic contains 31 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Tómas Karl Bernhardsson Tómas Karl Bernhardsson 16 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 26.12.2008 at 15:25 #203412
    Profile photo of Baldur Pálsson
    Baldur Pálsson
    Participant

    Sælir félagar spá að minn jeppa karla og kerllingar að versla flugelda af réttum aðilum , jón jónsson og íþróttafélögin eru eitthvað lítið að aðstoða okkur ef eitthvað bjátar á á fjöllum!!!

    Vonir um Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gamla

    kv
    Baldur

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 31 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 26.12.2008 at 18:53 #635516
    Profile photo of Brynjólfur Árni Gunnarsson
    Brynjólfur Árni Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 10
    • Svör: 194

    Í framhaldi af þessu langar mig koma inn á eitt atriði þar sem þú nefnir íþróttarfélög, að ekki blekkjast á ÍR húsinu. Þar er Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur með flugeldamarkað.





    26.12.2008 at 19:21 #635518
    Profile photo of Þórður Ingi Bjarnason
    Þórður Ingi Bjarnason
    Member
    • Umræður: 13
    • Svör: 440

    Mér finnst að björgunarsveitir ættu að vera þeir einu sem fá leifi til að sleja flugelda. Þau íþróttafélög sem vilja selja flugelda ættu að gera það í samvinnu við björgunarsveitir.

    Það eru björgunarsveitir sem koma til bjargar oft við slæmar aðstæður.

    Ég starfa með björgunarsveit og mun kaupa flugelda af minni sveit.





    26.12.2008 at 21:41 #635520
    Profile photo of Ingi Björnsson
    Ingi Björnsson
    Participant
    • Umræður: 73
    • Svör: 1022

    Hér í hafnarfirði getur maður bæði styrkt íþróttafélögin og björgunarsveitina. Ég veit að td get ég keypt gjafamiða í hestamannafélaginu Sörla upp á td 1000 kr og rennur einhver prósenta af því til hestamannafélagsins og restin fær Björgunarsveitin. Held að FH og haukar séu með sama firikomulag.

    En ég versla samt beint af björgunarsveitinni. og hvet alla til þess sama.





    27.12.2008 at 03:23 #635522
    Profile photo of Auðunn J. G. Karlsson
    Auðunn J. G. Karlsson
    Participant
    • Umræður: 18
    • Svör: 106

    Mér finst að björgunasveitirnar eigi að hafa einka rétt á flugelda innfluttningi og einginn annar þetta er láng stærsta fjáröflunarleiðin þeirra og veitir ekki mörgum þeirra af auronum til að hafa þann búnað sem fylgir björgun á okkar íslandi því við getum alltaf stólað á björgun frá þeim hvar á landinu sem við erum !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!





    27.12.2008 at 10:03 #635524
    Profile photo of Lárus Elíasson
    Lárus Elíasson
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 408

    Sumar þessara bóðsuga farnar að færa sig uppá skaftið. Innlegg í Fréttablaðinu í dag og umbúðir og pakkar á íslensku,

    Þeir fara örugglega ekki uppúr sófanum ef eitthvað bjátar á hjá þér.

    l.





    27.12.2008 at 19:40 #635526
    Profile photo of Snorri Ingimarsson
    Snorri Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 68
    • Svör: 971

    Hvet alla til að kaupa flugelda af björgunarsveitununum frekar en öðrum. Framlag okkar skilar sér beint til baka í auknu öryggi. Enginn veit fyrirfram hvenær við þurfum á hjálp þeirra að halda.

    Snorri
    R16





    29.12.2008 at 20:33 #635528
    Profile photo of Atli Karl Ingimarsson
    Atli Karl Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 39

    Til að halda þessum þræði ferskum…
    Veitir ekki af að hamra á þessu þar sem æ fleiri aðilar auglýsa flugelda sífellt meira og víðar.
    Atli
    R363





    29.12.2008 at 21:27 #635530
    Profile photo of Baldvin Zarioh
    Baldvin Zarioh
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 218

    takk fyrir að benda á að salan á ÍR heimilinu er á vegum björgunarsveitanna, ég var búin að plana ferð í önnur hverfi (ég er nýr í seljahverfinu). Ég var samt hálf skúffaður yfir því að þeir eiga engar innibombur þetta árið, mér var reyndar bent á kynbombuna, en ég held að sé ekki alveg sem ég þarf fyrir mína þrjá stráka 10 ára og yngri ;). Það eina sem mér finnst vanta hjá þeim er að hafa söfnunarbauka, ég t.d. kaupi bara innibombur og stjörnuljós af því að ég fæ þær stóru annarsstaðar frá en vil gjarnan styrkja þetta starf meira. Einu "innisprengjurnar" sem þeir áttu þegar ég kom í dag voru hurðarsprengjur og ég keypti 20 pakka en þeir kostuðu aðeins 500 kall.





    29.12.2008 at 23:19 #635532
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    í sambandi við frétt á forsíðu um vildarkjör hjá Flubbunum ? hver eru vildarkjörin ?
    Kv Lella sem ætlar að versla flugelda þar sem þeir eru ódýrastir þetta árið





    29.12.2008 at 23:36 #635534
    Profile photo of Halldór V. Hreinsson
    Halldór V. Hreinsson
    Participant
    • Umræður: 3
    • Svör: 48

    Lella, ætli það fari ekki eftir sjónarmiði…

    Ég á allavega ekki von á því að Gullborg, ódýrir flugeldar, bomba.is eða fleiri sæki þig í sprungu ef þú ert óheppin. Sem dæmi voru það 2 björgunarsveitarmenn sem sigu niður á Hofsjökli.

    Hvort þú fáir verðgildi 10% minna af flugeldum held ég að skipti ekki öllu máli, rámar meira að segja í auglýsingu þar sem menn auglýstu rakettu með 40% afslætti þannig að hún kostaði 1990 en kostaði hjá björgunarsveitunum 2090.

    kv
    Dóri





    29.12.2008 at 23:48 #635536
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Þar sem ég á ekki jeppa og er ekki á leiðinni á fjöll og á ekki trampólín þá reikna ég ekki með að þurfa á aðstoð björgunnarsveita að halda………
    kv Lella





    29.12.2008 at 23:53 #635538
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Víst Lella, þú gætir lent undir stafla af Setrum og hver á að leita að þér og grafa þig upp.





    29.12.2008 at 23:54 #635540
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    ætli það séu ekki meiri líkur á að vera með alla rétta í Víkingalottói heldur en verða undir stafla af sterum.
    ég bara spyr ?
    Kv Lella





    29.12.2008 at 23:57 #635542
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    eru hvorutveggja stórhættulegt í of stórum skömmtum :-)





    30.12.2008 at 00:43 #635544
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    var að spá afhverju þessi umræða kemur upp fyrir hver einustu áramót og það sé dauðadómur að versla þetta sprengjudót annarstaðar en af Björgunnarsveitunum en eru þeir ekki líka að selja jólatré? er allt í lagi að kaupa þau í Blómavali eða af Skógræktarfélugum?
    bara svona smá spekúleringar
    Kv Lella





    30.12.2008 at 00:56 #635546
    Profile photo of Hafþór Atli Hallmundsson
    Hafþór Atli Hallmundsson
    Participant
    • Umræður: 24
    • Svör: 810

    Þetta er ekki spurning um hvað sé bannað eða neitt í þá áttina. Það segir sig sjálft að þeir sem eru að selja á eigin vegum eru einfaldlega að þessu til að græða og öllum er illa við þá sem vilja og geta grætt á annara manna tapi og óhamingju.
    (Því hvað eru þessi sprengjukaup annað en að kveikja í peningunum og hver gerir það glaður?)
    En aftur á móti ef menn, konur og börn ætla á annað borð að fara út í þessar aðgerðir þá held ég nú að peningunum sé margfalt betur varið í eitthvað gagnlegt eins og hjá björgunarsveitunum og engum öðrum.
    Reyndar var einn maður sem var að selja flugelda á eigin vegum en hann sagðist bara "vera að fjármagna eigin fíkn á flugeldum". Þetta var enginn annar en Örna Árnarson.
    Svo er það ANSI mikil einföldun að segja að það komi sér vel að hafa þessar sveitir til að bjarga sér á fjöllum, þegar tekið er mið við það að þær bjarga öllu og öllum andskotanum (afsakið orðbragðið) hvort sem er á láði eða legi og nánast sama hvert veðrið er. Hver veit nema að annað hvort foreldrið þitt Lella lendi í því að tínast einhver staðar eða keyra út í á. Hver þarf þá að koma að leita eða draga þau upp úr ánni?
    Ég bara spyr.
    Haffi





    30.12.2008 at 01:03 #635548
    Profile photo of Brynjólfur Árni Gunnarsson
    Brynjólfur Árni Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 10
    • Svör: 194

    Hehe, ég er einn af þeim sem stend vaktina við söluborðið í ÍR heimilin, og ég man eftir þér :)
    Ég get sagt þér það að við fengum í hús innibombur sem eru eins og kampavíns flaska. En meira er nú ekki úrvalið eins og er af inni dótinu heldur en bara hurðasprengjur og kampavínsflöskubombur. En annars eru fjölskyldu pakkarnir með fullt af inni dóti líka, og eigum við þá alveg til.

    En ég þakka fyrir ábendinguna með söfnunarbaukinn, ég skal koma þessu til skila til þeirra sem eru yfir þessu.





    30.12.2008 at 01:04 #635550
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    lífið er eitt stórt EF
    kv Lella





    30.12.2008 at 09:16 #635552
    Profile photo of Þórður Ingi Bjarnason
    Þórður Ingi Bjarnason
    Member
    • Umræður: 13
    • Svör: 440

    það er ekki bara á fjöllum sem við björgunarsveitgarmenn förum til að bjarga fólki. Útköll hafa stóraukist í þettbýli og á Höfuðborgarsvæðinu var 60 % aukning á útköllum, 122% aukning á útköllum sem flokkast sem verðmætabjörgun og er óverðurstjón stæðst þar. http://www.landsbjorg.is/
    Svo þeir sem halda að þeir þurfi ekki að styrkja björgunarsveitir þar sem þeir fara aldrei á fjöll er rugl því einginn veit hvenær næsta útkall kemu né hver það er sem lendir í háska.





    30.12.2008 at 11:31 #635554
    Profile photo of Snorri Ingimarsson
    Snorri Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 68
    • Svör: 971

    13. desember á síðasta ári kom dáldið rok í Reykjavík. Undir morgun fór þakkantur að fjúka hjá okkur og við fengum aðstoð hjá Hjálparsveit Skáta í Reykjavík við að hemja kantinn.

    Það þarf ekki að eiga jeppa til að geta þurft á aðstöð björgunarsvetiar að halda. Fjölmörgum er líka til dæmis bjargað á Hellisheiðinni á fólksbílum á hverju ári.

    Það er mikið öryggi fólgið í því fyrir alla að hafa öflugar björgunarsveitir. Enginn veit hver þarf næstur á aðstoð þeirra að halda, þó að líkurnar séu vissulega meiri hjá ferðamönnum en öðrum.

    Ég tel því að þeim fjármunum sem é eyði í flugelda sé best fyrir komið hjá björgunarsveitunum.

    Snorri
    R16





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 31 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.