Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Fjórhjól
This topic contains 17 replies, has 1 voice, and was last updated by Gunnar Páll Ólafsson 16 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
17.05.2008 at 22:42 #202449
Veir einhver eikkvað um fjórhjólin sem http://www.bmvehf.is er að selja, er eikkvað varið í þetta?
Verðið á þeim er of gott til að geta verið satt -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
18.05.2008 at 02:37 #623064
veistu hvaða díll er á minni 4×4 týpunni?? þ,a,s 400cc???
annars prufaði ég í gær 300cc 4×4 hjól af lítt þekktu nafni (sem ég er meirasegja búinn að gleyma) hefur amk sama mælaborð og þessi og ég var alveg mjög sáttur með það hjól, ég held að það séu mikið að koma af nýjum nöfnum á markaðinn en fólk jafnvel þori kannski ekki alveg að vera fyrst að prufa og velja því þekktu merkin sem reynsla er á og borga milljón kall meira:S
18.05.2008 at 11:05 #623066Eitt eiga öll þessi kínahjól sameignlegt og það er það að þau eru öll með sömu 20-30 ára gömlu vélunum sem stóru merkin seldu þeim (aðalega Honda) og svo eru kínversk fjöðrunarkerfi ekki orðana virði.
Ef að það á að nota hjólið í eitthvað aksjón og ekki bara til að draga litlar kerrur við sumarbústaðinn þá marg borgar sig að fara í merkjavöru, það er ástæða fyrir því að þau kosta meira.
18.05.2008 at 21:17 #623068sælir, ég á fjórhjól sem er ekki þekkt en stendur sig vel og heitir kymco mxu 500cc og er ekkert að gera síðri hluti en honda suzuki eða hvað það heitir það er götuskráð, og er frá tævan og er búið að fá góða dóma í erlendum fjórhjóla tímaritum, það er vdo sem flytur inn og er ekki hægt að segja annað en að þjónustan sé mjög góð,fjöðrunin er mjög skemmtileg þó það sé heill öxull að aftan
kv Heiðar U-119
18.05.2008 at 21:27 #623070á bmv þetta virðast sæmilegustu hjól en hámarkshraði 70-75km finnst mér nú frekar lítið fyrir götuskráð faratæki
kv Heiðar U-119
18.05.2008 at 22:37 #623072Heiðar.
Hver er hámarkshraðinn á Kynmco hjólinu þínu? Hvað ertu búinn að eiga það lengi og hvaða viðhaldi hefurðu þurft að sinna á þeim tíma?
Kv.
Ásgeir
18.05.2008 at 22:59 #623074hjól eru mörg mjög góð miðað við verð, eins og t.d. kymko, catain og linhai koma bara þokkalega vel út en það er bara ekki hægt að setja þau í sama flokk og merkjavöruna.
kveða, Gunni
19.05.2008 at 20:22 #623076sæll ég keypti hjólið í júlí í fyrra og er búinn að keyra það um 2000km og minnst af því á götunni, lenti í því að brjóta á því plastið (yfirbygginguna) af klaufagangi og það er frammbretti (það er sambyggt bretti að framan) og það kostaði um 25000kall en ef það hefði verið honda eða sambærilegt þá er verðið ekki undir 50kallinum
kv Heiðar U-119
19.05.2008 at 22:51 #623078Ég á Trek í 6 línuni og er búinn að aka því ca 1500km frá því ég verslaði það síðasta sumar og hef ekki einusinni þurft að kaupa bensín á það. Þetta hjól er með 26" dekk ef ég man rétt og torkar gríðalega vel. ATH þetta hjól er með skriðgír (sem ég nota mikið upp brekkur).
20.05.2008 at 00:13 #623080Hverjir eru að selja þessi óþekktu hjól eins og t.d. kymko, catain og linhai og hvaða prís er á þeim?? eða eru menn kannski að flytja þetta bara inn sjálfir?? ég er einmitt að leita mér að götuskráanlegu 4×4 4hjóli og hef ekki 1,5Millu til að spreða í það (eins og can am) hvert ætti ég að leita ??? öll info vel þegin sem og ef einhver er að selja þá senda mér hér eða á davidkarl@btnet.is 😀
Kv Davíð K
20.05.2008 at 00:44 #623082í fljótu bragði man ég bara eftir bmvehf.is, VDO, bílaverkstæðið Holt (holt1.net), Vélaver, Mopar.is, cfmoto.is og svo var einhver hestaverslun uppá Bíldshöfða sem ég get enganveginn munað hvað heitir einhvern tímann með hjól en ég held að það hafi verið samskonar hjól og VDO eru að selja.
Kv.
Ásgeir
20.05.2008 at 00:48 #623084Sælir ef þú vilt spara milljónina þá er málið að kíkja á http://www.cfmoto.is
Þeir eru búnir að selja þónokkuð af þessum hjólum og á ég sjálfur eitt slíkt sem komið er í 1000 km. og er ég nokkuð sáttur. Hjólið er fjórhjóladrifið, með læsingu að framan og að sjálfsögðu læst að aftan. Er á hvítum númerum, löglegt fyrir farþega og ég giska á að verðið sé um 800 þúsund.
20.05.2008 at 10:50 #623086Er ekki ráð að tala líka um módelflug á þessari síðu? Og alveg er ég sannfærður um að margir limir klúbbsins hafa áhuga á mótorhjólum, fluguveiði, skyttiríi, frímerkjasöfnun og svo framvegis. Eigum við ekki að hafa það með á spjallinu? Eða hvað?
20.05.2008 at 17:53 #623088það er nú ekki eins og það sé brjáluð traffík á blessuðu spjallinu. Eftir allar þessar takmarkanir etc þá hefur þetta dalað mjög mikið finnst mér.
20.05.2008 at 18:15 #623090Honda 500cc 4×4 er á sambærilegan pening. Td. kostar 500 FM beinskipt 780þús og ef þú vilt það sjálfskipt þá er það 825þús. Munurinn er nánast enginn á merkjavöruni og kínahjólinu. Ekki það að þessi hjól séu eitthvað drasl, þvert á móti eru þetta ágætis hjól en verðmunurinn er svo lítill í japanskt hjól með öllu því nýjasta.
20.05.2008 at 18:33 #623092Vdo og K2 icehobby eru að selja allar þessar þrjár tegundir sem og Fóðurblandan. Já það er rétt að þetta eru alltsaman ágætis hjól en kymcoin er svona aðeins vandaðra en linhai og með 500cc mótor á móti 300cc, bæði hjólin eru með fjórhjóladrifi og háu og láu drifi, linhai hefur það hinnsvegar fram yfir að hægt er að fá það skráð 2 manna, varahlutir eru á mjög góðu verði í þessi hjól og er hægt að fá allan andskotan í þetta, heitan ás, kraftpúst, kúpplingskitt og margt fleira.
kv Gunni fjórhjólakall
20.05.2008 at 18:46 #623094held að hondan sé ekki götuskráð sem skiptir öllu máli allavegana fyrir mig
Kv Ak
20.05.2008 at 20:43 #623096Það er alveg rétt hjá þér, það er ekki hægt að fá neina útgáfu af honda fjórhjóli götuskráð, ódýrustu götuskráðu hjólin eru þessi kóresku.
kv Gunni
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.