FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Fjór- og sexhjól við hreindýraveiðar

by Olgeir Örlygsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Umhverfismál › Fjór- og sexhjól við hreindýraveiðar

This topic contains 5 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Jón Garðar Helgason Jón Garðar Helgason 18 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 13.09.2006 at 16:26 #198536
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant

    Komið þið sæl

    Mér datt í hug að minnast á þennan dóm sem var að falla í héraðsdómi austurlands. Þar með var hreindýraveiðileiðsögumönnum heimilað að ná í feld dýr á fjór- eða sexhjólum.

    Mér finnst svolítið athugavert að ekki skuli vera minnst á utanvega akstur í þessu samhengi, allavegana ekki í fréttum, því að það er ólíklegat að hreindýr séu alltaf felld við hliðina á vegslóð.

    Einnig hef ég heyrt að þeir sem fari á hreindýr þurfi nú ekkert að labba neitt svakalega mikið…. en vonandi er það mismunandi eftir leiðsögumönnum.

    Kveðja O.Ö.

  • Creator
    Topic
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)
  • Author
    Replies
  • 13.09.2006 at 16:36 #560100
    Profile photo of Ólafur Hallgrímsson
    Ólafur Hallgrímsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 544

    Lesið dóminn á domstolar.is.





    13.09.2006 at 17:40 #560102
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    þið ættuð að sjá heiðarsmalana sem eru á fullu um allt núna, hreindýrakallarnir eru afskaplega meðvitaðir í samanburði við bændurna marga hverja sem nota hjólin.





    13.09.2006 at 19:07 #560104
    Profile photo of Óskar Andri Víðisson
    Óskar Andri Víðisson
    Participant
    • Umræður: 51
    • Svör: 778

    Sælir félagar

    Einfari, þetta er ekki mismunandi á milli leiðsögumanna heldur á milli veiðisvæða. Á svæði eitt og tvö þar sem mest er veitt er ekki algengt að það þurfi að labba mikið.
    .
    Á svæði þrjú hinsvegar (þar sem ummrætt mál á sér stað) er það þekt að menn hafi gengið sig upp að hnjám, þá ekki endilega við að að fara og veiða dýrið heldur að finna hjarðirnar.
    .
    Ef þið lesið dómin kemur þar framm að þeir hefðu fellt dýrið uppá fjalli, hlutað dýrið og borið það síðan niður að læk við þekktan traktorsslóða og sótt það síðan þangað á hjólunum.
    .
    Kv.
    Óskar Andri





    13.09.2006 at 19:53 #560106
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ég hef aldrei skilið þetta viðhorf hjá þeim sem ráða þessu með að það megi koma á 3 tonna traktor eða jeppa eftir slóðum að sækja felld dýr en það má ekki koma á 300 kílóa fjór eða sexhjóli.
    Og fyrir utan það að ef að ökumaðurinn er ekki þeimur geðveikari þá valda svona hjól nánast engu raski á jarðvegi.





    17.09.2006 at 11:10 #560108
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mér finnst það athyglisverðast við þennann dóm að þarna var notaður æfagamall straktorsslóði sem er mjög óskýr á köflum og jafnvel sést ekki á sumum stöðum.

    Eftir þessum slóða ver ekið að miklu eða öllu leyti og kært var einnig fyrir utanvegaakstur en báðir sýknaðir.

    Spurningun er hvort þessi dómur sé fordæmi fyrir því hvaða slóða megi nota.

    Ég held að umhverfisnefnd 4×4 og áhugamenn um notkun gamalla slóða ættu að kynna sér innihald dómsins rækilega því að þetta er sýknudómur í málefni sem skiptir jeppamenn miklu máli.

    Sömuleiðis er það umhugsunarefni hvernig dómurinn hefði farið ef þarna hefði verið venjulegur jeppamaður í leit af kaffistoppistað eða ef einhver ummerki hefðu myndast hjá veiðimönnunum.

    Dómurinn fer út í þá sálma að hjólin voru ekki notuð við veiðar heldur lauk veiðunum þegar vopnin voru fjarlægð af veiðistað

    Kv Izan





  • Author
    Replies
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.