FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Fjölskylduhátíð 2005 í Setrinu 19. til 21 ágúst.

by Guðmundur Guðmundsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Fjölskylduhátíð 2005 í Setrinu 19. til 21 ágúst.

This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Guðmundur Guðmundsson Guðmundur Guðmundsson 19 years, 9 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 28.07.2005 at 23:43 #196121
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant

    Sælt veri fólkið

    Eins og þið sjáið á fréttasíðunni þá er verið að undirbúa fjölskylduhátið 2005 í Setrinu. Að þessu sinni er það Hjálparsveit 4×4 sem stendur fyrir hátíðinni, þannig að ykkur ætti að vera óhætt að mæta.

    Allir að skrá sig og endilega komið með komment um þessa frábæru hátíð okkar 4×4 félaga.

    kveðja Hjálparsveitin

  • Creator
    Topic
Viewing 15 replies - 1 through 15 (of 15 total)
  • Author
    Replies
  • 03.08.2005 at 20:39 #525234
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Ágæta stjórn 4×4

    Inn fór póstur sem ekki átti erindi þangað og eru hlutaðeigandi beðnir velvirðinar

    kv. gundur





    09.08.2005 at 21:12 #525236
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Ágætu félagar

    Búið er að skrá nokkra bíla í ferðina en betur má ef duga skal.

    Ef þið ætlið að skrá ykkur og koma með þá eruð þið vinsamlegast beðnir um að gera það sem fyrst.

    kveðja Hjálparsveit 4×4





    10.08.2005 at 10:40 #525238
    Profile photo of is
    is
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 994

    Gundur þessi dagsetning er alveg út úr kú, það er nátturulega menningarnótt þessa helgi.
    Með kveðju frá kqbenhavn





    10.08.2005 at 11:13 #525240
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Sælt veri fólkið

    Enn eru menn að skrá sig í ferðina góðu.

    Við ætlum að hittast í Mörkini annað kvöld
    kl. 21:00 þannig að þá verður einnig hægt að skrá sig.

    Ps. Kæri Kalli eins og þú veist manna best þá höfum við ekki mikinn áhuga á malbikinu og sækjum því til fjalla við hvert tækifæri, ég held að Fjalla Eyvindur og Halla hefðu nú frekar viljað vera í nágreni Þjórsárvera á þessum tíma.

    Fagurt er á fjöllum mundu það!

    kveðja gundur





    12.08.2005 at 08:47 #525242
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Sælt veri fólkið

    Við hittumst niðri í Mörk í gær og var farið yfir undirbúning ferðarinnar, nú þegar eru um 9 bílar skráðir þannig að ferðin verður farin.

    Við viljum gjarnan fá fleirri bíla með í för og mega þeir vera af öllum stærðum og gerðum.

    Skorum við því á "Litludeildarmenn og konur" að mæta.

    ps.
    Einar Sól ætlar að sjá um vöflur með sultu og rjóma.

    kveðja Hjálparsveitin





    15.08.2005 at 01:12 #525244
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    Gott kvöld! Ég er sammála Kalla að dagsetningin á þessari fjölskylduhátíð hafi verið rangt dagsett. Þetta hefði náttúrulega að skoððast þegar við ákváðum ársplanið á nefndarfundi í vor. Þetta gerðist líka í fyrra ef mig minnir rétt og því var fámennt en góðmennt þar. Það er jú satt að fagurt er til fjalla á þessum árstíma en ég held samt að Menningarnótt letji margan til að fara úr bænum. Samkvæmt almanakinu hér til hliðar er þó hægt að fresta þessu til helgarinnar 3-5 sept. ef vilji væri fyrir hendi.

    Bkv. Magnús G.





    15.08.2005 at 10:02 #525246
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ráðamenn Reykjavíkurborgar hefðu náttúrulega átt að taka mið af fjölskylduhátíðinni hjá okkur þegar þeir dagsettu menningarnóttina.
    En annars er það rétt hjá Magnúsi að það hefði þurft að hafa þetta í huga á fundinum í vor, en svona hlutir vilja gleymast. Hins vegar oft ekki gott að vera að hræra í dagsetningum eftirá, þá eru alltaf einhverjir sem hefðu getað mætt og ætluðu að mæta en komast ekki á nýrri dagsetning.
    3.-4. sept gengur ekki því að því ég best veit er Setrið pantað þá fyrir "þingfund".

    Kv – Skúli





    15.08.2005 at 13:58 #525248
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Er ekki gráupplagt fyrir þá sem langar í Setrið, en ætla á menningarnótt að skella sér með skálnefndinni helgina á eftir. Það er að vísu engin Fjölskilduhátíð þá, en svona vinnuferðir eru víst hin besta skemmtun og ókeypis í ofanálag.

    ÓE





    17.08.2005 at 09:53 #525250
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Sælir félagar

    Undirbúningur er í fullum gangi og skráningu miðar vel áfram.

    En hér kemur áskorun á vini okkar í landbyggðinni, við erum ekkert án ykkar þannig að þið ættuð að skrá ykkur hið fyrsta og mæta.

    Flott dagskrá sem slær jarðarför R-listans út.

    kveðja gundur





    17.08.2005 at 19:53 #525252
    Profile photo of Ólafur A. Hallgrímsson
    Ólafur A. Hallgrímsson
    Participant
    • Umræður: 24
    • Svör: 385

    Það hefði svo sannarlega verið gaman að vera með ykkur ágætu félagar af malbikinu EN það er stiku ferð hjá okkur í Austurlandsdeild um helgina, sem ég tek þátt í.

    Austurlandsdeild 4×4 er samstarfsaðili Ferðafélags Fljótsdalhéraðs við að stika leiðina inn í Hveragil.

    mbk Óli Hall





    17.08.2005 at 21:16 #525254
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Flott mál, frábært að fá stikur á þessa leið. Þetta er í raun mjög mikilvægt framtak í baráttunni gegn utanvegaakstri.
    En þið hinir sem ekki eruð í svona mikilvægum erindagjörðum mætið auðvitað hjá gundi og hinum hjálparsveitargúrúunum.
    Kv – Skúli





    18.08.2005 at 11:12 #525256
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Ágætu Setursfarar

    Núna er þetta allt að smella hjá okkur.

    15 fullorðnir
    12 börn
    10 bílar

    3 Toyotur
    3 Patrolar
    2 Econoline
    1 Benz
    1 annað

    Hægt verður að skrá sig í dag og í kvöld
    inni í Mörk, allir að mæta.

    kveðja hjálparsveitin





    21.08.2005 at 22:03 #525258
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Sælt veri fólkið og takk fyrir helgina.

    Við í Hjálparsveitinni viljum þakka þessum frábæra hópi sem mætti með okkur í Setrið núna um helgina.

    Þetta var mjög gaman fyrir okkur því þið voruð frábær.

    Sjáumst vonandi að ári.

    ps. við setjum inn myndir næstu dag.

    kveðja hjálparsveitin





    22.08.2005 at 01:17 #525260
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Sæll og takk fyrir okkur Norðanmenn.

    Þetta var alveg ljómandi gott og vel að þessu staðið NEMA að það er alveg ljóst að flugeldasýningin verður ekki í ykkar höndum aftur, þið kunnið ekki að halda flugeldasýningu og munum við Norðanmenn sjá um hana framvegis fyrir ykkur.
    Þetta minnti frekar á kertafleytingu en flugeldasýningu hjá ykkur það eina sem vantaði var pollur…

    Kv.
    Benni





    22.08.2005 at 09:32 #525262
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Sæll Benni

    Takk fyrir að mæta, það var gaman að fá ykkur Skjöld í heimsókn þó ykkar stoppið hefði mátt vera lengra.

    Varðandi flugeldasýniguna, þá var hún aldrei á dagskrá.

    22:00 – Varðeldur, blys og kvöldvaka

    Gæði felast í því að gera það sem lofað var.

    Benni mundu að gæði er allt sem þarf.

    þinn vinur gundur





  • Author
    Replies
Viewing 15 replies - 1 through 15 (of 15 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.