This topic contains 3 replies, has 1 voice, and was last updated by Pétur Ingason 21 years, 3 months ago.
-
Topic
-
Ég var að tala við Magna í skálanefndinni í kvöld, svona rétt til að forvitnast um fjöldskylduhátíðina í Setrinu um helgina, og sagði hann mér að undirbúningur að einni stæðstu hátíð frá upphafi væri á lokastigi það væru um 50 manns þegar búnir að skrá sig. Þarna verða skemmtiatriði fyrir börnin í hávegum höfð og mikið gert til að stytta þeim stundirnar má þar nefna brennu, leikir og svo á að slá út stórkostlega flugeldasýningu sem var á þorrablótinu síðast.
Enn er pláss fyrir fleira fólk og hvet ég alla sem ekki hafa tekið þátt í þessu áður að drífa sig og rífa upp símann
þetta er allavega orðinn ómissandi atburður í minni familíu og krakkarnir farnir að iða af spenningi.Eftir flugeldasýningu fara svo pabbarnir í „grobbsögukeppni“ en líklegt er að enginn hafi aðra eins sögu að sega og okkar ástríki Slóðríkur og fáum við örugglega mjög nákvæma lýsingu af dýpt og hektara stærð af drullupollinum ógurlega.
Enn allir á staðinn og takið þátt í frábærri skemmtun fyrir unga sem aldna.
You must be logged in to reply to this topic.