FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

fjallastikuferðalangarnir

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › fjallastikuferðalangarnir

This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 22 years, 9 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 11.09.2002 at 16:18 #191673
    Profile photo of
    Anonymous

    Sælir félagar

    Þessi leið sem stikuð var síðustu helgi er ekki á kortum frá landmælingum. En fróðir menn segja að hún sé á kortinu frá Mál og menningu. (af hverju skildi það nú vera ?)

    Hvernin væri að þessir höfðingjar segðu frá helstu atriðum frá þessari leið. Og kannski laugardagskveldið í smá atriðum!!!!!!

    Suðurlandsdeildin ætlar að byggja pínu andyri við sitt hús
    svo það gæti orðið ´“ný“ möguleg leið Rvík-Sultarfit og svo áfram norður.

    Taka upp pennan og lýsa leiðinni !!!!

    ferðastrumpur

  • Creator
    Topic
Viewing 1 replies (of 1 total)
  • Author
    Replies
  • 12.09.2002 at 09:22 #462996
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll strumpur

    Leiðin sem var stikuð frá Sultarfitjaskálanum og inn á Klakksleiðina liggur í stórum dráttum meðfram eða í nágrenni við Stóru-Laxá. Við byrjum á að fara yfir ánna rétt norðan við skálann, þar er ekið upp með henni vinstra megin eftir söndunum og svo aftur yfir hana spölkorn fyrir neðan. Þá er ekið upp á hæð eða tungu og svo haldið áfram vestan við ánna, vestan við Grænavatn og komið inn á Klakksleiðina ekki langt frá Rjúpnafelli. Þetta er skemmtileg og falleg leið, vel þess virði að koma í veg fyrir að hún tapist.

    Sunnudaginn brugðum við útaf áætlun og stikuðum aðra leið en til stóð sem var ekki síður á góðri leið með að týnast. Þá beygðum við útaf Gljúfurleitarveginum vestan við Sultartangalón (ca 64 15.63 og 19 30.10) og liggur leiðin að skála í Sultarfitjum (rétt við Lambafell) einum 5-6 km austan við Sultarfitjaskála Suðurlandsdeildar. Þaðan liggur svo slóði áfram inn á slóðina að Sultarfitjaskála. Það var raunar fyrir tilviljun að þessi slóði var tekinn. Jón Snæland renndi þarna austur að skálanum á laugardaginn til að trakka leiðina og rak þá augun í að þaðan lá áfram slóði til austurs, en Ómar kannaðst við hann og vissi hvert hann lá. Á kafla er slóðinn grýttur og seinfarinn og líklega illa fær láfættum jeppum eða jepplingum, en skánaði þegar vestar dró og reyndist bara nokkuð skemmtilegur. Þó rétt að taka fram að lítt breyttur Pajero var með í för og fór þetta.

    Þú spyrð um laugardagskvöldið, það fór að sjálfsögðu afspyrnu vel fram. Við vorum ekki alveg einir í skálanum því þar var 40 manna hópur frá jeppadeild Útivistar (meðal þeirra nokkrir f4x4 félagar). Deildum skálanum í miklu bróðerni.

    Svo var veðrið náttúrulega eins og best er á kostið og útsýnið eftir því. Alls um 10 bílar í leiðangrinum sem er nokkuð gott, enda gekk hratt og vel að stika, sérstaklega á laugardeginum. Sýnist að það hafi verið upp undir 40 km. sem voru stikaðir.

    Kv – Skúli H.





  • Author
    Replies
Viewing 1 replies (of 1 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.