Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Fjallafrasar..
This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Bjarki Clausen 15 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
22.02.2009 at 21:14 #203888
Hvað er besti frasinn sem heyrst hefur á fjöllum…
látið flakka…… -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
22.02.2009 at 21:44 #641750
"Síðasti maður upp dregur bláa Chevroletinn heim"
22.02.2009 at 21:56 #641752Þessi fauk í VHF þegar verið var að leggja af stað niður Lambatungujökul, leið sem aðeins einn úr ferðahópnum hafði farið áður.
Spurning: "er þessi brekka nokkuð löng eða brött?
svar (frá þessum sem hafði farið þarna niður áður): Nei nei eða, hún er nokkuð löng…….. og brött".Og svo annar sem féll í afskekktum fjallaskála þar sem ónefndur fjöldi af karlmönnum var veðurtepptur.
"Strákar, djöfulli væri gaman ef við værum allir hommar"
22.02.2009 at 22:58 #641754"Það má leysa það mál ef maður er ekki með milligír,leggja bara seinna af stað."
22.02.2009 at 23:20 #641756eitt sinn var maður nokkur villtur, eftir að búið var að komast að staðsetningunni var honum sagt að keyra beint áfram og þá heyrðist í stöðinni, já en ég get ekki keyrt beint því stýrið er skakkt.
kv Lella
23.02.2009 at 00:17 #641758skyggnið var frekar lítið á köflum, og varð úr að ákveðið var að ef menn sæju ekki bílinn fyrir framann sig yrðu menn bara að halda beinni stefnu og þannig myndum við vinna okkur útúr þessu með þolinmæðinni…. þessi lausn varð ofaná með loforði með því að ef eithvað undarlegt gerðist eða einhver breitingu þyrfti myndu menn ræða saman í vhfinu….
næst þegar skiggnið komst uppfyrir sentimeterinn var nokkuð ljóst að fækkað hafði töluvert í hópnum eða alla þá bíla sem höfðu verið fyrir aftann umræddann bíl….þegar menn voru búnir að ná áttum og að reyna að sameina hópinn flaug þessi útskíring….
.
.
.
.
.
..
sko þegar ég held stírinu beinu þá beigir bíllinn minn örlítið til hægri….
23.02.2009 at 08:15 #641760Ha nei ég er ekki fastur.
Ég kemst bara ekki lengra….Kv Bóndinn
23.02.2009 at 09:14 #641762Þessi heyrðist í 30 bíla ferð, langt uppá jökli og var þetta kall frá síðasta bíl sem hafði lent út úr förum: "Viljiði stoppa þarna fremst, ég fór útaf…"
23.02.2009 at 09:53 #641764Strákar, fastur, ég hitti ekki á förin.
og aftur:
Það var eitthvað sem henti mér út úr förunum.
kv. vals.
23.02.2009 at 11:19 #641766hehehehehe hihihih þetta er allveg frábært. 😀
23.02.2009 at 11:41 #641768Þetta heyrðist einusinni á VHF rás.
"Drap ég helvítið sem ég keyrði yfir?"Þá hafði ökumaður séð tófu labba yfir veginn og ákvaða að beygja aðeins til að reyna að láta hjólin fara yfir hana en hann var ekki viss…
23.02.2009 at 11:54 #641770Einu sinni þegar margir voru með SSB talstöðvarnar var einn félaginn kominn í náttstað og aðeins búinn að fá sér einn gráan. Ég vil ekki nefna rétt nafn og set hér mitt kallmúmer. Um kvöldið heyrðist á rásinni : L 381 og hálfur kallar. Sami maður var eitt sinn staddur inn á hálendinu og vantaði varahlut í jeppann . Hann stakk uppá hvort ekki vðri hægt að kasta þessu niður úr Egilsstaðaflugvélinni. Yfirleitt voru starfsmennirnir í Gufunesi afskaplega liprir og almennilegir í sínum störfum sem oft hafa reynt á þolinmæðina. Einu sinni gekk þó illa að heyra í þeim sem kallaði og Gufunesmaðurinn sagði hálf önugur : Það er eins og þú sért fyrir norðan eða einhversstaðar í andskotanum. Með kveðju. Olgeir
23.02.2009 at 12:54 #641772Var eitt sinn staddur upp í Bláfjöllum á Unimog einum miklum (24 gíra apparat með öllum tökkunum). Vorum þar nokkur saman að bíða eftir fleira fólki. Einn félaginn, frekar vel vaxinn á alla kanta, stökk þá út til að spræna og stillti sér upp fyrir framan bílinn eins og menn gera oft. Heyrist þá kallað aftan úr bílnum: "Skellt’onum í crawlerinn, þú ættir að hafa það"
kv
Rúnar.
02.03.2009 at 10:18 #641774Þetta heyrði ég í stöðinni í síðustu þorrablótsferð Skagafjarðardeildar:
"Yðar konunglega tign, yðar konunglega tign, auðmjúkur þjónn þinn kallar"
02.03.2009 at 12:51 #641776Hvað sagðirðu aftur í talstöðina áður en þú hoppaðir út úr Hilux…þegar hann húrraði af stað niður svellið í den ?…
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.