Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Fini loftdælur
This topic contains 23 replies, has 1 voice, and was last updated by Magnús Hallur Norðdahl 18 years, 11 months ago.
-
CreatorTopic
-
18.08.2006 at 18:46 #198391
jæja nú er maður að spá hvar maður fær eiginlega þessar 12volta fini dælur
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
18.08.2006 at 18:53 #558132
Fossberg er eða var allavega með umboðið fyrir þær.
byko er líka að selja Fini.
18.08.2006 at 19:42 #558134Verkfærasalan í Síðumúla á þær til.
Hefur verið besta verðið hjá þeim.
K.v. S.B.
18.08.2006 at 20:03 #558136Voru hættir með þær í fyrravetur þegar ég fór til þeirra. Voru ekki að fá þær á sama góða verðinu áfram og hættu að panta þær. Eru hinsvegar með hörkudælur, tveggja stimpla nýþungar og rándýrar dælur. Kostar 60000 kr og dælir 220 líter/min á tólf voltum.
PS. Stebbi Trúður. Ertu búinn að fá póstinn sem ég sendi þér í síðustu viku?
Haffi
18.08.2006 at 20:09 #558138Fjallabílar Stál og stansar eiga til fini og svo 2-3 gerðir í viðbot af dælum
18.08.2006 at 20:11 #558140Átti byrgðir af þeim í endan á Júlí,og sennilega eiga þeir nóg af þeim ennþá.
Kostuðu um 30 þús.
18.08.2006 at 21:37 #558142Þakka þér fyrir síðast Haffi.
Jú þetta er allt komið með skilum takk fyrir það.
Með Verkfærasöluna og fini , þá voru þeir búnir að fá slatta af þeim aftur og öruglega hægt að díla við þá með verðið ef ég þekki þá rétt.
K.v. S.B
18.08.2006 at 22:26 #558144Haffi
18.08.2006 at 22:54 #558146Sælir
Það er spurning um að safna saman nokkrum aðilum (10+) sem hafa áhuga á að kaupa dælur og fara svo bara á milli söluaðila og láta gera tilboð í pakkann. Gunni ef þú safnar nöfnum skal ég græja tilboð í þetta fyrir þig!Kv.
Ásgeir
19.08.2006 at 10:43 #558148Byko Var-er með fini verslaði mína þar kostaði ef að ég man rétt ca 32 þús,,,, í byrjun árs jan-feb,
22.11.2006 at 18:31 #558150Þá má benda á að BYKO er með FINI á útsölu þessa dagana á 27.900kr.
22.11.2006 at 18:53 #558152Byko eru með fini dælurnar ódýrastar í dag..
22.11.2006 at 19:29 #558154Er verið nota svona dælu í bíla eða einkvað annað
28000 kr[img:1qflyjuq]http://www.byko.is/byko/upload/images/vorugrunnur/230x150_74708603.jpg[/img:1qflyjuq]
kv,,,MHN
22.11.2006 at 20:21 #558156Nákvæmlega þessi var notuð í [url=http://www.arctictrucks.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=1258:19rcvm3b]loftdæluprófunina[/url:19rcvm3b] frægu.
22.11.2006 at 22:18 #558158Ég er til í dælu ef það verður farið út í það að fá tilboð í margar dælur
23.11.2006 at 09:11 #558160Já ekki vitlaus hugmynd, ég er með ef það á að leita að magn díl!
23.11.2006 at 10:12 #558162ef það verður farið í að fá tilboð í magnkaup
23.11.2006 at 11:12 #558164Mig grunar að 27.900kr sé mjög nálægt lágmarksverð á þessari vöru þessa dagana, a.m.k. treystu aðrir söluaðilar sér ekki til að matcha verðið hjá BYKO núna í vikunni og því fór ég bara og verslaði mér eina.
23.11.2006 at 11:15 #558166Ég legg til að nefnd verði skipuð til að leita að tilboðum í magn innkaup á Fini-dælum og að nefndaraðilarnir verið þrír þ.e. Sindri, Ólafur og Einar, sem sýnt hafa því starfi mikin áhuga.
Ég er með svona dælu í mínum bíl og mæli eindregið með henni en á, þess vegna, ekki von á að ég taka þátt í þessum kaupum.kv. vals.
23.11.2006 at 11:17 #558168Fossberg er að selja FINI 12v loftdælur og er með umboð fyrir FINI, þ.a.m . varahluti. Sem betur fer bila þær mjög lítið.Þær dæla 166 ltr/min. og eru sennilega þær afkastamestu í jeppadeildinni, fyrir utan Air condition dælur. Hjá Fossberg kosta þær 33,995 m.vsk. Sjálfsagt er hægt að fá þær eitthvað ódýrari annarsstaðar, en þar eru ekki til varahlutir.
Einnig á Fossberg mikið af verkfærum,tækjum og tólum fyrir alla jeppamenn. Svo er bara að semja um afslátt fyrir 4×4 !!! Nóg til af dælum. [url=http://www.fossberg.is:2kysin2k]http://www.fossberg.is[/url:2kysin2k]
23.11.2006 at 11:45 #558170fín þjónusta hjá fossberg og góðar dælur,en Grettir minn þú verður að bjóða sama verð og BYKO annars
verður róðurin þungur að selja þeir bjóðareyndar mjög gott verð ,held að það sé lægra en f 3árum
þegar ég fékk mína-sem hefur ekki bilað .Kveðja til Grettirs-Fossbergs=Ænislafen gamla skútukellingin
tryggvi
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
