This topic contains 0 replies, has 1 voice, and was last updated by Skúli Haukur Skúlason 16 years ago.
-
Topic
-
Var á Fimmvörðuhálsi um helgina, fórum upp Skógaheiðina og sömu leið til baka. Lurkur af snjó eftir að við komum yfir vaðið og þó einkum fyrir ofan Baldvinsskála (Fúkka).
Ég vill hins vegar vara menn við að treysta á gamla ferla á þessum slóðum og gamlir ferlar í þessu sambandi getur þýtt frá því í fyrra. Jökulísinn þarna er á miklu undanhaldi og í haust mátti sjá ár opnar sem hafa verið fram að þessu undir þykkum ís. Stundum voru þetta holur í gegnum ísinn niður á ánna og gat jafnvel verið nokkra metra niður. Þeir sem ekki þekkja þeim mun betur til þarna ættu ekki að keyra þarna nema í mjög góðu skyggni og alls ekki treysta á ferla frá fyrri árum. Svæðið fyrir ofan Fúkka er erfitt svæði sem er stöðugt að verða erfiðara, eftir því sem jökulísinn minnkar.
Kv – Skúli
You must be logged in to reply to this topic.