This topic contains 23 replies, has 1 voice, and was last updated by Árni Alfreðsson 17 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
04.02.2007 at 21:39 #199585
Hvernig er það, voru menn ekki á ferðinni um helgina? Gaman væri að heyra ferðasögur.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
04.02.2007 at 23:56 #579126
er nú ekki uppá marga fiska en já fór upp gjábakkaveg í kvold og hitti þar björgunarsveitarmenn og voru þeir búnir að vera að hjálpa 2 bílum sem voru búnir að vera í allann dag að berjast við krapa en svo var farið að frjósa aðeins þegar ég kem og gátum við troðið okkar eigin för án þess að spóla niður í hart eins og mikið er búið að gera á þessu svæði (verður ljótt að sjá í sumar) en við fórum töluvert langt uppeftir og snerum svo við þegar líða tók á kvöldið:P
hvað er að frétta af þorrablótinu???
Davíð Karl
05.02.2007 at 11:15 #579128Mér fannst nú lítið fréttnæmt gerast á blótinu.
Blint á laugardaginn sól og blíða á sunnudaginn.
05.02.2007 at 11:34 #579130Þær gerast varla betri þessar helgar þar sem við fengum allt nema vandræði: smá grapi hér og smá snjóblinda þar, þungt færi létt færi, flott skyggni ekkert skyggni, þorramatur og hæfilegur bjór, Lúthers skemmtun og Abba skemmtun, klafar drifu betur en hásingar, ein velta, ein brotin hásing.
Ég get ekki séð að það vanti eitthvað upp á að gera þetta þorrablót að hinni bestu skemmtun.kv. vals.
05.02.2007 at 11:53 #579132Hver valt og hvar og hvernig o.s.frv.???
Kv. Hjalti
05.02.2007 at 11:54 #579134Já það var rólegt hjá okkur í Setrinu.
Hins vegar var annar hópur góðra manna og kvenna sem blótaði þorra í Kerlingafjöllum. Við komum aðeins þar við og þar hefði verið dálítið af krapa að þvælast fyrir þeim á kili – Það mikill á kafla að hann náði upp á húdd á 49" Ford. En þeir komust þó auðvitað á áfangastað. En í þessari ferð gerðist þó eitt það markverðasta um helgina, það var nefnilega lítill fugl sem sagði mér að Hlynur Snæland hefði verið hálfa leiðina í bandi aftaní 49" ford….
Benni
P.S.
Það gleymdist auðvitað í upptalningunni hjá Val að minnast á einn tíndan vélsleða, skíði undan einum vélsleða og sá tíndi fluttur á líkbörum heim eftir að hann fannst aftur.
05.02.2007 at 12:03 #579136Ef ég hefið ætlað mér að fara yfir það sem ég kallaði “Lúther skemmtun“ þá hefði pistillinn orðið miklu lengri og ég lét það einnig vera að segja frá Kerlingafjallaþorrum að þeir þurftu að nota förin okkar til að komast heim fyrir vinnu á mánudagsmorgun.
kv. vals.
05.02.2007 at 12:23 #579138Benni ertu að kalla Fordinn minn Líkbörur ???
Kveðja Sæmi
05.02.2007 at 17:54 #579140ég get allt og kemmst allt, á patrol Hlyn. Þetta krefst meiri útskýringa og mynda, karl helv á aldrei eftir að viðurkenna þetta.
05.02.2007 at 17:57 #579142var það cruser 80 sem verið er að auglýsa til sölu
05.02.2007 at 18:51 #579144það var svo sem ekkétr stórt að sjá á body
en annað með undirvagn
það upplýsi að þetta er græja sem er framleit í usaskari
05.02.2007 at 19:33 #579146Það er nú ekki mikið þó eitt stk. USA dót leggist aðeins á hliðina, til að slappa af, meðan eigandinn slappar sjálfur af í heitulauginni með vinum sínum.
En mér skilst að framdekk hafi flogið undan patrolum í gríð og erg, aftur og aftur. Ætli það sé eitthvað til í því?
Spyr sá sem ekki veit.
Kv. Atli E.
05.02.2007 at 19:55 #579148það eru allir hættir að kippa sér upp við það þó svo að einn og einn patrol sé að tína dekki
það er eins víst og að það snjói í reykjavík á sumardagin fyrstaskari (bara FASTUR einu sinni)
05.02.2007 at 21:02 #579150Sko .. USA dótið var búið að leiða hópinn svo lengi að það ákvað að leggja sig smá meðan ég fór í laugina.
Ég fékk mér síðan bjór í lauginni og neyddist því til að skilja dótið mitt eftir því að maður keyrir ekki í glasi.
05.02.2007 at 21:21 #579152[img:35ttftxg]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/5195/39370.jpg[/img:35ttftxg]
Hér er birkir búinn að leggja bílinn sinn til, og er að fara að gera sig klárann í baðið.
05.02.2007 at 22:37 #579154Vil þakka ferðafélögunum fyrir frábæra helgi og félagskap í Setursferðinni og auðvitað virkaði usa dótið æðislega hvort sem það snéri upp eða niður, út eða suður og í syngjandi botni á jólagjöfinni:)
K.V. Broncomaðurinn og Tröllabarnið
p.s. Birkir áttu ekki fleiri myndir af græunni á hliðinni???
05.02.2007 at 23:39 #579156Ég hafði bara með mér sunddótið úr bílnum.
Ekki gat maður farið að koma ílla lyktandi á blótið!Kannski Atli eigi flotta mynd af honum.
06.02.2007 at 00:02 #579158Eithvað kannast ég við svona mynd. Sýnist þú hafa lagt wranglerinn á sömu hlið og ég gerði við minn gamla. Þeir hvílast nebblega best á farþegahliðinni. Svo bara velt honum við og keyra heim.
En svona öllu gríni gleymt, Skemdist nokkuð manneskja í Veltunni eða var þetta frekar sakleysislegt?. Og svo spurning sem á alltaf að vera nr2 Skemdist bíllinn nokkuð mikið?
Var eiginlega búinn að ákveða að Lúter hafi velt tröllinu þegar maður frétti af usa tæki oltnu. Bara svona fyrsta sem manni datt í hug:þ
06.02.2007 at 00:20 #579160Ég setti nokkrar frekar lélegar myndir [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=funnycars/5195:hu9b8e1k][b:hu9b8e1k]hér inn á albúmið[/b:hu9b8e1k][/url:hu9b8e1k], en Arnór tók margar djöfull góðar.
Það verður bara að bíða og sjá hvort karlinn gefi sér tíma í netvæðingu á myndum.
Kv. Atli E.
06.02.2007 at 00:44 #579162Hvað braustu að framan? Ég er með framfjaðrir úr Wrangler sem þú getur fengið, reyndar er annað augablaðið brotið, ekki spyrja hvernig það gerðist hehehe
kv. Kiddi Wranglermella
06.02.2007 at 14:30 #579164Á sunnudag var skroppið á Tindfjallajökul á fimm bílum. Í ferðinni var m.a. prófuð frumgerð af loftneti fyrir langdræg stuttbylgju fjarskipti. Loftenið virkaði vonum framar, vorum í mjög góðu sambandi við amatöra út um allar trissur. M.a. heyrðum við í Snorra Ingimarssyni sem var norðan unndir Loðmundi. Þegar á leið daginn kom los á gripinn, enda settur saman með hraði aðfaranótt sunnudagsins.
Hér eru nokkrar [b:l9cetvez][url=http://www.4x4offroads.com/4×4-tindfjallajokull-2007.html:l9cetvez]myndir[/url:l9cetvez][/b:l9cetvez] og [b:l9cetvez][url=http://video.google.com/videoplay?docid=-4787274115644045223&hl=en:l9cetvez]vídeo[/url:l9cetvez][/b:l9cetvez] úr ferðinni sem Hrafnkell Eiríksson, TF3HR setti saman.
-Einar TF3EK
p.s. Það er ennþá "timeout" vesen á síðunni!
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.