This topic contains 28 replies, has 9 voices, and was last updated by Björgvin Rúnar Leifsson 11 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
15.02.2014 at 09:08 #452045
45 bílar á vegum Litlunefndar voru að leggja af stað kl 09:00 frá Shell á Höfðanum og stefnann tekin í átt að Veiðivötnum. Veðurspá lofar góðu fyrir daginn og stefnir í frábæran dag á fjöllum. Mun setja hér inn fréttir af hópum öðruhvoru í dag eftir því sem fréttir berast.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
15.02.2014 at 10:54 #452051
Klukkan 10:30 eru fyrstu bílar komnir í Hrauneyjar. Að sögn aðalfararstjóra Árna Braga er hálka á þjóðveginum eftir að komið er framhjá Þjóðveldisbænum en ekkert hættulegt ef varalega er farið. Hann var að heyra í jeppamönum sem voru inn í Veiðivötnum í nótt að sögn þeirra er færið eitthvað þungt á svæðinu. Verður spennandi að heyra hvering okkar mönnum muni ganga þegar komið verður á svæðið.
15.02.2014 at 11:35 #452053Hægt er að flylgjast með Gný eftirfara á depill.is á eftirfarandi link. http://depill.is/LiveTracking.aspx
15.02.2014 at 11:50 #452056Var að heyra í Árna aðalfararstjóra hann var kominn inn á leiðina við Jökullheimaleið og kominn á sínum LC 90 42″ dekkjum strax í 2 pund. Duftfæri. Frostið um -7°c og einhver vindur en ekki ský á himni.
15.02.2014 at 12:02 #45205715.02.2014 at 13:07 #452060Flott mynd Pétur.
Kv. SBS.
15.02.2014 at 13:54 #452061Nýjust fréttir eru þær það hópurinn kemst lítið áfram og komið bras til að vinna úr. Mjög þungt færi og ljóst minni bílar munu ekki komast inn í Veiðivötn. Einhverir í dekkjavandræðum sem er verið að vinna úr.
15.02.2014 at 14:03 #452062Var að heyra í Árna. Hluti að af fremsta hóp er komin að Fossvatnahvísl og er erfitt að fara þar yfir og erfiðar brekkur þar á eftir. Ljóst ekki verður farið mikið lengra í átt að Veiðivötnum. Menn er þó gera það sem er skemmtilegt í þessum ferðum að láta reyna aðeins á tækin.
15.02.2014 at 14:06 #45206315.02.2014 at 14:11 #45206515.02.2014 at 16:13 #452069Var að heyra í mínum mönnum flestir bílarnir komust inn að Fossvatnahvíslinni. Um 15 -20 bílar fóru alla leið að skálunum við Veiðivötn. Nú er verið snúa hópunum við enda farið að halla af degi. Frábært veður. Vind farið að lægja. Menn eiga ekki orð yfir útsýnið og fegurðina sem nú er á fjöllum. Ég heima í sófa. Hvað er að????
15.02.2014 at 16:16 #45207015.02.2014 at 16:31 #45207215.02.2014 at 16:54 #452074Já Pétur. Myndir segja meira en þúsund orð. Þær gera þráðinn skemmtilegan og lifandi. Ferðin er nánast því í beinni útsendingu hér á vefnum.
Ég sem vefnefndarmaður sé loks að fyrirhöfnin er þess virði að leggja félagsskapnum til metnaðarfulla vinnu eftir bestu getu.
Kv. SBS.
15.02.2014 at 17:00 #452075Nokkrir hópar komnir niður í Hrauneyjar eða lagðir af stað í bæinn. Var að heyra í Gný eftirfara. Síðustu bílar eru núna fara yfir kvíslina á leið níður að Hrauneyjum.
15.02.2014 at 17:09 #452078Spurnig Sigurður að við hengjum Gopro vél á einhvern jeppann í næstu ferð og höfum myndatökuna í beinni svo ég þurfi ekki vera röfla þetta hér í texta.
15.02.2014 at 17:13 #45208015.02.2014 at 17:15 #45208215.02.2014 at 17:39 #452087Gaman að Litlanefndin skuli vera svona virk. :O)
15.02.2014 at 18:15 #452092Var að heyra í Gný eftirfara 3 hópar komnir í Hrauneyjar eða farnir heim. Hinir 3 hóparnir eru á leiðinni niður frá Veiðivatnaleið. Menn eru ekkert að flýta sér. Njóta staðar og stundar.
15.02.2014 at 18:57 #452094Var að tala við félaga Gný þar sem hann var kominn vel niður fyrir Fellsendavatn og voru þeir að pumpa í.
Síðustu bílar að lagðir af stað í bæinn á malbiki. Ferðinni þar með slitið. Minnum svo á að við verðum með myndakvöld næsta fimmtudagskvöld í félagsheimili F4x4 kl 20:00. Einnig viljum við hvetja menn að setja inn myndir hér á vefnum. Litlanefnd þakkar öllum fyrir frábæran dag á fjöllum og sófum.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
