FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Ferð upp á Langjökul

by Einar Lárusson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Ferð upp á Langjökul

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 22 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 02.01.2003 at 13:18 #191938
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member

    Gleðilegt ár ferðafélagar

    Við erum að fara nokkrir á Langjökul laugadaginn 4 jan við verðum reyndar flestir á sleðum en það verða einhverjir jeppar með í för. Ætlunin er að fara jafnvel inn á hveravelli en það á eftir að koma í ljós hvort að það sé hægt þ.e. ef það er nægur snjór.

    Það væri gaman að heyra í fólkinu sem að var þarna á nýarsdag og um síðustu helgi hvernig það gekk og einnig hvort að fólk hafi verið að fara um Kaldadal.

    Kveðja
    Einar

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 02.01.2003 at 14:02 #465934
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Einar,
    Var að þvælast um Kjalveg þann 29.des og var þá frekar snjóalítið inn við Hveravelli. Félagar mínir höfðu verið inn í Kaldadal daginn áður þann 28. des og sögðu að norðan við Skjaldbreið væri mun meiri snjór en þarna upp á Hveravöllum. Er með myndir af Hveravöllum þennan dag og reyni að smella þeim bara inn á netið þannig þú getir séð sjálfur.

    Með kveðju
    Nils





    02.01.2003 at 14:38 #465936
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Sælir félagar og gleðilegt ár.
    Ég hef aðeins verið að þvælast þarna um hátíðirnar og notið
    veðurblíðunar og skemmtilegs færis.
    Ég mæli ekki með að menn fari upp Kaldadalinn frá Þingvöllum
    hann er mjög seinfarinn þá leiðina en tiltörulega auður
    Húsdafellsmeginn.
    kv Lúther





    02.01.2003 at 14:57 #465938
    Profile photo of Sighvatur Jónsson
    Sighvatur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 196

    Vorum á ferð um Kaldadal á milli jóla og nýárs. Þetta gekk frekar hægt en ég tel líklegt að búið sé að þjappa veginn vel vegna mikillar umferðar þarna. Fórum á jökulinn sem var ágætur yfirferðar og nægur snjór.

    Hvati





    02.01.2003 at 18:06 #465940
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Rammar úr videoi komnir inn í möppuna. Tekið 29. des. Reyndi að sína snjóalög eins vel og ég gat. Vonandi segir þetta e-ð.

    Með kveðju,
    Nils





    03.01.2003 at 11:59 #465942
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Ég þakka kærlega fyrir þessar upplýsingar, kemur sér mjög vel. Maður er orðinn frekar spenntur að koma sér af stað og fara að gera eitthvað. Ég læt svo vita hvernig gengur og hvernig færið er.

    Kveðja
    Einar





    03.01.2003 at 16:05 #465944
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir allir saman.
    Verða einhverjir fleiri á ferðinni á morgun á Langjökli? Erum að hugsa um að fara í dagsferð í snjóinn, skoða Þursaborg og spóla pínulítið. En þar sem annar bílinn er frekar "sárfættur" að framan sem stendur og treystir sér ekki útfyrir borgarmörkin verðum við einbíla. Því væri gott að vita af öðrum á ferðinni.
    Reiknum með að verða í Þjófakrók þegar birta fer (úr bænum ca 9.00)
    Kveðja
    Siggi_F





    03.01.2003 at 16:52 #465946
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Erum að stefna að fara á Langjökul á morgun (lau.) á líklega 4 bílum. Sjá hvort það sé ekki hægt að gera einhverja skandala eins og að festa sig einu sinni eða tvisvar. :)

    Kv. Keli





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.