FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Ferð með Einstök Börn

by Pétur Hans Pétursson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Ferð með Einstök Börn

This topic contains 31 replies, has 19 voices, and was last updated by Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 11 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 23.04.2014 at 11:00 #457209
    Profile photo of Pétur Hans Pétursson
    Pétur Hans Pétursson
    Participant

    Laugardaginn 17. maí næstkomandi ætla félagar í Ferðaklúbbnum 4×4 að bjóða meðlimum í félaginu Einstök börn með í jeppaferð. Um er að ræða 60 til 70 einstaklinga, börnin ásamt fylgdarfólki þeirra, og er áætlað að þurfi 30 til 40 jeppa til að anna þessum fjölda.

    Hugmyndin er að fara úr bænum klukkan 9 að morgni, keyra sem leið liggur að Geysi þar sem verður stoppað. Því næst verður farið að Gullfossi og eftir það upp á Bláfellsháls og inn að Skálpa. Þar verður eitthvað brallað og hugmyndin er svo að fara upp á Jökulinn þar og sjá til hvað færið býður upp á.

    Fjölmiðlafólk verður með í för og er reiknað með að ferðinni verði gerð góð skil í fjölmiðlum. Þetta fellur vel að ímyndunarstarfi klúbbsins og hentar einnig vel fyrir þá sem vilja gjarnan fara í skemmtilega ferð og láta gott af sér leiða í leiðinni. Um er að ræða sjálfboðaliðastarf, þar sem þátttakendur leggja til bíla, tíma sinn og eldsneyti. Hugmyndin er að verðlauna þátttakendur með einhverri uppákomu eftir ferðina, en slíkt hefur ekki verið útfært ennþá. Við munum setja nánari upplýsingar inn á vefinn síðar.

    Ef þú vilt leggja þessu góða málefni lið þá vinsamlegast farðu inn í skráningarformið sem má finna ( hér ) og skráðu þig í ferðina.

    Nánari upplýsingar um félagið einstök börn má finna á veraldarvefnum undir: http://einstokborn.is/Default.asp?Sid_Id=28730&tId=99&Tre_Rod=&qsr

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 31 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 23.04.2014 at 16:07 #457216
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Síðast þegar við gerðum þetta þá heppnaðist ferðin með þvílíkum glæsibrag að sæmd var af fyrir alla sem að komu,bílstjórar,grillarar,sveitastjórn og aðstandendur og það voru hrein forréttindi að fá að taka þátt í því að undirbúa og skipuleggja viðburðinn með einvalaliði,það er ekki hægt annað en að vera stoltur af að það á að endurtaka dæmið.





    24.04.2014 at 09:29 #457235
    Profile photo of Hjörtur Sævar Steinason
    Hjörtur Sævar Steinason
    Participant
    • Umræður: 89
    • Svör: 1242

    Góðan daginn,
    ég finn ekki skráningarformið !!!
    Kveðja Hjörtur og JAKINN.is





    24.04.2014 at 14:01 #457239
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Fann það á forsíðunni undir viðburðarskránni „Ferð með einstök börn“ efri linkurinn virkar ekki en neðri virkar fínt.
    Kv Klakinn.





    24.04.2014 at 16:03 #457242
    Profile photo of Hjörtur Sævar Steinason
    Hjörtur Sævar Steinason
    Participant
    • Umræður: 89
    • Svör: 1242

    Þakka þér fyrir það Laugi minn,
    en svo er eitt fáránlegt að ef maður er innskráður þá sér maður ekki þátttökulistann !!
    Kveðja Hjörtur og JAKINN.is





    26.04.2014 at 16:45 #669085
    Profile photo of Pétur Hans Pétursson
    Pétur Hans Pétursson
    Participant
    • Umræður: 25
    • Svör: 228

    Nú eru 10 jeppar skráðir. Góð byrjun. Þurfum að ná 20 jeppum í viðbót. Endilega skráið ykkur sem fyrst. Ég hef heyrt á mönnum sem fóru siðustu ferð að hún hafi verið einstaklega gefandi.





    28.04.2014 at 15:29 #767252
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Virkilega flott ferð sem við fórum á Mýrdalsjökul hér um árið.. komið niður að Skógum og svo grill á eftir.





    01.05.2014 at 22:14 #767973
    Profile photo of Pétur Hans Pétursson
    Pétur Hans Pétursson
    Participant
    • Umræður: 25
    • Svör: 228

    Nú eru 15 jeppar skráðir. Þurfum 15 jeppa í viðbót í það minnsta. Endilega koma með í þessa ferð og látum gott af okkur leiða fyrir gott málefni.





    03.05.2014 at 15:46 #767990
    Profile photo of Sigurdur Grétar Magnùsson
    Sigurdur Grétar Magnùsson
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 14

    Farþega fjöldi í skráningu er það fjöldi farþega sem koma með bíl eða komast með bíl ?





    04.05.2014 at 06:04 #768003
    Profile photo of Hjörtur Sævar Steinason
    Hjörtur Sævar Steinason
    Participant
    • Umræður: 89
    • Svör: 1242

    Góðan daginn,
    ég skrái 4 – 5 vegna þess að ég kem 5 farðegum með góðu en kannski betra ef eru bara 4. En í rauninni er allt gott !!!
    Kveðja Hjörtur og JAKINN.is





    04.05.2014 at 17:06 #768005
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Þegar ég skráði fjóra í bíl hjá mér mat ég það svo að það væru fjórir í bílnum, þ.e. ökumaður og þrír farþegar. Þetta er svolítið óljóst orðað í skráningarforminu finnst mér. Annars var ég að heyra því fleygt að í ferðina væru nú komnir ansi margir farþegar þannig að við verðum að spýta í lófana og fá fleiri félagsmenn til að taka þátt í þessu með okkur. Fyrir mér er þetta allavega ákaflega gefandi verkefni og ég vona að sem flestir félagsmenn séu sama sinnis og séu tilbúnir að ljá þessu lið. L.M.





    05.05.2014 at 00:14 #768017
    Profile photo of Kristján Guðmundsson
    Kristján Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 47

    Fyrir mér er þetta allavega ákaflega gefandi verkefni og ég vona að sem flestir félagsmenn séu sama sinnis og séu tilbúnir að ljá þessu lið Þetta verður bara gaman, því að þetta er kanski eina tækifærið sem sum þessara barna fá til að njóta þess að fara í svona ferð.





    05.05.2014 at 07:51 #768018
    Profile photo of Pétur Friðrik Þórðarson
    Pétur Friðrik Þórðarson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 311

    Er gagn að tveggja manna Comanche?





    05.05.2014 at 13:38 #768031
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sælir.
    Ég frétti að menn finndu ekki hvar ætti að skrá sig í ferðina. Gerði það skýrar á tveimur stöðum.

    Skráning er hér.





    05.05.2014 at 15:51 #768032
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sælir.
    Ég tek eftir að 8 bílar af 17 sem komnir eru geta aðeins tekið einn farþega. Það gengur að sjálfsögðu ekki upp. Eitt foreldri kemur að sjálfsögðu með sínu barni. Þá eru 3 í bíl því bílstjórinn er talinn með.

    Flestir þessara bíla eru 5 manna og er þá hæfilegur fjöldi í bíl 4 og kannski 5. Smá afskiptasemi enda kunnur fyrir það. 😉
    Kv. SBS.





    06.05.2014 at 13:16 #768056
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 3
    • Svör: 3

    Þarf ég að vera félagi í klúbbnum til að skrá mig?

    kveðja,
    Guðni





    06.05.2014 at 21:12 #768064
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Félagar góðir, frábært framtak.

    Vanti bíl á endasprettinum þá bið ég framkvæmdaraðila að hafa samband, gæti trúlega lagt til bíl í verkefnið.

    Ingi 864 6489
    ingi@boreal.is





    09.05.2014 at 23:11 #768256
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sælir félagsmenn.
    Ég hafði ákveðið að taka þátt í ferðinni með einstök börn en var svo óheppin að það fór hjá mér heddpakkning í bílnum í vikunni og næ ég ekki að lagfæra það fyrir ferðina.

    Ég vil biðla til grúbbna og deilda sem klúbburinn samanstendur af, að taka þátt í þessari ferð. Sýnum út á við að við erum gefandi félagsskapur.

    Ferðagrúbbur innan klúbbsins og deildir sem eru í nálægð við höfuðborgarsvæðið. Takið þátt.

    Hér eru aðilar sem eru ekki í klúbbnum sem hafa boðist til að veita lið. Þeim þarf að svara!!
    Kv. SBS.





    10.05.2014 at 21:35 #768259
    Profile photo of Pétur Hans Pétursson
    Pétur Hans Pétursson
    Participant
    • Umræður: 25
    • Svör: 228

    Það er öllum velkomið að skaffa bíla í ferðina. Núna eru 23-24 bílar skráðir, sem rétt dugar fyrir hópinn sem er búinn að skrá sig. Gott væri því að vita af nokkrum í viðbót til vara ef einhverjir skildu detta út. Dagskrá fyrir ferðina verður send út fljótlega eftir helgi.





    12.05.2014 at 10:02 #768275
    Profile photo of Sturla Þengilsson
    Sturla Þengilsson
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 7

    Var að skrá mig eða vona alla vega að það hafi gengið. Getur einhver sett inn link þar sem þátttökulistinn kemur fram – sá hann áðan en finn ekki núna.





    12.05.2014 at 13:25 #768278
    Profile photo of Gnýr Guðmundsson
    Gnýr Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 11
    • Svör: 42

    Sælir allir.

    Mig vantar upplýsingar um 3 aðila sem eru skráðir í ferðina.
    Það sem mig vantar eru símanúmer og/eða netföng. Ef viðkomandi lesa þennan póst eða einhver sem þekkir þá, viljið þið vinsamlegast senda mér skilaboð á t.d. litlanefnd@f4x4.is

    Eftirtaldir aðilar eru:
    Unnar Ragnarsson
    Ragnar Magnússon
    Sturla Þengilsson

    Fyrirfram þakkir og kveðja
    Gnýr





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 31 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.