FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Ferð að Kistuöldu

by Óskar Erlingsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Ferð að Kistuöldu

This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Ólafur Magnússon Ólafur Magnússon 13 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 26.10.2011 at 21:48 #220992
    Profile photo of Óskar Erlingsson
    Óskar Erlingsson
    Participant

    Til stendur að fara að Kistuöldu n.k. sunnudag og reisa við krossinn sem reistur var á öldunni í fyrra. Krossinn féll síðast liðið sumar eins og fram hefur komið hér á spjallinu.
    Sjá nánar í frétt á forsíðunni.

    ÓE

  • Creator
    Topic
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)
  • Author
    Replies
  • 26.10.2011 at 22:43 #740611
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Svei mér þá. Ég er bara nokkuð heitur. Jú ég held ég skelli mér bara með. Nú reisum við fallinn kross og höldum ferðafrelsis baráttunni áfram. Gerum þennan viðburð táknrænan.

    Kv. SBS. Við gefumst aldei upp!!!





    26.10.2011 at 23:51 #740613
    Profile photo of Hjörtur Sævar Steinason
    Hjörtur Sævar Steinason
    Participant
    • Umræður: 89
    • Svör: 1242

    Góðan daginn,
    Kem með spursmálslaust.
    En hvernig ætla menn að láta hann svo tolla á sínum stað ??
    Á að taka með öflugri stög ??
    Á að taka með múrbolta og borvél ??
    Á að taka með sement og sand og steypa eitthvað niður ??
    Á að taka með járnkarl og sleggju ??
    Bara að velta upp hugmyndum.
    Á ég að taka eitthvað með mér, ég á múrbolta, járnkarl, sleggju, múrblöndu.
    Kveðja [url=http://www.jakinn.is/?album=g-sjalfur-&mynd=motmaeli102.JPG:2ia44di2]Hjörtur[/url:2ia44di2] og [url=http://www.jakinn.is/skrar/2010_0331gos-30-mars0073.JPG:2ia44di2]JAKINN[/url:2ia44di2].is





    27.10.2011 at 09:51 #740615
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Líklega er búið að skipuleggja verkferlið. Ekki megum við skilja eftir okkur neitt blandað efni á staðnum. Prófíll eða sver teinn sem rekin er niður þarf til að stinga krossinum upp á. Stagfestingar á krossinum þurfa að vera traustar. Stagvírar öryggir. Stagteinar sem reknir eru niður þurfa að vera traustir og með festingum fyrir vírinn. Verkfærin eru góður járnkarl og þung sleggja og fleirri ef ykkur dettur í hug. Hugsanlega stóra rafhlöðu borvél með góðum steinbor. Veit ekki með rafsuðuvél ef festingar hafa gefið sig á krossinum. Það er spurning með færðina og þá hvort skafið hefur í niðurgrafin vegslóðann. Kvísárveituvegur er að vísu uppbyggður. Gott ef eitthver getur frætt okkur um það.

    Kv. SBS.





    27.10.2011 at 11:20 #740609
    Profile photo of Kristján Kristjánsson
    Kristján Kristjánsson
    Participant
    • Umræður: 13
    • Svör: 166

    Ég held að það væri ráð að taka rafsuðuvél með því að teinninn, sem gengur niður af fótstykki krossins, er brotinn.
    Ég kemst því miður ekki með á sunnudaginn.
    Kv. Kristján K.





    27.10.2011 at 14:31 #740617
    Profile photo of Hjörtur Sævar Steinason
    Hjörtur Sævar Steinason
    Participant
    • Umræður: 89
    • Svör: 1242

    Góðan daginn,
    Er að spökulera að fara á Rjúpu á morgun og laugardag og ætla jafnvel að færa mig austar eftir því sem nær dregur sunnudegi. Þannig að ef ég á að taka eitthvað með mér þá er betra að vita það í dag.
    Kveðja [url=http://www.jakinn.is/?album=g-sjalfur-&mynd=motmaeli055.JPG:2dcl2hsw]Hjörtur[/url:2dcl2hsw] og [url=http://www.jakinn.is/:2dcl2hsw]JAKINN.is[/url:2dcl2hsw]





    27.10.2011 at 17:04 #740619
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Hjörtur,
    ef þú getur útvegað ca 40 – 50 cm langan stáltein iddaðann í annan endan og flatan í hinn, þá væri gott. Einnig ef þú átt góða sleggju til að reka teininn niður.
    Teinninn er hugsaður til að þræða lóðrétta prófílinn (i krossinum) upp á.

    ÓE





    28.10.2011 at 10:46 #740621
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Sælir Kistuöldufélagar,

    Mjallhvít og dvergarnir ætla að slást í hópinn upp að Kistuöldu á sunnudag:

    Einar Berg (Mjallhvít) – Hilux 38"
    Jón Ingi (dvergur) – Patról 48"
    Guðmundur (dvergur) – Mussó 35"

    ..og hugsanlega líka Bjössi (dvergur) – Pajero 38"

    Við erum aðallega með handafl meðferðis til að styðja við reisinguna á krossinum, en látið vita ef verkfæri eða annað vantar.





    28.10.2011 at 20:36 #740623
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Ég henti sleggju í bílinn í dag til vara. Get komið með álkerlingu, fyrir dvergana til að skiptast á um. Það verða líklega 30 m.s. á Kistuöldu á summudaginn þannig að það ætti að vera auðvelt að reysa krossinn undan vindi. Ég vil minna litlu karlana á að hafa spotta með til að hníta í Mjallhvíti svo þeir fjúki ekki út í veður og vind. Það yrði saga til næsta bæjar ef Svandís þyrfti að senda út lið til að leita þeirra.

    Kv. SBS Þrek-lítill en kokhraustur. 😉





    29.10.2011 at 10:12 #740625
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Ég vona að menn taki þessu bulli í mér á léttu nótunum.
    Kv. SBS.





    29.10.2011 at 12:24 #740627
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það er meiningin að leggja í hann í fyrramálið eins og sagt er hér ofar, spáin er þokkaleg en ráðlegt að hafa góðan klæðnað meðferðis. Formaðurinn búinn að versla víra lása og annað gagnlegt til verksins og ég fæ að vera farþegi með honum í þessari ferð.
    Ekið verður í Hrauneyjar og stoppað þar stutta stund. Síðan áfram Kvíslaveituveginn að vegamótum (N64 36.548 W18 30.921), þar sem beygt er að Kistuöldu (Hágöngulón stendur líklega á vegprestinum).
    Gott að taka með sér verkfæri og annað það sem fólk telur gagnlegt til að lúka þessari mission farsællega. Tala nú ekki um ef einhver tæki með sér það sem aðrir gleymdu en í ljós kemur að mikil þörf er fyrir 😉

    ÓE
    p.s. sæll Siggi það er allt í lagi að vera glaður yfir að hafa tilefni til að fara á fjöll, en er full langt gengið að dælda bílinn með sleggju :)





    29.10.2011 at 15:52 #740629
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Já við Siggarnir Sigurjónssynir mössum þetta með sleggjunni. 😉
    Kv. SBS.





    30.10.2011 at 15:56 #740631
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Ég heyrði í hópnum sem fór á Kistuöldu í dag. Það er búið að reisa við krossinn og hópurinn, á 6 bílum, er á leið til byggða. Það er búið að vera hvasst og leiðinda veður til vinnu hjá þeim. Það gengur rólega á bakaleiðinni, það er reyndar lítið af snjó en blint og skafrenningur.

    Vel gert hjá þeim að reisa krossinn á ný.

    kv. Óli





  • Author
    Replies
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.