FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Felgur

by Guðbrandur Þorkell Guðbra

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Felgur

This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Björn Þorri Viktorsson Björn Þorri Viktorsson 22 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 14.03.2003 at 21:01 #192356
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member

    Ég var að reyna á öðrum þræði að koma á framfæri spurningu um reynslu manna af samanskrúfuðum felgum (e. Bead Locks) Einhverjir af reyndustu félögum okkar hafa prófað þetta, en mig langar að heyra af reynslunni. Þetta virðist njóta vaxandi vinsælda í USA og flestir felguframleiðendur farnir að bjóða upp á felgur með bead locks, bæði í áli og stáli. Svo væri líka gaman að fá að lesa hvernig fasteignasalinn af Mælifellsárkyninu leysti felgumálið á Dömunni, en eins og margir vita er gatasetningin á nýja Pajero/Montero með sérstökum hætti.
    kv.
    ólsarinn.

  • Creator
    Topic
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Replies
  • 14.03.2003 at 21:13 #470844
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Þessar bead lock felgur eru örugglega mjög sniðugar.

    Ég veit ekki hvort það skipti máli hér á landi en mér skilst að framleiðandur svona felgna hafi ekki óskað eftir því að fá þær DOT merktar, og þar að leiðandi ekki löglegar á vegum úti (off-road only).

    Það tengist að mér skilst aðallega hræðslu lögfræðinga þessa framleiðanda við málsókn en þarlendir lögfræðingar hafa verið mjög duglegir að kæra útaf ótrúlegustu málum.

    Mig minnir að ég hafi séð einhverja torfærubíla með þetta system en það getur verið að mér hafi skjátlast.

    Mér hefur sýnst að svona felgur séu frekar dýrar og líklegast meta menn að soðinn kantur og síkaflex sé ódýrari kostur 😉

    Ég sá einhverntíma í erlendu blaði að það var verið að kynna litla slöngu sem gerði lítið annað en að halda dekkinu að kantinum. Menn gátu því hleypt úr niður í andvara en þurftu ekki að hafa áhyggjur af því að affelga. Líklegast hefur þessi lausn ekki selst nógu vel (eða ekki virkað) því ég hef ekki heyrt um þetta síðar. Mér finnst hugmyndin samt ekki svo galin :)

    JHG





    14.03.2003 at 21:41 #470846
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Eins og komið hefur fram…

    Maggi felgubreikkari er byrjaður að bjóða þessa lausn fyrir felgur þar sem hefur verið vandamál með affelgun eða felgur hafa snúist inní dekkjum (það hefur gerst ítrekað hjá mér á 44" þrátt fyrir patrol felgur og góð lím) og trúlega verð ég farinn að aka um á þessum búnaði núna um eða eftir helgina.

    Þessi breyting á felgum er eins og þær sem sjá má í bíla blöðum frá USA en þetta er allt búið til á íslandi sem Maggi er að bjóða og ég held að bara ég og Gunni Icecool séum komnir með Magglock búnað en svo er bara að sjá hvað gerist þegar maður fer að keyra á þessu.

    Hlynur R2208





    15.03.2003 at 01:34 #470848
    Profile photo of Þórir Gíslason
    Þórir Gíslason
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 353

    FjallaEivindur er búinn að keira á svona felgum
    í 1 eða 2 ár að minsta kosti.
    spjallaðu við hann.





    15.03.2003 at 16:19 #470850
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Þakka ykkur svör og upplýsingar. Ég hef nú ekki hitt Birgi í nokkur ár held ég. Töluðum síðast saman uppi á Grímsfjalli að mig minnir 1999 eða jafnvel 1998. Ljótt til frásagnar að vera svona dottinn út úr öllu. En það það verður gaman að sjá hvernig íslensk framleiðsla reynist í þessu, ekki kæmi mér á óvart þótt menn kæmu með bestu lausnina hér á landi, það er nú farið að vera svo algengt í þessum bransa að maður er farinn að telja það sjálfsagðan hlut!





    16.03.2003 at 16:58 #470852
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir ólsarinn.

    Ég sá að þú varst að velta fyrir þér spurningu um felgur á nýja vagninum. Því er til að svara að ég keypti samskonar "12,5 Prime álfelgur og ég hef notað undanfarin ár á Barbí. Gatasetningin er sú sama, en nafið á Pajero er grennra, það þarf engu að breyta.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    17.03.2003 at 07:20 #470854
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Það er nefnilega það. Einhver var búinn að segja mér að það fengjust engar felgur fyrir nýja Pajero nema sem þyrfti að renna innan úr gatinu á. Þetta er semsagt áróður og lygi af Nýbýlaveginum eins og svo margt annað um Pajero. Minnir mann á gírkassasögurnar. Maður hlakkar til að sjá nýja tryllitækið hjá þér, og ekki er verra að vita að eigandinn af flottasta bíl á hjólum í dag sé ættaður frá bílabýlinu Syðri-Mælifellsá?





    17.03.2003 at 08:25 #470856
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég veit það af eigin reynslu að gírkassar í 1988 MMC L-300 komu frá verksmiðju með ónýta kúplingslegu, í mínum bíl splundraðist hún í 67.000 km. Samkæmt Heklu var sami kassi notaður í Pajero til 1989. Þjónustu fulltrúi Heklu laug því að mér að eina vandamálið við gírkassa í L300 væri að öndunin stíflaðist sem orsakað það olían færi á yfir á millikassann. Ekkert slíkt gerðist á mínum bíl, það var byrjað að heyrast í þessari legu í 40.000 km.
    Hins vegar bauð hann mér að kaupa nýjan kassa á það sem hann kallaði "hagstæðu verði"

    Fyrir rúmum tveim árum [url=http://www.usatoday.com/money/consumer/autos/mauto778.htm:3at0bzvj]viðurkenndu yfirmenn MMC[/url:3at0bzvj] að fyrir tækið hefði áratugum saman brotið japönsk lög með því að stinga undir stól upplýsingum um framleiðslugalla í bílum sínum.

    Það er ekki ástæða til að ætla annað en þessi mál sú komin í betra horf núna.

    Ég hef aldri vitað til að það væri nein vandkvæði að setja hvaða 6 gata felgur sem er, undir MMC. Eitt af því sem veldur því að MMC hentar betur til breytinga en Toyota, er að það er hægt að nota innvíðar felgur.





    17.03.2003 at 09:33 #470858
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Felgurnar keypti ég reyndar hjá mínum ágætu félögum á Nýbýlaveginum án nokkurra athugasemda. Hekla hefur mælt með því að menn setji rennda nylon hringi innan í felgurnar til að fá stýringu af hjólnafinu, en auðvitað hljóta felgurærnar að ráða nokkru um setu felganna á hjólskálunum (sennilega er öll stýring til bóta). Eftir að ég lét jafnvægisstilla hjólin er enginn titringur í bílnum, alveg sama á hvaða hraða ekið er.

    Jú ólsarinn, ég er aldeilis ættaður frá Mælifellsá (áður Syðri-Mælifellsá, en því hefur nýverið verið breytt til samræmis við málvenju), Björn Hjálmarsson frá Mælifellsá er afi minn.

    Það er rétt hjá þér eik að það komast mun innvíðari felgur á MMC en Toy, þess vegna eru menn að sjá fyrir sér að kantarnir hans Gunnars Ingva fari létt með "14 felgur, ef þær eru aðeins innvíðari en "12,5 Prime, sem reyndar eru frekar útvíðar.

    Ferðakveðja,

    BÞV





  • Author
    Replies
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.