Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Felgu breidd
This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Bjarni Sigfússon 16 years, 1 month ago.
-
CreatorTopic
-
29.11.2008 at 19:55 #203282
Sælir félagar
Er að velt fyrir mér hversu breiðar felgur þurfa að vera fyrir 44″ er að fara að breikka cruiser felgur það er spurnig hvaða skoðum menn hafa á þessu ég geng út frá því að bíllinn sé milli 2,6 til 3 tonn
Kv. Bjarni Sig
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
29.11.2008 at 20:22 #633770
ég mundi halda að 17 – 18 tommur væri fínt.
Annars veit ég að það er mikið búið að tala um þetta hér á spjallinu og ég er nánast viss um að ef þú skrifar "felgubreidd" í leitina þá kemur mikið upp.Kv. Kalli
29.11.2008 at 21:11 #633772sæll, farðu í 19 tommur það er fín breidd
kv Heiðar U-119
30.11.2008 at 18:04 #633774Ég mundi hiklaust fara í 19-20"
–
Kv Ísak Fannar
30.11.2008 at 20:27 #633776Ég er sjálfur á 80 cruiser og er á 18 tommu felgum og finnst það bara fínt, undir hvernig bíl er þetta?
30.11.2008 at 21:26 #633778Eru ekki 19 – 20 tommur farnar að reyna svívirðilega mikið á hjólalegur og annað ?
Og er ekki orðin talsverð hætta á að affelga á t.d 20 tommu felgum þar sem 44" DC er ekki nema 18.5" Breið ?
Menn eru t.d að mæla með 14 – 16" breiðum felgum fyrir mödderinn , en hann er 15.5" breiður ….
Kv. Kalli
30.11.2008 at 22:09 #633780Ég er á 2,4t bíl á 44" á 18" breiðum stálfelgum. Það virkar fínt hjá mér og flotið er gott.
Flestir virðast komast af með 16,5" breiðar, en ég myndi hiklaust fara í 18" ef kantarnir leyfa slíkt, tryggir betri endingu dekkjanna (reynir minna á hliðarnar á lágum þrýstingi) en ert óvarðari fyrir grjóti. Þó hef ég heyrt því fleygt að DC sé eitthvað skárri með grjótið að gera heldur en t.d. mudderinn. (sem n.b. er fínt að hafa á 15,5" breiðum felgum, þá fyrst fer maður að drífa 😉 )
Vil benda á að bera saman mudder og DC er ekki hægt hvað varðar felgubreiddir, DC er í raun mun breiðara en 18,5" en mudderinn rétt nær einhverjum 16" að mig minnir. (ég hef þó séð mudder á 17" að mér var sagt veit ekkert hvernig það gengur fyrir sig!)
.
19"-20" er kannske gengið fulllangt, en tryggir meira flot, ég held að þessi "breidd" á dc sé stórlega rugluð, dekkið er ennþá breiðara en felgan þó það sé á 18" felgum og mætti alveg við 19".
Mundu bara, breiðari felgur = meira álag á legur og stýrisgang og hann verður óstýrlátari fyrir vikið.
.
Legurnar að framan í flestum alvöru jeppum þola 44" alveg en afturlegurnar eru oftast allt annað mál, kónískar legur eru eina vitið og heilfljótandi. Bara fylgjast vel með draslinu og herða uppá ef minnsta slag er komið í þetta.
.
Lausnin við affelgunum er kantlás (e. beadlock) og góður soðinn kantur, og gott LÍMKÍTTI, ekki eitthvað *hóst* GVS *hóst* kítti (með fullri virðingu fyrir því ágæta verkstæði). Þetta bara sannaði það fyrir mér að kítti er ekki bara kítti.
.
Vona að ég hafi ekki sært blygðunarkennd margra með þessum pósti og að einhver skynsamleg viska hafi komist til skila. 😉
.
kkv, Úlfr
E-1851
01.12.2008 at 16:45 #633782Sælir
það var verið að spurja undir hvernig bíl þetta á að fara undir þetta er að fara undir runner sem er 44" dc en er líka með 80 cruiser þannig að það er spurnig hvaða breidd myndi henta báðum bílunum heyrist á mönnum að það sé verið að tala um frá 16" til 20"
01.12.2008 at 16:59 #633784ég mundi bara fara í 17-18 tommur því að það má ekki missa sig alveg í þessu, maður gæðir ekkert á að bíllin standi bara og spóli því hann hafi alltfof mikið flot og ekkert trakk. 18 væri fínt fyrir báða bílana
01.12.2008 at 17:31 #633786Mér hefur alltaf fundist að menn væru gjörsamlega að missa sig í þessum felgubreiddum fyrir ekki neitt.
Ég prófaði sama bílinn (ca 3,3 tonn) á 44" DC og felgubreiddir 14", 15" 16,25" og 18".
Niðurstaðan – engin marktækur munur á floti, en verulegur munur á aksturseiginleikum bílsins. Bílinn var bestur á 15 og 16,25"
Við erum að keira 46 og 49" bílana í dag á 17 – 20" felgum. Ég er sjálfur með 18" fyrir 49" Irok og það er að virka flott – er búinn að prófa 20" þar líka og fann nákvæmlega engan mun á floti eða drifgetu, en mikinn mun á álagi á allan búnað bílsins.
Sem sagt að ef að ég væri að smíða mér bíl í dag sem ætti að keyra á 44" DC þá myndi ég nota ca 16" breiðar felgur – óháð þyngd bíls.
Benni
01.12.2008 at 18:30 #633788ég er með 44 DC undir Patrol 2001 með 16,5 tommu breiðar stálfelgur, það hefur komið ágætlega út og legurnar hafa haldið sér fínt í þessum bíl og ég hef náð að balancera þessi dekk mjög vel.
Breiðari dekk þýða meiri mótstaða og á kraftlausum díseljeppa þá skiptir það mig meira máli en eitthvað örlítið meira flot.
kveðja
Agnar
01.12.2008 at 19:29 #633790Fyrir LC80 þá skalt þú fara í 18", felgubreidd skiptir meira máli en margir gera sér grein fyrir,takt ekkert mark á nafna hann ekur um á ford og hefur ekkert vit á þessu, sem dæmi ef þú ert á of mjóum felgum á LC80 tökum sem dæmi 16" þá fer að koma brot í þær strags í 3psi en ferð í 2 psi á 18" þetta skiptir máli. Hitt er svo að á of mjóum felgum í hliðarhalla fara dekkin að velta frekar undir sig í hallanum og þú ferð að tapa gripi og renna enn meira til þar sem lítið grip er í belgnum….Taktu 18" undir LC80 og hlíddu því bara. Ræðum þetta ekkert frekar.
01.12.2008 at 23:50 #633792miðað við að 16-17 tommur virka vel á 38" þá er 18-19" fín breidd hef reyndar vitað um 38" á 17" breiðum felgum en það er svona austurland
kv Heiðar U-119
02.12.2008 at 19:04 #633794hafa menn einhverja skoðun á því hvar er best að láta breyka fyrir sig
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.