Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › „Fegurðarsamkeppni“
This topic contains 129 replies, has 1 voice, and was last updated by Bjarki Clausen 19 years, 2 months ago.
-
CreatorTopic
-
17.12.2005 at 17:06 #196876
Hvaða deild innan 4×4 klúbbsins er með flottasta jeppan,er ekki hægt að setja af stað svona keppni þar sem hver deild sendir inn myndir af sínu „keppanda“ og gera svo skoðunarkönnun um hver er flottastur.? Bara smá hugmynd.
Kv: Kalli fagurkeri. -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
17.12.2005 at 17:12 #536246
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
ég held að Húsavíkurdeildin myndi vinna þessa keppni, þar sem að þeir eru með TVO Gaz 69 😀
17.12.2005 at 17:19 #536248Hrollur…need i say more?
[img:2nscwmd4]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/3087/20296.jpg[/img:2nscwmd4]Og ekki skemmir að eigandinn er alveg blússandi myndarlegur 😉
17.12.2005 at 17:22 #536250Því miður fyrir okkur hina þá liggur þetta svo ljóst fyrir að það þarf ekki að setja í gang neina keppni. Það er skjalfest eða að minnsta kosti varðveitt í munnlegri geymd að Hrollur er flottasti jeppi flotans. Því verður ekki breytt frekar en afstöðu himintunglanna. Austurlandsdeild vinnur þetta því fyrirfram. Það er kannski hægt að skapa spennu um 2. sætið og þá væri Gaz 69 auðvitað öflugt útspil og svo lumar Suðurnesjadeildin á efnilegum keppanda sem er rauði Overland dobblarinn sem alltaf heillar.
En hvernig er það með þessa Rússajeppa fyrir norðan og Overlandinn, eru þessi verkfæri eitthvað á fjöllum núna í seinni tíð, eða hvernig er staðan?
Kv – Skúli
17.12.2005 at 17:24 #536252Hrollurinn er inni og vinnur örugglega einhverja tittla. En það hlýtur að vera einhver samkeppni þarna úti.
KV:Kalli dómari
17.12.2005 at 17:56 #536254Gaz 69 bílarnir á Húsavík eru nu reyndar bara 1 bíll í dag og er í fullri notkun,og er alveg stórglæsilegt eintak
17.12.2005 at 17:58 #536256Lumarðu nokkuð á mynd af Rússanum?
Kv – Skúli
17.12.2005 at 18:00 #536258það er mynd af honum á síðuni hjá husavíkur deildinni og er hann gulur og fagur
17.12.2005 at 18:05 #536260Hvort á það að vera eða verklegastur. Hægt væri fyrir vefstjóra að setja upp myndasíðu þar sem kosið yrði um flottasta, ljótasta verklegasta eða bara nefna það.
kv ice
17.12.2005 at 18:08 #536262það er nu alveg sama hvað það verður kallað að það er alveg staðreynd að gömlu bílarinir hvaða tegund þeir eru svosem eru yfirhöfuð skemmtilegri og flottatari tæki en þetta nýmóðins dót allt sem er allt eins,svo er líka gaman að sjá þessa gömlu fá nýtt líf aftur og oftá á tíðum mjög vel unnir bílar,
17.12.2005 at 18:17 #536264svo á húsvíkurdeild líka einkar glæsilegan cruiser, sennilega 40.
[img:ksezpsf1]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/3991/26777.jpg[/img:ksezpsf1]
og svo rússinn;
[img:ksezpsf1]http://tunga.net/4×4/Bilar_felaga/Jonas_Russi2b.jpg[/img:ksezpsf1]kv
Baldur
17.12.2005 at 18:19 #536266Gaz sigrar alltaf togogytu
17.12.2005 at 18:26 #536268en það er bara verst að Kristján seldi sinn rússa, það var einkar mikill sjarmi fyrir þeim bíl, og sennilega töluvert léttari heldur en sá guli, þar sem hann var örugglega orðinn mjög þunnur

17.12.2005 at 18:26 #536270þessi kæmi tildæmis vel til greina ef við komum inn mynd af honum
17.12.2005 at 18:27 #536272þunnur er ekki rétta orðið til að lýsa honum buin er nær því held ég en já það var einhver sjarmi yfir honum
17.12.2005 at 19:19 #536274Mér tókst ekki að setja inn grefills myndina en skítt
með það þá fynnst mér að við ættum að lyfta þessu á aðeins hærra plan eins og Laxnes vildi, Hrollurinn er inni en "gaz" á ekki sigurvon að mínu áliti. Ég hélt að það væri lítið mál að setja inn mynd en mér tókst það ekki en það hljóta að vera menn þarna úti sem geta sett inn alvöru jeppamyndir .
PS: ef einhver er með uppskriftina af mynda innsettningu á spjallþráðinn þá má hún fljóta með.
KV:Kalli tölvukall.
17.12.2005 at 20:26 #536276ÉG get ekki sagt að Hrollur sé fagur þó svo að maður sé búinn með tvo til þrjá kassa af bjór eða vodka skiptir ekki máli og hef ég átt Rússa jeppa þannig að þar fór það atkvæði.
En það hljóta að vera til fallegri bílar en þetta hjá félagsmönnum.
Það væri alveg eins hægt að segja að toyero væri fegurðardís.
En þetta er góð hugmynd hjá Kalla gleðidís svo nú er bara að leita að rétta bílnum og vera tilbúinn með titsjú.Kveðja Kóngurinn.
17.12.2005 at 22:06 #536278Fær mitt atkvæði.
Annars finnst mér að það sé kominn tími á að setja upp sýningu á jeppum fæddum 1945-2000.
Kv-JÞJ
17.12.2005 at 22:50 #536280já ég er sammála því, setja upp sýningu með heimasmíðuðum bílum, og mín vegna þurfa þeir ekki að vera nýbónaðir á hreinir. Þetta mætti nú bara gera einhvers staðar utandyra svo kostnaður væri í lámarki.
17.12.2005 at 23:50 #536282Mér finnst þessi jeep cj8 bera af í fallegum tryllitækjum…
[img:2mfskbbq]http://www.f4x4.is/new/photoalbum/?file=oldsite/1269/7861[/img:2mfskbbq]
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/?file … /1269/7861
willys kveðjur
18.12.2005 at 00:00 #536284Þessi á vel heima í keppninni en þetta voru svolítið gamlar myndir, er hann enn svona sætur ?
Kv: Kalli ?
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
