Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › Fartölvustandur
This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Guðbrandur Örn Arnarson 17 years, 7 months ago.
-
CreatorTopic
-
07.02.2008 at 22:05 #201820
Er ekki einhver sem á myndir eða getur bent mér á myndir af því hvernig menn BÚA TIL og FESTA fartölvustand í bílinn hjá sér. Sjálfur er ég með Hilux, en það skiptir kanski ekki öllu máli hvaða bíltegund það er. Ég er búinn að leita hér undir spjallinu og þar er margt fróðlegt, en engar myndir samt.
Með von um góð viðbrögð,
Elvar
elvar@sea.is -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
07.02.2008 at 22:20 #613270
Sæll Elvar, var að enda við að senda þér póst sem gæti hjálpað þér eitthvað.
08.02.2008 at 07:45 #613272Værirðu nokkuð svo vænn að senda mér myndir líka, er að spá í einhverju svipuðu
kv
hringir@gmail.com
08.02.2008 at 10:02 #613274Miðað við viðbrögðin sem ég er búinn að fá á e-mail til mín þá eru margir sem eru að spá í hvernig þetta er gert. Það hefur hinsvegar enginn sent myndir enn…koma svo, það eru greinilega margir sem vilja sjá hvernig fartölvu er komið fyrir sómasamlega í jeppa.
kv, Elvar
08.02.2008 at 13:03 #613276Hér eru myndir hvernig ég gerði þetta.
[url=http://www.fjallabilar.com/gallery2/main.php?g2_itemId=1729:3j5dqnzl][b:3j5dqnzl]http://www.fjallabilar.com/gallery2/main.php?g2_itemId=1729[/b:3j5dqnzl][/url:3j5dqnzl]kv. Oddur
08.02.2008 at 14:10 #613278Takk Oddur
RAM-mounting system virðast hafa lausnir við þessu, það er eitthvað til af dóti hjá Aukaraf í Kópavoginum, t.d. tvöfaldur kúluliður, ekkert til í augnablikinu hjá R.Sig.
Flott síða hjá RAM, en það væri gaman að sjá fleiri heimagerðar útfærslur. Það eru 5 manns búnir að biðja mig um að láta sig hafa myndir, ef ég skyldi fá eitthvað.[url=http://www.ram-mount.com/mobileelectronics.htm:2w9dvim1][b:2w9dvim1]RAM festingar[/b:2w9dvim1][/url:2w9dvim1]
08.02.2008 at 16:04 #613280skal reyna henda inn myndum á eftir af standi sem ég smíðaði í luxann minn. standur sem var einungis 500 kall í efniskostað + smá suðu og plötuvinna.
08.02.2008 at 23:55 #613282þessi hér er ágætur nema að ég ætla að breyta honum lítllega. færa kúlufestinguna nær miðjunni á plötunni. soldið mikið vogaafl á öðrum endanum en samt reddast þetta alveg. En talvan mín er bara ALLT OF STÓR. 15,4" skjá. myndi kjósa 12-14" max. eina sem kostaði e-h pen eru kúlurnar og klemman. minnir 10 kall í R.sig.
[img:1lbgzeb8]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/5910/48370.jpg[/img:1lbgzeb8]
[url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=breytingar/5910:1lbgzeb8][b:1lbgzeb8]Slóð á fleiri myndir af stand[/b:1lbgzeb8][/url:1lbgzeb8]
27.02.2008 at 10:42 #613284R.Sigmundsson er með frábær borð og standa frá Ram
27.02.2008 at 10:49 #613286Sælir, ég er ekki búin að drífa mig útí bíl að taka mynd af mínu borði en það sem er hér á undan í þræðinum er mjög svipað, þ.e. stöng upp úr gólfinu með kúlu og RAM armur á endanum. En það sem truflaði mig við borðin frá RAM er fyrirferðin, þau eru andstyggilega þykk og enginn stuðningur við skjáinn. Fór því upp í Plexigler í Síðumúlanum og þeir smíðuðu fyrir mig borð með götum fyrir snúrur og og smá baki til að fá stuðning við skjáinn. Neðan á borðið var svo RAM kúlan skrúfuð. Að endingu voru sterkir franskir rennilásar límdir á borð og tölvu og allt helst þetta fast og fínt. Þetta gerir mjög litla fyrirferð til viðbótar við tölvuna sem reyndar mætti vera minni. Ég borgaði auk þess aðeins 3.500 kall fyrir þetta og var bara mjög sátt.
kv.
Dúkkan
27.02.2008 at 12:41 #613288Það er bara nákvæmlega ekkert flott við RAM tölvuborðin þykk ljot og klunnaleg eins og dúkkan talaði um 😀
ég skal taka mynd af mínu við tækifæri og sýna það
27.02.2008 at 13:06 #613290Hef ekið í áratug með bara franskan til að festa vélina niður. Virkar fínt. Álpaðist svo til að fara að hugsa. Fór að spá í hvað myndi gerast ef maður lenti í veltu. Eftir þetta hugsunarvesen mitt hef ég alltaf skellt einni svona farangursteyju utan um borðið og tölvuna, til að halda þessu vel föstu.
Þannig að ef ég velt núna þá slasast ég bara á fastri tölvu, ekki lausri…
kv
R.
27.02.2008 at 16:03 #613292Sæl öll
Ég sleppi fáum tækifærum til að miðla af minni reynslu varðandi fartölfustanda.
Ég smíðaði standi í hiluxinn minn úr gömlum reiðhjólum. Þ.e. sagaði af tveimur stellum og notaði hraðfestingar til að festa sæti til að festa og snúa borðinu. Það virkaði mjög vel. var vel fast og auðvelt að hreyfa. Því miður á ég engar myndir af þessu.
En.. Svo vellti ég bílnum.
Ég hafði ekki ráðgert það frekar en aðrir, þannig að ég hafði heldur ekki hugsað mikið út í hvernig búnaðurinn færi í veltu. Farþeginn minn rakst í tölvuborðið sem var úr plexi gleri og braut það. Hann skrámaðist talsvert við það, en fyrir einhverja lukku skarst hann ekki. Tölvan losnaði úr festingunum, þó hún væri fest við borðið með tveimur teygjum úr bílslöngum. Hún kastaðist aftur í bílinn og brotnaði í klessu.það sem fyrir mér vakir er að benda fólki á að ganga eins tryggilega frá tölvunum og hægt er. festið borðin vel, og reynið að staðsetja þau þannig að engin leið sé að rekast í það ef eitthvað kemur fyrir. Festið einnig tölvuna tryggilega við borðið. forðist líka eins og hægt er að hafa hvöss horn eða brúnir sem geta skorið á borðunum.
Kv.
Emil
07.03.2008 at 00:41 #613294Ég var lengi búinn að velta því fyrir mér hvernig mætti setja fartölvufestingu í bílinn án þess að hún tæki of mikið pláss. Lausnin var sú að setja Ram kúlu inn í mælaborð og sjóða hana fasta á röri.
Sjá myndir á: [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=breytingar/5973:3l8w7lr6][b:3l8w7lr6]Fartölvufesting[/b:3l8w7lr6][/url:3l8w7lr6]
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
