FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Eyjafjarðarleið

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Eyjafjarðarleið

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 20 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 15.05.2004 at 01:02 #194359
    Profile photo of
    Anonymous

    Sæl/ir

    Ég leit inn að Hólsgerði í gær bara svona til að athuga hvernig statusinn er. Vegurinn er að sögn mjög blautur enn og að sjálfsögðu lokaður allri umferð. Þar sem ég hef aldrei farið þessa leið vildi ég varpa fram nokkrum spurningum hér á spjallið.

    Hvað er lengi verið að fara leiðina frá Hólsgerði og inn í Laugarfell.

    Er nokkuð mál að fara þessa leið á jeppling ( Toyota RAV4 Suzuki Vitara Subaru Forester osfv)

    Kv

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 15.05.2004 at 03:38 #502361
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Sæll.

    Þú er eflaust hátt í 2 tíma þarna uppúr og jafnvel rúmlega.

    Er ekki viss um að það sé mjög gáfað að fara þarna núna, er ekki viss um að það sé einusinni hækt þar sem safnast alltf í skafla þarna á einum 2 stöðum ef ég man rétt og fara þeir venjulega ekki fyrren í júní.
    Þessir skaflar eru þannig að þú lendir í hliðarhalla og er frekar bratt gil sem tekur væntanlega ólbíðlega á móti þér ef þú rennur af stað þannig að það getur verið mjög varasamt að flækjast þarna um ef aðstæður eru þannig.
    Ég veit annars ekkert hvernig þetta er þarna innfrá núna.

    Annars öllu venjulega (að sumri til!) þá ætti ekki að vera mikið mál að fara þessa leið á þeim bílium sem þú nefnir

    Kv.
    Benni





    15.05.2004 at 13:51 #502366
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það stóð nú aldrei til að fara núna enda er leiðin lokuð og öll umferð Bönnuð. Ég var að hugsa um sumarið. En það borgar sig þá að fara Bárðardalinn til baka ?





    15.05.2004 at 14:50 #502369
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Sæll. Sumarið 2002 fór ég þessa leið á Subaru impressa og átti ekki í neinum vandræðum með það. Fór hringinn, sem sagt upp úr Bárðardal og upp í Laugarfell og þaðan niður í Eyjafjörð. Kúnstin er bara að fara nógu varlega og tekur ferðin þetta sex til átta tíma eftir því hvernig ekið er. Einnig er nóg að skoða á leiðinni. Ég fór þetta í byrjun Ágúst.





    16.05.2004 at 20:19 #502373
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    .. upp í Laugafell er fær flestum bílum eftir að Vegagerðin er búin að lýsa hana opna. Með varkárni má fara þetta á flestum bílum. Kannski ekki amerísku teppi, og þó! Á öllum fólksbílum þarf þó að beita varkárni á svona leiðum. Hinsvegar ef menn ætla vestur um og ofan í Skagafjörð þarf að fara yfir straumvötn, fyrst Laugafellskvíslina, síðan Hnjúkskvísl og Strangalæk. Sé allt með felldu á að vera hægt að fara þetta með gætni á Impreza til dæmis, en þó varla einbíla. Það koma þó stundum "skot" í Hnjúkskvíslina, bæði í rigningatíð og eins kom það fyrir hér í "den tid" að það tæmdi sig smá lón í kverkinni uppi við Klakksjökul/Háöldu og þá gat kvíslin orðið ófær öllum bílum í dagstund. Líklega hafa aðstæður breyst uppi við jökul síðari árin því að ég hef ekki frétt af svoleiðis flóðum í allmörg ár. Nú, ef menn ætla venjulega leið suður á Sand frá Laugarfelli, þarf að fara yfir nokkra læki, þar á meðal Laugarfellskvíslina, sem eru ekki farartálmi alla jafna, en svo er það Bergvatnskvíslin, sem kemur úr hálendinu austan Laugafells og er í raun efsta upptakakvísl Þjórsár. Í henni er dálítið vatn en góður botn. Hinsvegar á hún það til að vaxa í rigningatíð og getur þá orðið hættuleg, eins og dæmin sanna. En eins og Hrafnkell í Borgarnesi segir hér á undan, "kúnstin er bara að fara nógu varlega" og það á reyndar við hvert sem við förum og það þurfum við alltaf að hafa í huga.





    16.05.2004 at 20:21 #502378
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Þarna var ég náttúrulega að miða við að farið væri aftur til norðurs við Fjórðungsvatn/öldu og ofan í Bárðardal aftur. Ef menn fara áfram suður, eru náttúrulega blessaðar Hagakvíslarnar og JÖkuldalskvíslin sem þarf að fara yfir eins og flestir hér þekkja. Hugsunarleysi að taka þetta ekki fram áðan.
    kv. Þorkell G.





    16.05.2004 at 22:39 #502381
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir.
    Þetta er mjög greinargóðar upplýsingar sem ég hef fengið hér á sjallinu. Í júní eða júlí verður farið upp á Laugarfell á Econoline og Forester.

    Kv BÞB





    17.06.2004 at 19:30 #502384
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Jæja þá er kominn réttur mánuður og það er búið að opna inn í Laugarfell. Ég held að þetta hljóti að vera með fyrsta móti. Eða hvað segið þið ?
    BÞB





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.