FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Eyjafjarðardeild … grín og glens :-)

by Halldór Gunnlaugur Hauksson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Eyjafjarðardeild … grín og glens :-)

This topic contains 41 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson Halldór Gunnlaugur Hauksson 13 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 10.10.2011 at 21:08 #220746
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant

    Nú verður fjör … Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar er það sönn ánægja að tilkynna fyrsta alvöru skemmtikvöld starfsársins. Við byrjum á að hittast í Bögglageymslunni, sem er í Gilinu, kl. 20:00 föstudagskvöldið 14. oktober. Nú er málið að fara í sitt næstfínasta púss og taka gleðina með í tösku. Við byrjum á vínkynningu, förum síðan í keilu og förum eftir það á afvikinn stað til að ræða hvort Amerískt drasl sé betra en það Japanska eða hvort Nissan eða Toyota sé málið. Gott væri að hafa með sér, öxul í Toyotu, vél í Patrol, tappasett, krossa fyrir Ameríska og lausann pening, ca. 2.000- kr., til að styðja deildina í smá útlögðum kostnaði.
    Allar líkur eru á að langferðabifreið eða stuttferðabifreiðar verði notaðar til að skutla mis sjálfbjarga félögum á milli staða.
    Endilega skrá sig þeir sem ætla koma því fleiri komast að en vilja.

    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4.

    Halli G
    Halla
    Eiður
    Raggi

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 21 through 40 (of 41 total)
← 1 2 3 →
  • Author
    Replies
  • 12.10.2011 at 22:10 #739257
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Það verður örugglega slegist á þessu kvöldi og munu lögregla og sjúkraflutningamenn vera í viðbragðstöðu þetta kvöld.

    Uppfærður listi:
    Bubbi Skálanefndarformaður
    Halli G
    Halla
    Eisi
    Raggi
    Erlingur
    Jói Hauks
    Elías
    Vésteinn
    Tryggvi (mikli fengur)
    Haukur Stefáns ( mikli, mikli fengur)
    Mási Dalvík
    Trausti Bergland
    Óskar Jóns





    12.10.2011 at 22:18 #739259
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Hér kemur samantekt frá virtum bílablöðum sem við gætum aðeins rætt um?

    Meðalending Stýrisenda í km:
    Ford F 250-7,3 Toyota Landcruser-4,2 Dodge Ram 2500-5,9 Nissan Patrol-2,8 Silverado 2500-6,5
    85.000————224.000—————-102.400—————-356.000————69.000

    Meðalending hjöruliðskrossa í drifsköftum í km:
    Ford F 250 Toyota Landcruser Dodge Ram 2500 Nissan Patrol Silverado 2500
    168.000—– 465.000———- 218.200———–586.100——–165.100

    Bilanir í rafkerfi meðaltal 100 bíla 1996 – 2002: (1 minnstar bilanir / 100 flestar bilanir)
    Ford F 250 Toyota Landcruser Dodge Ram 2500 Nissan Patrol Silverado 2500
    65…………56……………….52………………4……………….87





    13.10.2011 at 00:30 #739261
    Profile photo of Hafþór Jörundsson
    Hafþór Jörundsson
    Participant
    • Umræður: 67
    • Svör: 1736

    Já, það er sko alveg rétt hjá þér Elías sérstaklega gaman að ræða… hedd í (patrol) og hásingar í (toyotu)





    13.10.2011 at 09:13 #739263
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Þess ber að geta að ofangreidar tölur eiga aðeins við Patrola með Hiclone.

    kv
    Rúnar.





    13.10.2011 at 10:46 #739265
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    [quote="Elías":ko5wjjdm]Hér kemur samantekt frá virtum bílablöðum sem við gætum aðeins rætt um?

    Meðalending Stýrisenda í km:
    Ford F 250-7,3 Toyota Landcruser-4,2 Dodge Ram 2500-5,9 Nissan Patrol-2,8 Silverado 2500-6,5
    85.000————224.000—————-102.400—————-356.000————69.000

    Meðalending hjöruliðskrossa í drifsköftum í km:
    Ford F 250 Toyota Landcruser Dodge Ram 2500 Nissan Patrol Silverado 2500
    168.000—– 465.000———- 218.200———–586.100——–165.100

    Bilanir í rafkerfi meðaltal 100 bíla 1996 – 2002: (1 minnstar bilanir / 100 flestar bilanir)
    Ford F 250 Toyota Landcruser Dodge Ram 2500 Nissan Patrol Silverado 2500
    65…………56……………….52………………4……………….87[/quote:ko5wjjdm]

    Það er aðeins ein athugasemd sem ég geri við þessa samantekt hjá þér Elli minn … hvernig var hægt að aka Patrol svona marga kílómetra??? Samkvæmt mínum upplýsingum þá er Patrol annaðhvort dáinn úr ryði eða með ónýta vél í kringum 200.000- km :-)





    13.10.2011 at 18:35 #739267
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Halli, Toyotan og Patrolinn gleymdust um borð í áætlunar- fraktskipi í 15 ár… og voru dregnir restina!

    Best regards (sko á amerísku):
    Erlingur Harðar





    13.10.2011 at 21:20 #739269
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Erlingur minn.

    Þú ert að ruglast á Flóða-Subaru frá Finnlandi sem þú áttir, og að sjálfsögðu seldir.
    Nei, nú sést best hvað Halli Gulli hefur lítið vit á bílum, ryðga, hedd o.s.frv. þetta eru einkenni amerískra bíla sem m.a. hann átti sem hét að vísu Toyota Tacoma, enda búinn að selja. Við þessir ekta jeppamenn hlúum að okkar bílum, alltaf klárir í ferð og aldrei klikkar neitt. (7-9-13). Alltaf á sömu bílunum, þurfum ekki að skipta til að vera jafningjar í drifgetu og við höfum ánægju af jeppaferðum.

    Sannanir eru allt í kringum ykkur. Jói Hauks á Trooper, Vésteinn á Mússó, Elli Þorsteins á Patrol, Haukarnir báðir á Toyota, Halli á Hauganesi, formaðurinn, og Stebbi Stef á Land-Rover, Stórhríðargvendur, Óskar Jóns og Mási á Toyotu og enginn af þessum bílum er til sölu. —– Af hverju? Engin löngun í Amerískt, nennum ekki að gera við stanslaust. Ameriskt er bara Amerískt og ekkert sérstakt við það.

    Að öðru. Má koma með 19 ára börn með sér, ef þau verða tvítug á árinu?

    Kveðja,
    Elli.





    13.10.2011 at 21:45 #739271
    Profile photo of Vésteinn Finnsson
    Vésteinn Finnsson
    Participant
    • Umræður: 5
    • Svör: 65

    [quote="erlingur":262dv9gi]Nú, þá vitum við það, Musso gengur á bjór! Ekki að undra að hann er alltaf tómur hjá honum baukurinn, hellir því öllu á Musso-skrattann of samt drífur hann ekki neitt.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar[/quote:262dv9gi]

    Erlingur mínn ég sagði aldrei að ég setti ropvatn á Mussoinn enda er það sull bara fyrir karla sem vilja tjá öðrum körlum kvenlegar tilfinningar sínar ég held að lestrar skilningur þinn standist ekki grunnskólaprófið enda hangir þú í tölvu alla daga til bráðabirgða er sennilega best að miða útivistar tíma þinn við kl 2000 ég reyni svo að ná í Möggu Pálu skólasystir eftir helgina og fæ hana til að líta á þig
    ein lína af brosköllum
    kv vesteinn
    við Elías vorum bara í kostnaðar útreikningum





    13.10.2011 at 22:21 #739273
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Jæja strákar… Hér er smá glaðningur fyrir ykkur http://www.youtube.com/watch?v=_S70oTnsucU
    Komið með svona með Patrol eða Toyotu framanvið járnbrautarvagn ..

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    13.10.2011 at 22:22 #739275
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Sko… ég nefni ekki Musso því að ég VEIT að það video er ekki til.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    13.10.2011 at 22:31 #739277
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Erlingur minn.

    Mér sýndist Fordinn gjörsamlega "skíta" á sig þarna í restina.
    Patrol hefur aldrei "sótað" jafn hressilega og þessi vangefni Ford sem þú vitnar til.

    Hvernig er það með "barnanefndarnefnd", ætla þeir ekki svara spurningum vegna breyttra áherslna klúbbsins?

    Kveðja,
    Elli.





    13.10.2011 at 22:56 #739279
    Profile photo of Sindri Thorlacius
    Sindri Thorlacius
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 542

    ætla að skrá mig hér með en gæti verið að ég komist ekki

    kv sindri





    13.10.2011 at 23:17 #739281
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Elli minn kæri. Stóð ekki til að Benz væða húddið á Pattanum svo að hann kæmist skammlaust upp gilið, þó ekki væri meira?

    Bíll sem reykir er bara "Smokin hot" (nema Patrol og Toyota og Mússó og…)

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    14.10.2011 at 00:16 #739283
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Já nei, svona segir maður ekki um hvaða Patrol sem er.
    Hér með lýsi ég því yfir að þó að ég tali illa um Patrol þá á það ekki við Pattann hans Ella. Dettur ekki í hug að gera lítið úr þeim bíl og bílstjóra og hana nú!

    Hittumst hressir að vanda á morgun.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar

    Það stendur þó það sem sagt er um Toyotur og Musso já og e.t.v. fleiri bíla (nema ég eigi svoleiðins bíl þann daginn auðvitað, sko nema Musso).





    14.10.2011 at 01:27 #739285
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    Fordinn Erlings virtist reykja aðeins meira en þessi Landi:
    [youtube:ve3405s0]http://www.youtube.com/watch?v=0jhuKLrjJLg[/youtube:ve3405s0]





    14.10.2011 at 07:59 #739287
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Erlingur minnnnnn hverskonar rugl er á þér
    ég man ekki betur en að venjulegir íslendingar
    eins og Jón Páll,Hjalti Urssus og Magnús Ver hafi
    dergið svona tæki með handafli,en Fordinn er að skíta
    á sig við að draga þetta.

    Kv
    Jói Hauks

    ps.Munið að hvetja menn til að skrá sig.
    Ekki bara að bulla um Ameríkst drasl.





    14.10.2011 at 10:05 #739289
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Like á síðasta innlegg Jóa :-) @ Elías: Ef þú villt hafa barn undir lögaldri hangandi með þér í kvöld þá er það í fínu lagi. Eina sem þú þarft að hafa í huga er að bera ábyrgð á þeim einstaklingi, vera edrú og sami einstaklingur má ekki fá afgreiðslu eða drekka áfengi heldur :-( En hvað varðar áherslur klúbbsins eða öllu heldur bara skemmtinefndar að þá á að gera tilraun í eitt skipti og hafa fjölskylduvæna skemmtun. Ef sú tilraun mistekst þá verður tekinn upp gamall siður og almenn drykkja fær að njóta sín :-)
    Varðandi bílapælingar að þá vil ég að það komi fram að ég er búinn að eiga 2 fjallajeppa frá árinu 1992 sem báðir hafa reynst frábærlega og baksýnisspeglar þeirra beggja, þegar ég lét þá frá mér, voru með stimplaða mynd af frammenda Patrols og nokkura Amerískra bíla sökum hversu oft þeir voru þar í mynd. Núna er ég búinn að fá mér slyddujeppa af TOYOTA Land Cruiser gerð sem reykir ekki þrátt fyrir að brenna grút :-)

    En djö…. hlakkar mig að hitta ykkur grjónapungana í kvöld :-)





    14.10.2011 at 12:27 #739291
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir

    Nú hefur mér tekist að landa en einum stór laxinum.
    Því að nú skrái ég hann Gunna Rúnars.
    Þetta geri ég þrátt fyrir að Gunni keyri á FORD en
    hvað gerir maður ekki fyrir Skemmtinefndina.

    Kv
    Jói Hauks





    15.10.2011 at 00:08 #739293
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Kominn heim… Gott að hafa það!

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    15.10.2011 at 09:47 #739295
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    [quote="erlingur":31ngcs3c]Kominn heim… Gott að hafa það!

    Kveðja:
    Erlingur Harðar[/quote:31ngcs3c]

    Vá og klukkan orðin 00.08 þvílíkt úthald.

    Takk fyrir kvöldið

    Kv
    Jói Hauks





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 21 through 40 (of 41 total)
← 1 2 3 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.