FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Eyjafjarðardeild dagsferð sept

by Björn Pálsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Eyjafjarðardeild dagsferð sept

This topic contains 17 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Elías Þorsteinsson Elías Þorsteinsson 14 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 07.09.2010 at 12:58 #214382
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant

    Næsta dagsferð verður kynningarferð Eyjafjarðardeildarinnar í Réttartorfu, laugardaginn 11. september kl. 9. Öllum jeppamönnum á Eyjafjarðarsvæðinu er boðið að slást í för.
    kv
    ferðanefnd og skemmtinefnd

  • Creator
    Topic
Viewing 17 replies - 1 through 17 (of 17 total)
  • Author
    Replies
  • 07.09.2010 at 15:29 #702162
    Profile photo of Stefán Höskuldsson
    Stefán Höskuldsson
    Participant
    • Umræður: 63
    • Svör: 530

    Ánægður með þig Bjössi, en eigum við ekki líka að plögg fundinum i kvöld? Hvetja alla til að koma sem minnsta áhuga hafa á jeppum og ferðamensku. Viltu svo setja inn ferðaplan vetrarins, svona fyrir okku sem eru fjarverandi! Svona eftir fundinn bara, kv Stefán





    07.09.2010 at 23:24 #702164
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sælir félagar í ferðanefnd og skemmtinefnd.

    Á að mæta kl 09:00 eða verður brottför frá Leiru kl 09:00?
    Verður boðið upp á fjallagrillpylsur og gos?
    Þurfa menn að hafa nesti með sér?
    Hver er lágmarksdekkjastærð á bílum til að komast inn í Réttartorfu?
    Hvenær er áætlað að komið verði aftur til Akureyrar?
    Þurfa menn að hafa með sér hlý föt?
    Mega áhugamenn annarsstaðar frá en úr Eyjafirði koma með?

    Bestu kveðjur,
    Elli.





    08.09.2010 at 00:02 #702166
    Profile photo of Hafþór Jörundsson
    Hafþór Jörundsson
    Participant
    • Umræður: 67
    • Svör: 1736

    Hámarksstærð dekkja fer eftir vélarstærð… t.d. sértu með 2.8 Lítra vél þá 28" dekk… þetta skal virt og gert svo allir geti haldið sama hraða.





    08.09.2010 at 03:48 #702168
    Profile photo of Stefán Höskuldsson
    Stefán Höskuldsson
    Participant
    • Umræður: 63
    • Svör: 530

    Sælir.
    Elli, ertu í spurningakeppni? Hehe. Lámarksstærð dekkja, er nokkuð að færð inneftir núna? Er það bara ekki það minnsta sem hægt er að koma undir, hámarksstærð er verra við að eiga, þarf ég þá að hámarka mig við 57", verandi með 5,7 lítra vél? Kemst að vísu ekki með, því miður, er á sjónum eins og endranær, en kemst vonandi með í næstu ferð!

    kv, Stefán





    08.09.2010 at 08:02 #702170
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sæll Stebbi.

    Það eru ekki allir sem vita hvað þarf til að fara svona ferð.
    Þetta er "[b:4xf3a7j4]kynningarferð[/b:4xf3a7j4]"

    kv.
    Elli.





    08.09.2010 at 09:00 #702172
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    Brottför frá Leiru kl 9 á laugardagsmorgun. Grillaðar verða fjallagrillpylsur í Réttartorfu. Ferðin er fær öllum jeppum (við erum þá ekki að tala um jepplinga). Fatnaður eftir veðri.
    kv
    Bj





    08.09.2010 at 11:43 #702174
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir

    Varðandi spurningalistann frá Ella þá upplýsist eftirfarandi:

    1.Það er miðað við brottför frá Leirunesti um kl.09.00
    2.Það verður boðið uppá pylsur og gos (þeir sem vilja meira taka með sér nesti)
    3.Þetta er fært öllum jeppum,dekkjastærð skiptir ekki máli.(óbreyttir jeppar)
    4.Heimkoma verður um ca.kl.16.00 en það fer líka eftir veðri.
    5.Held að allir viti hvernig á að klæða sig í svona ferð.(gott að vera viðbúin öllu)
    6.Það eru allir áhuga-menn/konur um ferðafrelsi og jeppamensku velkomnir

    KV
    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4





    08.09.2010 at 13:25 #702176
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sælir.

    Var að fá fyrirspurn um hvort félagsmenn sem fara uppeftir hefðu tök á að taka farþega.
    Í þessu tilfelli er um 2 að ræða, gætu þess vegna verið í sitt hvorum bílnum.

    Bestu kveðjur
    Elli.





    08.09.2010 at 22:11 #702178
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Sælir. Þetta er alveg rétt hjá Ella, það er auðvitað ekkert sjálfgefið í þessu. Svo mætti koma stutt leiðarlýsing og jafnvel hve langt þetta er í kílómetrum!
    En þar sem ég á ekki 72" dekk þá held ég mig bara heima.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    08.09.2010 at 22:31 #702180
    Profile photo of Sindri Thorlacius
    Sindri Thorlacius
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 542

    sælir ég væri alveg til í að koma með enn kemst ekki á mínum bíl væri ekki hægt að koma með eikverjum í bíl





    09.09.2010 at 16:35 #702182
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir

    Vill en og aftur hvetja alla félaga Eyjafjarðardeildar 4×4 til að
    koma með í Kynningarferð laugardaginn 11.sept og sýna að
    það sé einhver áhugi á félagsstarfinu.
    Þetta er flott ferð til að taka alla fjölskylduna með og aðra sem
    hafa áhuga á jeppaferðum.

    Kv
    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4

    PS.Erlingur er vélin hjá þér ekki 7,3l og þurfa þá dekkin ekki að vera 73".
    Og ætlar þú að vera félagsskítur þessa helgi.





    09.09.2010 at 20:01 #702184
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Já Jói, ég ætla bara að vera heima um helgina. Búinn að ferðast þokkalega í sumar. Fór á suðvesturland, Borgarfjörð eystri og austfirðina flesta, Lónsöræfi, Vonarskarð og síðast í Kverkfjöll og þú komst aldrei með!
    En dekkin já, 72" er nóg, maður er ekkert að gera sig breiðann fyrir eina tommu til eða frá.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    09.09.2010 at 22:06 #702186
    Profile photo of Hafþór Jörundsson
    Hafþór Jörundsson
    Participant
    • Umræður: 67
    • Svör: 1736

    Er einhver "hundur" í mönnunum með saumavélarnar hehehe :)





    10.09.2010 at 17:16 #702188
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    Kynningarferðin verður farin frá [b:1fndcwtg]Shell við Hörgárbraut [/b:1fndcwtg]kl 9.00 í fyrramálið

    vonumst til að sjá sem flesta

    ferðanefnd og skemmtinefnd





    10.09.2010 at 19:30 #702190
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir

    [b:nful7mej]Kynningarferðin verður farin frá Shell við Hörgárbraut kl 9.00 í fyrramálið[/b:nful7mej]

    [b:nful7mej]Já það er smá breyting á brottfarastað en það á sér einfalda skýringu.[/b:nful7mej]
    [b:nful7mej]Vill hvetja alla félagsmenn til að koma með í þessa ferð,það verða einhverjir
    að borða þessar 200 pylsur sem við erum búnir að kaupa,þetta verður flott
    ferð í góðu veðri og hún er fyrir alla fjölskylduna.[/b:nful7mej]

    Kv
    Skemmtinefnd og Ferðanefnd





    21.09.2010 at 12:15 #702192
    Profile photo of Stefán Höskuldsson
    Stefán Höskuldsson
    Participant
    • Umræður: 63
    • Svör: 530

    Sælir félagar
    Í tilefni þess að það er verið að fara í vinuferð í Réttartorfuna langar mig að poppa þessu þræði upp og spurja hvernig til tókst, fjöldi og almen hamingja, jafnvel myndir?

    Einn sem situr fastur úti á sjó og langar mikið að komast með! Stefán





    21.09.2010 at 16:33 #702194
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sæll Stebbi.

    Þetta var fín ferð þó að fleiri hefðu mátt koma með. Það gengu að ég held 4 í klúbbinn í þessari ferð. Fjöldi var á bilinu 25-30 og grillað var að hætti fjallamanna.
    Skruppum á leiðinni uppeftir niður að Aldeyjarfossi í einstakri veðurblíðu. Ég kann ekki að setja inn myndir en eflaust eru myndir í albúmi frá Bjössa jr.
    Við vorum þrír sem fórum heim á sunnudagskvöld en við notuðum tímann til að mæla hitastig, rennslismæla og taka vatnssýni úr volgu uppsprettunum inn við Sandmúladalsá og við Hafurstaðasíkið.

    Bestu kveðjur
    Elli.





  • Author
    Replies
Viewing 17 replies - 1 through 17 (of 17 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.