FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Eyjafjarðardeild dagsferð

by Björn Pálsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Eyjafjarðardeild dagsferð

This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Björn Pálsson Björn Pálsson 14 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 13.02.2011 at 20:42 #217414
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant

    Dagsferð á þorrrablóti verður farin laugardaginn 19. febrúar

    Brottför frá Shell við Hörgárbraut kl 08.30 og frá Hótel Seli á Skútustöðum kl 10

    Ekið verður að Þeistareykjum frá Hólasandi, að Stóra og Litla Víti, að Kröfluvirkjun og endað í Jarðböðunum áður en haldið verður á þorrablótið eða heim á leið.

    Gott væri að menn láti vita af hvorum staðnum þeir slást í hópinn með svari á þræði þesssum

    Ferðanefnd Eyjafjarðardeildar

  • Creator
    Topic
Viewing 14 replies - 1 through 14 (of 14 total)
  • Author
    Replies
  • 13.02.2011 at 20:43 #719992
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    Halldór Halldórsson (Akureyri) ætlar í þessa ferð og leggur af stað frá Akureyri





    13.02.2011 at 22:59 #719994
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Óeiginleg dagsferð jeppalausra verður farin á sama tíma og er ferðaplan sem hér segir: Mývatn hringað, rangsælis. Byrjað á að keyra í Höfða og Höfði skoðaður, myndataka og fleira. Síðan verður farið í kaffi eða hádegismat í Reykjahlíð eftir því hvernig færið verður. Síðan er förinni heitið á Fuglasafn Sigurgeirs í Neslöndum og það skoðað. Auðvitað stoppað á leiðinni og almennt dýralíf myndað í bak og fyrir. Þaðan er ekið fyrir Mývatn og staldrað við í Seli og drukkið kaffi og tekinn "kostur" fyrir Jarðböðin en þar endar eiginleg dagskrá í óeiginlegri ferð okkar.
    Þáttakendur skulu vera vel klæddir en alls ekki til vetrarferða heldur í jakkafötum og með bindi. Helst þannig að hægt sé að njóta hlýjunnar frá bensíndrifnu miðstöðinni í bílnum.
    Talstöðvar, spottar, loftmælar og annað ónauðsynlegt dót er bannað, samskiptamáti er GSM.
    Skráning er nauðsynleg hjá undirrituðum.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar

    PS: Bjössi og félagar munu líklega ekki mæta í Jarðböðin vegna ófærðar á þeirra leið, það er ef þeir snúa ekki undan.





    14.02.2011 at 00:38 #719996
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Flott dagskrá hjá ykkur á malbiks druslunum.

    En eftir stendur sú spurning sem brennur á öllum (sérstaklega konum)
    Ætlar Erlingur [b:1k0dqzsq]GILZ[/b:1k0dqzsq] Harðarson að pósa í jarðböðunum.

    Kv
    Jói Hauks
    (sem fylgir ferðanefnd fram í rauðan dauðan , eða styðstu leið í jarðböðin)





    14.02.2011 at 11:34 #719998
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Jói, það má ekki. Þið bumbulíusarnir móðgist!
    Hvernig er þetta annars með félagskapinn, ætla allir að vera heima og sleikja sárin eða hvað. Hvernig er með þessa bændur, ætla þeir ekkert að mæta?

    Kveðja:
    Erlingur [i:2rsgsiak][size=60:2rsgsiak](jeppalausi)[/size:2rsgsiak][/i:2rsgsiak] Harðar





    14.02.2011 at 13:12 #720000
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    [b:2mb4b765]Já það er satt Erlingur það er eins og allur
    vindur sé farinn úr félagsmönnum.
    Þeir hvorki komast á þorrablót né í dagsferð.
    Kannski við ættum bara að auglýsa gönguferð
    á Glerártorgi þá kannski verða einhver viðbrögð.
    (nema kreppan sé ástæðan.)

    kv
    Jói Hauks[/b:2mb4b765]





    14.02.2011 at 19:46 #720002
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    Þátttakendum í dagsferðinni fjölgar stöðugt, eftirfarandi menn hafa tilkynnt sig:
    Halldór Halldórsson (Ak)
    Jóhann Hauksson (Mýv)
    Gunnar Rúnarsson(Mýv)
    Haukur Stefánsson (Mýv)





    15.02.2011 at 00:15 #720004
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Er ekki eitthvað tilboð á Bjargi núna, endurhæfing fyrir aldraða, ráðalausa, úrsérgengnajeppamenn eitthvað…
    Sagan segir að Erlingur hafi selt jeppann vegna þess að hann komst ekki upp í hann óstuddur orðið.
    Sjáið Elías Þ. komin í fattla á báðum…verulega óþekkir í stýri þessir Datsúnar.
    Lifið heilir.

    ES.
    Hver á að hjálpa Ella Þ úr og í nærfötin í Jarðböðunum?





    15.02.2011 at 17:55 #720006
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir

    Benni það er nú þannig að það er miklu styttra síðan Erlingur sást á
    fjöllum heldur en þú,það er að verða komin heil kynslóð í klúbbinn sem
    hefur aldrei séð þig.
    Þú kemur bara á Nissan á laugardaginn svo að við getum rifjað upp hvað
    þú ert glæsilegur (ekki að grínast).

    Við félagarnir komum til með að hjálpa Ella úr og í þegar við förum
    í Jarðböðin með glöðu geði, til þess eru félagar.

    Nei Benni það eru ekki þeir eldri sem draga lappirnar í því að mæta í
    dagsferðina og á þorrablót það eru þeir yngri ,það þarf að taka þá af Rítalíni
    svo að þeir hressist.

    Kv
    Jói Hauks





    15.02.2011 at 18:02 #720008
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Benni lagast mikið þegar hann kemst á Patrol, eða hvað haldið þið. En Benni, ég komst og kemst með ágætum upp í minn bíl, enda fékk ég forláta stiga að gjöf frá félögum mínum til þess.
    Það er rétt hjá Jóa að ungliðarnir í klúbbnum eru með öllu ónýtir og ættu allir að auka rítalín skammtinn sinn. Ekki veit ég hvernig þetta endar þegar "unga" kynslóðin á að taka við og ekkert gerist.
    Ég veit um nokkra "unga" jeppamenn sem vinna að því hörðum höndum að moka snjóinn í burtu loksins þegar hann kemur!

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    15.02.2011 at 18:41 #720010
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Þið verðið eiginlega að fara að ákveða ykkur, á að auka Rítalíni skamtin eða minka hann?

    Heil kynnslóð já…er þetta svona langt síðan…





    16.02.2011 at 21:15 #720012
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Frekar finnst manni léleg þáttaka í dagsferðina á laugardaginn
    aðeins 1 sem ætlara að fara frá Aey.
    Það er ekki gaman fyrir þá sem starfa í ferðanefnd að skipuleggja
    ferðir og svo mætir aldrei nein.
    Ætllar ferðanefndi ekki einu sinni að mæta ?

    Það er eitthvað mjög bogið við það að á sama tíma og þeir sunnan heiða
    eru að skipuleggja tvær ferðir og eru að drukkna í fjölda þáttakenda
    þá tekst okkur að fá 1 í dagsferð.Þetta hefur verði svona í öllum
    dagsferðum í vetur,2-4 bílar.
    Það geta svo verði margar skýringar á þessu þátttökuleysi.

    Kv
    Jói Hauks





    16.02.2011 at 23:07 #720014
    Profile photo of Halldór
    Halldór
    Participant
    • Umræður: 3
    • Svör: 72

    Sæll Jói.
    Sá sem er skráður frá Akureyri er reyndar í ferðanefndinni, nú skora ég á fleiri að drífa sig með og taka með sér nesti og sundföt :)





    16.02.2011 at 23:23 #720016
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Komdu sæll og blessaður Jói.

    Já ég er alveg hjartanlega sammála þér.

    Hvað er í gangi hjá klúbbnum?
    Eru ferðirnar ekki eftir höfði hvers og eins og þess vegna mæta menn ekki?
    Eru ferðirnar ekki nógu spennandi?
    Þarf ekki ferðanefnd sem gæti dregið félaga með sér og verið í fararbroddi ferða?
    Eru menn að ferðast án þess að láta vita?
    Er ekki klúbburinn til að menn komi saman og ferðist?
    Hvernig eiga samtök sem þessi, Ey 4×4 að starfa ef menn fara út um víðan völl og taka ekki tillit til félagsskaparins?

    Á félagsfundum í vetur mæta menn fleiri en nokkru sinni fyrr, en þegar að ferðum kemur þá eru engir að ferðast, Hvað er í gangi?

    Bestu kveðjur,
    Elli.





    17.02.2011 at 21:09 #720018
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    Halldór Halldórsson (Ak)
    Jóhann Hauksson (Mýv)
    Gunnar Rúnarsson(Mýv)
    Haukur Stefánsson (Mýv)
    Kristinn Ásmundsson (Höfði)
    Vésteinn (Ak)
    Sölvi (Ak)

    Enn er pláss í ferðina, takmarkast við 200 bíla





  • Author
    Replies
Viewing 14 replies - 1 through 14 (of 14 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.