Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Eyjafjarðardeild bjórkvöld
This topic contains 16 replies, has 1 voice, and was last updated by Erlingur Harðarson 15 years, 4 months ago.
-
CreatorTopic
-
09.06.2010 at 11:25 #213132
Sælir félagar
Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar ætlar að vera með bjórkvöld á næsta
föstudagskvöld 11.júní ef að einhver áhugi er hjá félögum.
Það yrði haldið í Straumrásarsalnum kl.20.30Þannig að það væri gott ef félagsmenn myndu tilkynna um þáttöku hér og
eins ef að þeir vita um einhverja sem ætla að mæta.KV
Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildarps.Jói Hauks mætir
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
09.06.2010 at 21:06 #695788
Sæll jói
ég ætla að reyna að mæta ehvað en það er so mikið að gera í skemtanalífinu þessa dagana að ég er víst bókaður annar staðar fyrirpart kvölds
KV Raggi
09.06.2010 at 22:08 #695790ég er klár í þetta mæti
kv Eiður
09.06.2010 at 22:29 #695792Já það væri gaman að mæta hjá ykkur og skoða botn/a ……….
kv Jói Þóris
09.06.2010 at 23:02 #695794Magnað
10.06.2010 at 14:20 #695796saelir.
Myndi vilja koma en er staddur i Russlandi sem stendur.
Fae mer bara nokkra her i stadinn
Kvedja fra landi UAZ
Trausti
10.06.2010 at 17:57 #695798Sælir félagar
Jæja mér sýnist á öllu að það verði rétt svo næg mæting
en ég er búin að fá Straumrásarsalinn lánaðan þannig að
húsið opnar kl.20.30 og það eru allir félagar 4×4 og aðrir
jeppaáhugamenn velkomnir.kv
Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar
11.06.2010 at 09:21 #695800Ég mæti með kippu með mér… Verður nokkur bar á staðnum?
Kveðja:
Erlingur Harðar
12.06.2010 at 10:31 #695802Djö…. var þetta magnað. Gaman þegar menn "sýna ábyrgð". Gott bjórkvöld sem fyrr.
Kveðja:
Erlingur Harðar
13.06.2010 at 20:49 #695804Já Erlingur það er satt þetta var sennilega besta bjórkvöld
sem við höfum haft og það verður ekki auðvelt að toppa það.
Skemmtinefndin þakkar þeim sem mættu og finnur til með þeim sem
gerðu það ekki.Gaman var að sjá félaga Elías sýna ábyrgð,menn táruðust.Bestu þakkir til Erlings fyrir aðstöðuna á pallinum.
Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar.
14.06.2010 at 01:38 #695806Þeassi andskotans vefsíða er bara fokking fokk.
Var að skrifa svar til Erlings og Jóa Hauks, kom eitthvað helv… ding dong í hátalarann og allur texti hvarf
og hana nú.
14.06.2010 at 01:52 #695808Ætla að prófa aftur.
Var að segja að ég ætti nokkrar þurrkur eftir af þeim sem ég notaði við að þerra tár af hvarmi mínum þegar að ég yfirgaf ykkur á föstudagskvöld og Sindri vinur minn keyrði mig heim. Fór á laugardagsmorgun og lét skoða 2 hjól og skuttlaði í mig tveim pulsum með steiktum og sinnepi og drakk MIX með. Alldeilis frábært. Ók á Varadero til Hafnarfjarðar eftir hádegið og í morgun renndi ég á Selfoss og upp í Gnúpverjahrepp. Átti síðan fínan dag í dag með þriggja ára vini mínum Nóa og lagði af stað heim um 7 leytið í kvöld. Renndi upp í Borgarfjörð og handsalaði kaup á fjórhjóladrifnu eðalfarartæki sem ég næ í eitthvert kvöldið í næstu viku.
Vantar meiri upplýsingar um pallinn hjá Erlingi. Jói, getur þú gefið einhverjar upplýsingar um afrek ykkar þarna um kvöldið.
Kveðja.
Elli.
14.06.2010 at 10:34 #695810Já Elli þetta hefur verið frábær túr hjá þér
suður og sýnir okkur að það borgar sig að
sýna ábyrgð.
Ekki veit ég um afrek okkar ,en við grilluðum
pylsur,kjúkling og lambakjöt síðan var spjallað
saman fram á nótt.Frábært kvöld.Kv
Jói Hauksps.það kom í ljós að við getum ekki verið í
pílukastkeppni vegna þess að menn svindla of mikið.
14.06.2010 at 17:17 #695812Þetta var náttúrulega bara hrein snilld þetta bjórkvöld..ekki er hægt að gefa upp allt sem þar var brallað en eins og Jói minntist á þá var mikið borðað, drukkið, hlustað á tónlist, farið í golf, pílukast og margt fl. Erlingur og frú eiga þakkir skildar fyrir gestrisni á háu plani….eða sólpalli

kv,
HG
14.06.2010 at 21:06 #695814Já ég vil bara þakka þeim sem að hringdu í mig til að fá mig með ( Þar að segja einginn ). Reyni bara að fylgjast betur með næst.
15.06.2010 at 00:08 #695816Gaman að heyra svona gríðarlega jákvæðar fréttir, Erlingur og Affí klikka ekki.
Var að koma heim úr Borgarfirðinum með nýja (gamlan) bílinn nú fyrir stundu.
Þar sem að ég er ábyrgðarfullur maður þá ætla ég hér í beinni útsendingu að bjóða pallinn okkar Siddu minnar fyrir næsta bjórkvöld.
Var að spá í eina þraut sem ég reikna með að hafi ekki verið hjá Erlingi, en hún er sú að skipta hópnum í tvo hópa og þeir síðan keppast um að skipta um hjólalegur í Patrol. (dregið verður um hvor hópurinn fær hægra eða vinstra megin)
Sá hópur sem tapar þarf að þrífa Patrolinn á eftir, hinir sötra veigar á meðan og stjórna verkinu.Kveðja
Elli.
15.06.2010 at 00:21 #695818Uppskriftin er meira og minna að verða reglulega þunnur daginn eftir en það er klárt að þá hefur verið gaman daginn áður. Annars er allt einfalt þegar góður hópur kemur saman. Pallurinn minn er til reiðu hvenar sem er en það eru auðvitað fleiri pallar. Það sem þeir þurfa að hafa er góður mannskapur, nægur bjór, viskí, grill, kjöt, pílukast, golf, tónlist, mellur (nei annars ekki það) svo væri gott að hafa heitan pott með! En aðallega mannskap og grill og tónlist og og og og….
Annars var það mér sönn ánægja af þessu mjög svo vel heppnaða bjór/grill kvöldi.Kveðja:
Erlingur Harðar
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
