FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Eyjafjallajökull !

by Páll Viggósson

Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › Eyjafjallajökull !

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson Þorvarður Ingi Þorbjörnsson 13 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 27.03.2012 at 14:03 #223072
    Profile photo of Páll Viggósson
    Páll Viggósson
    Member

    Hæ.
    Ég er að spá í hvort einhver hérna hafi farið nýlega yfir Eyjafjallajökul, þ.e.a.s. upp frá Hamragarðaheiðinni og yfir á Fimmvörðuháls.
    Ef svo er, þá hefði mig langað að forvitnast um hvort einhver ætti handa mér „track“ og upplýsingar um hvort eitthvað vafasamt sé á leiðinni. Hef heyrt af tveimur sprungum á leiðnni upp að Goðastein, en að hægt hafi verið að komast hjá þeim með smá krók.

    Endilega henda á mig trackinu á pilko@islandia.is ef einhver á þetta til, og eins upplýsingum ef einhver hefur verið þarna nýlega.

    Með kveðju,
    Palli V.
    pilko@islandia.is

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 27.03.2012 at 19:16 #752411
    Profile photo of Ívar Örn Lárusson
    Ívar Örn Lárusson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 509

    Sælir.

    Ég er nú ekki með track en hvenær planið þið að skella ykkur?
    Skal heyra í einum sem er nýlega búinn að fara og sjá hvort hann eigi eitthvað til.
    Mig langar hinsvegar að fara þangað uppeftir um helgina ef það verður sól og væri styrkur í því að fara ekki einbíla. Verð ekki dragbítur :) Lofa því.

    Ívar





    29.03.2012 at 08:44 #752413
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sælir drengir,

    held ykkur væri hollt að skoða sprungukortið inni á Safetravel, svo og http://ja.is/kort/#x=467559&y=347188&z=8&type=aerial

    Farið varlega,
    Ingi





    29.03.2012 at 10:47 #752415
    Profile photo of Páll Viggósson
    Páll Viggósson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 54

    Já, ég er búinn að heyra í nokkrum sem hafa ráðlagt mér að halda mig frá þessu svæði, og það mun ég gera !

    Fer þetta vonandi síðar, er snjór verður meiri á svæðinu.





    29.03.2012 at 11:20 #752417
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Mikið er hörmulegt að sjá hversu rangt er farið með örnefnin sem búið er að bæta á kortið. Ekkert einasta þeirra er á réttum stað og langt frá því. Skakkar mörgum kílómetrum. Má færa rök fyrir því að það er slysahætta af fleiru en bara sprungum. Það er ákveðin hætta sem skapast af því að hafa þetta vitlaust á kortum.

    Kv. Árni Alf.

    P.S. Fyrir mörgum árum benti ég á makalausa umgengni og kæruleysi manna þarna, sérstaklega í og við gígskálina. Eins og sprungur væru ekki til. Kannski voru allir í útrásarvímu. Náttúrunni gefið langt nef. Þarna hefur í sjálfu sér lítið breyst. Sömu sprungur og alltaf hafa verið.

    Kv. Árni Alf.





    30.03.2012 at 08:33 #752419
    Profile photo of Friðrik H. Friðriksson
    Friðrik H. Friðriksson
    Participant
    • Umræður: 18
    • Svör: 122

    Ég hefði einnig áhuga á að fá nýlegar upplýsingar af þessu svæði.
    Tölvupóstfang fhf@vortex.is

    Kv.
    Friðrik





    01.04.2012 at 06:32 #752421
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Félagar,
    eins og Árni bendir á eru sömu sprungukerfin og áður að vestanverðu upp jökulinn, en mönnum væri hollt að skoða myndir áður en þeir halda austur yfir. Hef farið þarna upp eftir gosið og gengið niður að gíg eftir að hafa stúderað leiðina nokkrum sinnum. Auðvitað hefur fennt í allar sprungur og í gígskálarnar sumar hverjar, en undir kraumar hiti innan öskjunnar. Aðgát skal höfð í nærveru eldfjalla!

    Ingi





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.