FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Eyjafjalla- og Mýrdalsjökull

by Benedikt Magnússon

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Eyjafjalla- og Mýrdalsjökull

This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Guðni Þór Björgvinsson Guðni Þór Björgvinsson 17 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 05.01.2008 at 22:49 #201540
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant

    Hefur einhver farið nýlega á Eyjafjalla- og/eða Mýrdalsjökul ?

    Hvernig er færið yfir Hamragarðaheiðina ?

    Hvernig er hálsinn á milli jöklana og hvernig er að fara upp hjá Sólheimajökli ?

    Kv.
    Benni

  • Creator
    Topic
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)
  • Author
    Replies
  • 06.01.2008 at 20:31 #609252
    Profile photo of Páll K Kristófersson
    Páll K Kristófersson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 276

    Ég er akkurat helvíti heitur fyrir að kíkja þangað næstu helgi. Er enginn búinn að fara þarna nýlega?





    06.01.2008 at 21:17 #609254
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Nú styttist í það að komin verður uppbyggður vegur upp Hamragarðaheiðina. Grjótið sem fara á í Bakkafjöruhöfn á að koma af heiðinni. Stærstu grjótin eiga að vera 50 tonn svo það þarf sæmilegan veg til að þola slíka flutninga. Ég er farin að hallast að jarðgöngum eins og nafni minn Johnsen svo heiðin fái að vera í friði.

    Kv. Árni Alf.





    07.01.2008 at 00:15 #609256
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Skruppum á Mýrdalsjökul í dag á fjórum bílum. Bjart og flott veður á láglendi en ekkert skygni á jökli.

    Keyrðum upp hjá Sólheimajökli og upp í ca 1300 m hæð en nenntum ekki að paufast lengra í engu skygni og snérum því til baka og skruppum inn í Mörk í staðinn.

    Færi upp var fínt en jökullinn flugháll og áttum við á köflum í stökustu vandræðum vegna þess – þó allir á vel negldu – allt að 250 naglar í dekki…

    Inn í mörk var enginn snjór sem heitið gat og nokkuð vatn í bæði Krossá og Markarfljóti – ætluðum yfir í Fljótshlíð en hættum við þar sem við fundum ekkert gott vað fyrir myrkur.

    Benni





    07.01.2008 at 00:20 #609258
    Profile photo of Þorbjörn
    Þorbjörn
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 545

    Það eru náttúrulega bara náttúruspjöll ef þeir verða með einhverja námuvinnslu þarna, Árni veistu eitthvað hvar á heiðinni þeir ætla að taka allt þetta grjót ?

    Með færi á Mýrdalsjökli þá er Benni á sleðaleigunni við Sólheimajökul mjög liðlegur að gefa manni upplýsingar.

    Kv Bubbi





    07.01.2008 at 01:14 #609260
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Veit nú ekkert nákvæmlega hvar verið er að huga að námu eða námum. Það var a.m.k. boruð tilraunahola fyrir neðan Tröllagilið (rétt hjá löngu brekkunni þar sem ruddi slóðinn endar). Á heiðinni eru nokkrir þekktir staðir með hörðu bergi. Þetta mál er væntanlega komið mjög langt. Gaman væri að fá meiri upplýsingar því það hljóta nú einhverjir að vita meira um þetta.

    Líklega verður þetta svipað og á Þórsmerkursvæðinu þar sem ruðst er í gerð uppbyggðra vega og varnargarða og það virðist ekkert af þessu þurfa að fara í nokkurt umhverfismat eða fá umsögn svo hátt fari. Það er bara farið með þetta eins og mannsmorð.

    Kv. Árni Alf.





    09.01.2008 at 23:15 #609262
    Profile photo of Rafn Sigurbjörnsson
    Rafn Sigurbjörnsson
    Member
    • Umræður: 8
    • Svör: 14

    Strákar hættum að velta okkur upp úr þessum leiðindarmálum og skellum okkur bara þarna uppeftir.
    Allavega þá ætla ég að skjótast upp á laugardaginn upp á Eyjafj.jökul – yfir Mýrdalsjökul – inn í Strút og svo eitthvað meira – fer á laugardaginn kl 08 úr vogunum og verð kl 8:30 hjá Olís á Vesturlandsvegi – fer 3 mín síðar – þeir sem vilja vera með mæti bara. Áætluð heimkoma er dagin eftir
    kv





    10.01.2008 at 19:04 #609264
    Profile photo of Guðni Þór Björgvinsson
    Guðni Þór Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 236

    Á einhver track uppá Mýrdalsjökli, er búinn að finna route sem var sett inn í öðrum þræði hérna vegna nýliðaferðarinnar.

    Er hægt að keyra uppá Mýrdalsjökul frá Fimmvörðuhálsi (þ.e.a.s. beint frá Eyjafjallajökli?)?

    Ég væri mjög til í að fá líka ef einhver á track af Eyjafjallajökli handa mér. Tölvupósturinn minn er gthb -at- gthb.org

    Takk kærlega.





    10.01.2008 at 19:13 #609266
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Ferlarnir komnir í pósthólfið hjá þér.
    Kv frá gagnagrunni 4×4, rotta01@gmail.com





    10.01.2008 at 19:19 #609268
    Profile photo of Guðni Þór Björgvinsson
    Guðni Þór Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 236

    Þakka þér alveg afskaplega mikið fyrir Ofsi!

    Ef einhver annar en ég skildi lenda í því að fá villuna "This file cannot be read because it uses a subsequent file version.", þá þurfiði að fara á [url=http://www8.garmin.com/support/download_details.jsp?id=209:2g57j3j6]þessa síðu[/url:2g57j3j6] og ná í nýjustu uppfærsluna fyrir MapSource.





  • Author
    Replies
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.