FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Eyfirðingar Geysisferð 27-29 mars

by Björn Pálsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Eyfirðingar Geysisferð 27-29 mars

This topic contains 78 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Gunnar Lár Gunnarsson Gunnar Lár Gunnarsson 16 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 16.03.2009 at 22:07 #204046
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant

    Sælir félagar
    Nú líður að stóru vetrarferðinni. Ekin verður leið björgunarmanna Geysis. Á föstudeginum verður farið í Dreka og gist þar. Á laugardeginum verður farið upp á jökul að þeim stað er Geysir liggur grafinn á Bárðarbungu og svo ekið niður af jökli og gist í Nýjadal. Á sunnudegi ekið til Akureyrar aftur. Skráðir eru í ferðina:

    1 Jóhann Hauks +1
    2 Eiður Jónsson
    3 Jón Skjöldur
    4 Haukur Stef
    5 Elías Þorsteins +1
    6 Björn Pálsson senior
    7 Björn Pálsson junior +1
    8 Erlingur Harðar
    9 Baldur Pálsson
    10Ragnar Jónsson
    11Kristinn Ásmundsson +1
    12Tryggvi Pálsson +1
    13Pétur Róbert
    14Kristján Ólafsson +2
    15Þórarinn Þórarinsson
    16Elmar Sigurgeirsson +1

    með fyrirvara um villur

    kv
    Bjössi

  • Creator
    Topic
Viewing 18 replies - 61 through 78 (of 78 total)
← 1 … 3 4
  • Author
    Replies
  • 28.03.2009 at 22:14 #643734
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Jæja, hvernig er það hefur enginn heyrt af ferðalöngum? Hvernig og hvort þeir komust á Bárðarbungu?

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    28.03.2009 at 23:20 #643736
    Profile photo of Baldur Pálsson
    Baldur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 186

    Heyrði í Árna Hólm í dag þá var búið að hætta við jökulferð, þeir fóru svo niður í Réttartorfu ,voru um 9 bílar sem fóru í bæinn en þeir lentu í brasi í suðuránni affelgaði einn í ánni og þurftu þeir að fá dráttarvél úr byggð til að ná honum upp.

    kv
    Baldur





    29.03.2009 at 00:43 #643738
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Það er ekki gott, en hvað voru þeir að gera í Suðuránni? Voru þeir á leið í Svartárkot, af hverju fóru þeir ekki fljótið? Var það ófært? Skil þetta ekki alveg, hvað varð þá um hina bílana og hverjir voru á þessum 9 bílum…
    Það er sem ég segi, við Búðingarnir hefðum átt að fara með til að passa þá!! Þetta eru óvitar…

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    29.03.2009 at 00:58 #643740
    Profile photo of Tómas R Jónasson
    Tómas R Jónasson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 154

    Afhverju var ekki Erlingur Harðar til að redda þessu???





    29.03.2009 at 01:08 #643742
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Af því bara… :-)

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    29.03.2009 at 11:49 #643744
    Profile photo of Pétur Róbert Tryggvason
    Pétur Róbert Tryggvason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 190

    Smá ágrip, ég var harðákveðinn á síðustu stundu að renna með upp í Dreka. Fór ásamt F-78 vinum í hóp þeim Eisa, Ragga, Halla, Elmari, Jón Skyldi og Eysteini. Færið upp í Dreka var þægilegt og renndum við þangað að mestu á háadrifinu nema kanski síðustu 10 km. Þar var ekkert drukkið og sungið, bara borðað og sofið. Vöknuðum eins til stóð um 7 leitið við ilm af Hafragrautnum hans Eisa. Flestir fararstjórar voru búnir að slá af Bárðarbungu. Þannig að við héldum af stað suður fyrir Öskju að Þríhyrning, veðrið alger snilld, logn, sól, -22 gráður og 20-40 cm púður ofan á öllu. Frá Þríhyrning út á Hafurstaðrheiði í djúpu púðri og allt eins og blómið eina. Renndum norður heiði í Réttartorfu með skýjabakka, muggu og leiðindi fyrir aftan bakið á okkur. Kveiktum síðan upp og fórum í skreppu inn að Krossá áður en að menn lögðust fyrir í skála og biðu hinna hópanna. Ég vil þakka mínum frábæru ferðafélögum fyrir góðan rúnt, sjálfur fór ég eina bíla í Svartárkot í engu skyggni eftir króka leiðum þar sem að stutt er á krapa. Hafði með mér Bárðdæling til halds og trausts enda ekkert betra en þeir til að stinga undir dekkin í krapa. http://www.þunnir.is koma síðan örugglega með restina af ferðinni..

    Kveðja Pétur R.





    29.03.2009 at 20:17 #643746
    Profile photo of Pétur Róbert Tryggvason
    Pétur Róbert Tryggvason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 190

    Ekki tók ég margar myndir úr ferðinni og vona að aðrir séu með myndir en hérna er slóð inn á myndir frá [url=http://picasaweb.google.com/SigrunSigurpals/Drekafer#:ct9i2tmw][b:ct9i2tmw]MÉR[/b:ct9i2tmw][/url:ct9i2tmw] …
    kveðja Pétur





    31.03.2009 at 08:39 #643748
    Profile photo of Pétur Róbert Tryggvason
    Pétur Róbert Tryggvason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 190

    Hvernig er það voru ekki teknir fleiri myndir og eru engar sögur úr hinum hópunum???
    Heyrði að menn hefðu lent í árekstri í tvígang á fjöllum…





    31.03.2009 at 10:29 #643750
    Profile photo of Gunnar Lár Gunnarsson
    Gunnar Lár Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 13
    • Svör: 102

    Ég mun koma til með að setja mínar myndir inn á netið um næstu helgi að ég ætla. Er ekki byrjaður að vinna þær vegna anna í skóla. Koma inn fljótlega alla vega.

    Varðandi árekstra á fjöllum þá er víst alveg eins gott að maður upplýsi bara það mál áður en einhver annar gerir það…. Illu er best af lokið eða hvernig var það?

    Súkkulíus var í vígahug alla vega um helgina. Hann knúsaði brettakantinn á Land Rover örlítið á laugardagskvöldið þegar var verið að gera við millikassapúða. Bíllinn var í gír þegar svissað var á og rauk af stað. Breska heimsveldið tók vel á móti Japanska Herliðinu og gaf sig vel til baka. Japaninn braut smá uppúr stuðara en Bretinn fékk varla rispu…. Sterkt í Land Rover, eða veikt í Suzuki? En alla vega, stuðarinn hjá mér var nú hálf klesstur saman þannig þetta kemur nú ekki að sök. Bjössi lætur bara heyra í sér ef lakkspæjarinn finnur eitthvað við nánari ígrundun.

    Seinna vers í klessó var á sunnudaginn þegar bremsurnar á Suzuki vildu ekki virka sem skyldi. Rann á lúsarhraða aftan á Halldór á Tacomu, með sama horn og á Land Rover. Tacoma hlaut skyldist mér á Halldóri ekkert tjón af, plastið fór beint á rörastuðarann góða.

    Bæði eru þó leiðindarmál í mínum huga og vil ég alla vega biðja þessa aðila afsökunar á þessum atburðum. Menn eyða miklum tíma og fjármunum til að halda bílum sínum fallegum og í góðu standi.

    Annars þakka ég bara fyrir góða ferð og fer þessi túr vafalaust í reynslubankann. Reyni að keyra bara á einn í næstu ferð….. Smá húmor í vonda veðrinu.

    Kv, Gunnsi Bremsulausi..





    31.03.2009 at 17:03 #643752
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    Mannlaus Súkka ók á minn
    meirháttar landa





    01.04.2009 at 13:03 #643754
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    Mannlaus súkka ók á minn
    meiriháttar Landa
    Japans-koss á Bretlands-kinn
    kærleiks gert í anda

    og koma svo Pétur, þú örugglega gert betur en þetta!





    01.04.2009 at 18:02 #643756
    Profile photo of Elmar
    Elmar
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 81

    Hafið þið séð sex hjóla súkkuna (Þetta er lengd Vítara) sem var að koma í bæinn, hún stendur á planinu við Sunnuhlíð, helvíti flott. Sex 38", Gunni er greinilega að fá samkeppni. Hef trú á að þessi drífi þokkalega.
    kv Elmar





    01.04.2009 at 21:15 #643758
    Profile photo of Pétur Róbert Tryggvason
    Pétur Róbert Tryggvason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 190

    Mannlaus Súkka minn ók á
    meirháttar landa
    Stubbar ekki stóra sjá
    Svona lenda í vanda..

    Kveðja Pétur R





    01.04.2009 at 21:18 #643760
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    hans Gunna má nú fara að passa sig.
    Var að skoða Súkkuna og er hún mjög flott.
    Líka sniðugt að hafa beygjur á aftari afturhásingunni.

    Kveðja
    -Elli-





    01.04.2009 at 21:55 #643762
    Profile photo of Pétur Róbert Tryggvason
    Pétur Róbert Tryggvason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 190

    Cruiserinn til sölu…





    01.04.2009 at 22:17 #643764
    Profile photo of Pétur Róbert Tryggvason
    Pétur Róbert Tryggvason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 190

    Mannlaus Súkka minn ók á

    meirháttar landa..

    Stubbar ekki stóra sjá

    svona lenda í vanda..

    —————————-

    Falinn "Gunni" finnur þá

    félagsskap að blanda..

    Ferleg höggin flestir fá

    forðist þennan fjanda..





    01.04.2009 at 23:01 #643766
    Profile photo of Vilhjálmur Rist
    Vilhjálmur Rist
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 32

    Sex-í á plani Súkka er
    sökum hjóla sinna.
    Fórum fokking því er ver
    fyrsta apríl að finna.





    11.04.2009 at 16:48 #643768
    Profile photo of Gunnar Lár Gunnarsson
    Gunnar Lár Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 13
    • Svör: 102

    Jæja þá er ég loksins búinn að vinna allar myndirnar úr ferðinni.

    Ég hýsi þær á minni eigin síðu og er slóðin:

    http://ferdalangar.123.is/album/default.aspx?aid=142261

    Svo setti ég líka inn myndir sem kóarinn minn hann Stefán tók:

    http://ferdalangar.123.is/album/default.aspx?aid=142282

    Ég þakka kærlega fyrir góða ferð.

    Kv, Gunnar Lár





  • Author
    Replies
Viewing 18 replies - 61 through 78 (of 78 total)
← 1 … 3 4

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.