Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Eyðsla í V6 toyota
This topic contains 33 replies, has 1 voice, and was last updated by Kristófer Helgi Sigurðsson 18 years, 1 month ago.
-
CreatorTopic
-
16.11.2005 at 04:22 #196646
Ég er að pæla hvað ætli svona toy. vél sé að eyða ég fæ neblilega út að hún se annað hvort meða yfir 25 eða undir 20 og hvað er ódýrt og sniðugt hægt að gera til að minka eyðslu og eitt enn er eithvað til í því að kveikju kerfið sé eithvað lélegt í þessum bílum og það sé ástæðan fyrir þessari gríðalegu eyðslu??? hvað ætli 4×4 menn hafi um þetta að segja ???
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
16.11.2005 at 09:04 #532536
Ég átti svona toy árg. 93, beinskiptan á 38" með 5,71 drif. hann var að eyða 16 – 17 í blönduðum akstri.
Kv. – Kjartan
16.11.2005 at 09:16 #532538Það sem þarf að passa eru skynjararnir við innspýtinguna, þeir eru nokkrir og ef þeir eru ekki í lagi fer dýrið að eyða.
Ég held að bilaðir skynjarar séu meginástæða þess að þessar vélar (sem yfirleitt eru í 4-Runner) hafa svona slæmt orð á sér vegna eyðslu.
Ég átti svona bíl og eyddi hann minnst í langkeyrslu um 14 lítrum (á 35") en komst í 30+ með bilaðan airflow sensor, ég skipti um þennan skynjara og eyðsla minnkaði um næstum því helming.Blessuð sé minning hans
Austmann
16.11.2005 at 09:19 #532540
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
umm að gera að selja græjuna og fá sér eitthvað annað sem er með stærri vél og minni eyðslu per hestafl
16.11.2005 at 09:24 #532542Mín reynsla er að fara eftir Þumalputtaregluni.
Sé mótorinn í bílnum með blöndung bíllinn beinskiptur, ólæstur og á orginal hjólbördum (ef stærri þá rétt gíraður, en það er önnur formúla) þá eyðir bíllin EINUM LÍTRA AF BENSÍNI FYRIR HVER 100 KÓLÓGRÖM sem hann vigtar, á hverja 100kólómetra. 1tonna bíll eyðir þá 10L og 2 tonna 20L o.s.fr. Við erum nefninlega á pláhnetuni Jörð og hérna er þyngdarkraftur sem þarf að yfirvinna (9.82m/sek á hverri sek) Ég get lofað þér að flestir bílasalar hér í borg gefa eyðluna upp miðað við akstur á tunglinu þar sem 600mm skiptilikill og fjöður koma niður á sama tíma sé þeim sleppt úr sömu háð
Tölvustýrd rafmagnsinnspíting getur hinnsvegar lækkað eyðluna til muna á bílnum, allt uppí 2 til 3L á hverja hundrað kólómetra. Sjálfskipting tekur um svo 1 til 2L. fyrir hverja 100km. Auto driflæsing kostar að mér hefur funndist 0,5 til 1L á per 100 km.
16.11.2005 at 09:42 #532544Ó Raggi, þú ert svo jarðbundinn
Góður punktur samt.
Bið að heilsa súkkunni.
Einar skáti
16.11.2005 at 13:31 #532546Sæll, ég er með V6 T4R ´91 sjálfskiptan á 5,29, ýmist á 35 eða 38" og eyðslan er frá 14 L/100km (langkeyrsla). Hef átt bílinn í nokkur ár og ekki hægt að segja annað en að hann hafi verið gangviss og tiltölulega bilanafrír hingað til…..
16.11.2005 at 14:11 #532548Þið eruð að tala um að V6 4runner á 38" sé að eyða 14L + á hundraði. Hiluxinn (2,4 bensín) hjá mér eyðir nokkuð stöðugt 20L + á hundraði þessa dagana eftir að ég setti hann á 38". Hvað segið þið um það… er þessi litla vél bara að rembast svona eða er kanski spurning með að kíkka á Co2 skynjaran!
Einhverstaðar las ég að þessir súrefnisskynjarar væru að gefa sig á 130 þús. km. fresti.
Kv.
Óskar Andri
16.11.2005 at 16:22 #532550
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hvað var hann að eyða hjá þer innanbæjar á 35 tommu túttunum .. og var mikil eyðsla í svona hardcore jeppferðum ?
16.11.2005 at 17:42 #532552Ég er búinn að eiga svolítið við svona vél í heimilisbílnum (4runner á 31", 1:4.10 hlutföll).
Fyrst þegar ég fékk bílinn var hann í 25 – 35 lítrum.Það sem ég gerði:
Setti ný kerti; Það breytti heilmiklu.
Setti nýjan O2 sensor (fyrir framan hvarfakút), veit ekki hvort hinn var alveg ónýtur, en þeir geta farið að sýna vitleysu eftir langa notkun, sem er ekki gott.
Hreinsaði innan úr hvarfakútnum.
(Ath. að það verður að þétta pústið 100% fyrir framan kútinn svo að súrefni geti ekki lekið inn á pústkerfið undir neinum kringumstæðum.Setti nýjan hitasensor á kælivatnið, en komst svo að því að sá gamli var sennilega í lagi…breytti ekki neinu.
Stillti kveikjuna. 10° fyrir TDC er málið fyrir þennan bíl, hann var frekar seinn áður; breytti heilmiklu.
Setti nýja loftsíu, bara þessa venjulegu (auðvitað….)
Keypti undraefni hjá Toyota til að setja í bensínið sem á að hreinsa spíssana; er ekki frá því að það hafi verið til bóta.
Og svo AÐAL trixin sem virkilega gerðu eitthvað:
Reif ofan af milliheddinu til að komast að spíssunum, tók þá alla úr og hreinsaði allar þéttingar með þeim.
Fann 5 eða 6V spennubreyti og opnaði spíssana með því að hleypa aðeins á þá og sprauta spíssahreinsi í gegn með venjulegri einnota sprautu.
Bar lítillega af koppafeiti á þéttingarnar og setti saman aftur.(Betra hefði verið að setja nýjar, en þetta var skyndiákvörðun á sunnudegi…slapp til)
Greinilegt er að mótorinn var að draga falskt loft með spíssunum sem ruglar allt systemið. Þetta skilaði miklum árangri.Stillingar:
Airflow-sensorinn er n.k. trekkspjald milli lofthreinsara og throttle-body. Á honum er kíttað lok sem hægt er að taka upp með því að skera í kíttið með dúkahníf og plokka upp með skrúfjárni.
(Ég er bara þannig að ég VERÐ að vita hvernig hlutirnir virka…)
Þarna undir er potentiometer (stilliviðnám) sem trekkspjaldið hreyfir. Fjöðrina sem heldur trekkspjaldinu á móti loftstraumnum er hægt að stilla, þ.e. forspennuna á fjöðrinni. Nokkurs konar pöll. Ef spennan á fjöðrinni er aukin, þá heldur innspýtingin að minna loft sé að koma inn á vélina >> blandan verður veikari >> minni eyðsla. Þetta breytir blöndunni yfir allt vinnslusviðið.
Ath. VARÚÐ: Of dauf blanda veldur ofhitnun í brunahólfi sem skemmir stimpla og útblástursventla á endanum + bíllinn verður hundleiðinlegur í akstri, svo stillið þetta mjög lítið í einu, kannski 1 – 2 pöll í senn.
Ef spennan á fjöðrinni er minnkuð gerist akkúrat öfugt >> bíllinn sýkist af bensínfíkn.
Ástæðan sem ég tel að sé fyrir því að þessi stilling er þörf (þó svo að maður eigi víst ekki að fikta í þessu) er sú að með árunum + notkun, þá slaknar á þessari fjöður >> það þarf að herða aðeins á henni.OK, í dag er bíllinn að eyða á bilinu 13,5 – 16 á hundraðið eftir aksturslagi og aðstæðum í ,,venjulegum" akstri.
kv
Grímur R-3167
16.11.2005 at 18:42 #532554Eyðslan hjá mér með V6 xtracab hefur farið niðrí 12 l/100 (+/- 1 líter, sennilega plús) í langkeyrslu, innanbæjar er hann svona sirkábát á milli 16-22 l/100. Bíllinn er með flækjur og sagði fyrri eigandi mér að það hefði breitt miklu bæði varðandi tog og eyðslu að setja flækjurnar í.
Svo hefur mér einhvernvegin fundist, á spjalli við menn, að 4Runner eyði meiru en xtracab, og hef ég engar skýringar á því þar sem þetta eru eins vélar og svipuð þyngd á bílunum.
Kveðja
Birkir
16.11.2005 at 18:42 #532556Ég held að þessi upptalning hér að ofan segi allt sem segja þarf, illa stilltur bíll með biluðum sensorum eyðir alltaf miklu, hvort sem hann er v6 Toyota eða 4 cyl 1600 mótor.
En bara ein abending,, fara gríðarlega varlega í trekkspjaldið á airflow sensornum hvort sem bætt er við eða minnkað, það er stórvarasamt að fikta of mikið í því.Og eitt enn minn bíll var með 2,5" pústi KN síu og tölvukubb og var bara vel sprækur, og eiddi samt ekki meira en raun bar vitni.
Og í blálokin ef ykkur vantar varahluti……..
kv
Austmann
16.11.2005 at 19:08 #532558Hann góður
Örninn:
Sumarið 2004 eyddi hann c.a. 14-16L á hundraði innanbæjar í afturdrifinu (fór eftir því hversu mikið manni lá á að komast að næstu ljósum). Á veturnar innanbæjar 16L + oftast í lokunum og eitthvað verið að hita hann á morgnanna og svona. Mér tókst einhvervegin aldrei að mæla eyðsluna í vetrarferðum almennilega, í hardcore ferðum…. tjha.. 25L kanski… kanski að einhver geti svarað því betur.
Þetta er eyðslan eftir mínu askturslagi… það má öruglega ná þessu eitthvað neðar með sparakstri eða einhverjum töfrabrögðum.Eftir veturinn 2004/2005 fannst mér eyðslan greinilega aukast um 2 lítra sama hvernig bíllin var keyrður. Þannig að það hlítur eitthvað að vera að og svo eftir að hann var settur á 38" þá… tjha…. er ekki hægt að fá olís til að setja upp svona bensíndælu heima hjá sér???
Kv.
Óskar Andri
16.11.2005 at 19:37 #532560Hefur einhver reynslu af þessu
http://www.ecotekplc.com/Þetta eru einhverjir ventlar sem eru settir á loftintak á bensínvélum. Þeir staðhæfa að þetta eigi að minka eyðsluna um einhver x prósent og breyta vinslu vélarinnar til hins betra…
Á maður að eyða pening í svona eða á maður frekar bara að nota peningin í bensín á bílinn…
Kv.
16.11.2005 at 20:32 #532562Ég tek undir það með Austmann að það borgar sig ekki að fikta í þessum sensor ef maður er ekki alveg með á hreinu hvaða áhrif það hefur, þessi skynjari er sennilega áhrifamesta staka breytan í innspýtingunni. Ég er búinn að prófa það og ,,slapp með skrekkinn" þannig séð, en hins vegar fann maður náttúrulega út úr þessu fyrir vikið
Allavega, það er sniðugt að merkja saman tannkransinn við húsið að innanverðu áður en eitthvað er hreyft, það er þá alltaf hægt að færa draslið aftur í upprunalegt horf ef allt fer í rugl.
Ég hef líka verið að spá í að fikta elektrónískt í þessum sensor, þá getur maður breytt löguninni á eldsneytiskúrfunni. Fyrsta prófun væri að mæla sensorinn (viðnám) full-lokaðan og full-opinn. Velja síðan og tengja 2 stilliviðnám, annað hliðtengt við hann og hitt raðtengt. Þá getur maður breytt dótinu innan úr bíl.
Varðandi þennan ventil…tjah…ég held að ég kaupi bara bensín…ég er nokkurn veginn viss um að bíllinn keyrir á því hehehe…sennilega gerir þessi ventill ekkert annað en að rugla í innspýtingunni þannig að einhver (næstum því ímynduð) áhrif nást.
17.11.2005 at 13:11 #532564Bara til að árétta hversu mikilvægt það sé að vera með þetta efi dót rétt stillt, þá lenti ég eitt sinn í því að mín dós dró loft inn með hlofthosuni þar sem hún kom inn á soggrein, og sem afleiðingu af því þá eyddi bíllinn öruggleg upp undir 40 lítra á hundraðið reykti eins og botnskrúfaður 2.4 Hi lux og gekk eins og andskotinn.
Ég hélt að helv…. bíllinn væri búinn að syngja sitt síðasta en nei, þá hafði hosan smokrast af þegar ég skipti um loftsíu og lét svona.
En ljósi punkturinn var sá að ég yfirfór dolluna frá a-ö til að finna bilunina og hann var líka fínná eftir.Með innspítingarkveðju
Austmann
18.11.2005 at 02:48 #532566[url=http://www.autoshop101.com/forms/h44.pdf:c82eut4b]Hér er[/url:c82eut4b] mjög góð lýsing á því hvernig tölvustýrðar innspítingar í vinna. Þó þetta komi frá Toyota, þá held ég að það sem þarna er sagt eigi líka við um nýrri vélar frá öðrum framleiðendum. ([url=http://www.autoshop101.com/autoshop15.html:c82eut4b]Fleiri greinar)[/url:c82eut4b]
Samkvæmt því sem þarna er sagt, þá byggir tölvan að mestu á súrefnisskynjaranum, aðrir skynjarar eru aðallega notaðir til þess að flýta fyrir, og tölvan lærir á þá og eginleika vélarinnar með tímanum. Því ætti t.d. fikt í loftfæði skynjaranum, aðeins að hafa tímabundin áhrif.
Ein af forsendum þess að kerfið virki, er að allir strokkar séu eins, og að ekki sé verulegur loft leki inn á inntakið framhjá lofthreinsara og loftflæði skynjurum.
Mazda sem ég átti var leiðinleg og gekk illa hægagang. Orsökin reyndist sú að það lak með soggreininni, aðallega inn á einn strokk. Þar sem aðeins er einn súrefnisskynjari á vélinn, þá réði tölvan ekki við að stilla bensín hlutfallið við þessar aðstæður.
Það leiðir líka af þessu að ef öndun vélarinnar er bætt, t,d. með flækjum eða því að slípa eða laga portin í heddinu, þá fattar innspíingartölvan það og gefur tilsvarandi meira bensín. Þetta getur þó tekið eitthvern tíma.
-Einar
18.11.2005 at 05:29 #532568Heilir og sælar.
Ég hef akkurat ekkert að gera í vinnunni núna og er að bíða eftir að vaktinni lýkur.
Anyways.
Ég er nýbúinn að selja 38" Toyota X-cab árgerð 89.
Sá bíll var 3.0 EFI og gekk mjög vel, örlítið olíusmit en ekkert að ráði.
Ég var mjög sáttur með eyðsluna í bílnum, hún var oft í kringum 12-16L á hundraðið. Þegar ég fór ekkert nema uppí vinnu og til baka, og einhvað snatt innanbæjar, að þá var ég að keyra sirka 500km á mánuði og fyllti hann þá tvisvar í mánuði.
Ég var að eyða í þeim mánuði sirka 15.000kr í eldsneyti.
Ég veit ekki hvor menn trúa þessu, en þetta er minni eyðsla heldur en margar 2.4 TDI vélarnar eru að fara með.
En ég skal alveg viðurkenna það, að þessi 3L vél sem ég var með, hún EYDDI þegar ég steig pedalann í gólfið.
Á Reykjanesbrautinni gerðist ég svo djarfur að taka bílinn aðeins ofar en 100+, best að gefa ekki upp neinar sérstakar tölur, og náði ég að eyða kvart tanki á 5mínotum.
En ég get líka alveg vottað fyrir það að sá bíll flaug uppí 160km hraða á notime.
Í jeppaferðum, t.d. Dagsferð á langjökul sem ég fór á honum, að þá var ég að eyða sirka 15lítrum meira en díselbíllinn yfir allan daginn ( er að miða við 2.4 TDI Hilux ), og var mjög sáttur með þessa eyðslu.
Með því að fara í bensín vél, að þá ertu að fá allt öðruvísi kraft, ef að svo má að orðum komast; "Meiri kraft, en minna tork".
Ég hef heyrt mjög misjafnar sögur af þessum vélum, allt frá því að eyða eins og síðutogarar, og svo allt uppí það að vera svona fínar eins og mín var.
Og er nokkuð viss um að 3.0 EFI vélin er að eyða minna en 2.4 EFI vélin, burtséð frá stærðarmuni vélarinnar.
En bottom line, alls ekki vera óhræddur við að kaupa bensín bíl.
Vertu bara búinn að skoða hann vel áður en þú fjárfestir í honum ( Ástandskoðun ogsvofrmmvegis).
Kveðja,
Ingi Jensson.
18.11.2005 at 05:30 #532570Þess má geta að ég seldi ekki bílinn minn útaf eyðslu eða öðruslíku, mig langaði bara í nýrri og breyttari bíl
18.11.2005 at 07:32 #532572ég held að það megi vera ansi vanstillt 2.4 tdi toyota til að eyða meira en 16 lítrum í blönduðum akstri. allavega eru báðir bílarnir á mínu heimilli í kringum 12 í blönduðum, annar með 2L og hinn með 2L-T og báðir þá með turbo og intercooler. Og þetta er það sem ég hef líka verið að heyra frá mönnum sem stilla vélarnar sínar rétt.
Hins vegar er örugglega hægt að láta svona vél eyða 16 á hundraði með því að láta hana mökkreykja á öllu vinnslusviðinu, og það sér maður vissulega.
Fyrir utan það að maður fær ekki endilega mesta afl útúr vélinni þegar hún sótar, því það hlýtur að fara meiri orka í að pústa út illabrunninni olíu á föstu formi heldur en gasi (‘hreinu’ pústi).
Þannig að það skiptir líka máli að stilla mekanísku díselvélarnar rétt, þó svo það séu bara 2 skrúfur sem gera það á móti öllum skynjurunum á efi, olíumagn og idle rpm.
18.11.2005 at 09:10 #532574Er mikið mál að setja V6 3.0 EFI ofan í Hilux sem er með 2,4 EFI ??
Hefur einhver gert þetta?
Kv.
Óskar Andri
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.