FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Eru karlmenn lélegir bílstjórar ??

by Magnús Hallur Norðdahl

Forsíða › Forums › Spjallið › Færð á fjöllum › Eru karlmenn lélegir bílstjórar ??

This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Margrét Th. Friðriksdóttir Margrét Th. Friðriksdóttir 17 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.03.2008 at 00:28 #202030
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant

    Hvernig er það, hér er haldin kvennaferð með ca. 20 bílum þeir fara uppeftir í Setur og skemmtunin er alveg frábær, leggja síðan í bæinn í leiðindaveðri, einn bíll lendir í því að eitt dekkið getur ekki haldið lofti sem þyðir það að hann er skilinn eftir og það fréttist í bæinn að sjálfsögðu. Menn gera út leiðangur til að bjarga þessum vesæla bíl uppá hálendinu og leggja af stað með miklum þjósti, gengur ferðin bara nokkuð vel hjá þeim svona framan af en það vildi svo illa til að þeir keyrðu útaf og brutu framdrif það er ekki af þeim að spyrja að það að þurfa að senda annan hjálparbíl til að bjarga hinum hjálparbílnum sem fór uppeftir með dekkið, kvenfólkið kom í bæinn eins og lög gera ráð fyrir með óskemmda bíla.
    Hvernig væri ef þetta hefðu verið karlmenn ? tækist þeim að fara á 20 bílum og koma með þá heila í bæinn, væru þeir ekki að sprautast upp í fjöllin til að syna hvað sinn bíll getur ? Jú ferðin hjá karlmönnum er einmitt svoleiðis, þeir geta ekki komið með heila bíla í bæinn, þeir þurfa að syna sig, það telst ekki fjallaferð nema að koma með 1/3 í spotta og senda álíka hóp til að bjarga því sem eftir er, sitja fastir í einhverjum drullupyttum, rafmagnslausir útí ám eða einhverju þvílíku. það myndi komast í heimsmetabókina ef 20 bílar kæmust til byggða, óskemmdir óskaddaðir og yfirhöfuð heilir. Er þetta umhugsunarefni fyrir okkur ? Ætlum við að láta vitnast að kvenfólki er betur treystandi fyrir að keyra á fjöllum heldur en okkur ? ég bara spyr ?? þurfum við að fara aftur í sandkassana í æfingaakstur með leikfangabílana ?? Ég held að þær yrðu sáttar við það, það yrði jú sparnaður á heimilum víða. Hvernig er það, er ekki verið að spá í að fara í einhverja stóra ferð á næstunni, eigum við að slá heimsmet og koma heilir í bæinn ?? tíhíhíhí.

    kv,,, MHN

  • Creator
    Topic
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)
  • Author
    Replies
  • 06.03.2008 at 00:51 #616622
    Profile photo of Ingólfur Kolbeinsson
    Ingólfur Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 12

    Það er bara ekki jafn skemmtilegt að fara í jeppatúr ef ekkert kemur fyrir. Ég man bara eftir þeim túrum þar sem allt var í molum, hinir eru bara í einhverri þoku.
    Maður þarf að fá efnivið í hetjusögurnar!!!





    06.03.2008 at 00:58 #616624
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Til þess að koma heill heim, er eitt grundvallaratriði sem verður að uppfylla fyrst. Það er að fara eitthvað.

    Góðar stundir





    06.03.2008 at 01:01 #616626
    Profile photo of Baldvin
    Baldvin
    Participant
    • Umræður: 45
    • Svör: 524

    þetta dót sem er nánast aldrei hreyft 😉





    06.03.2008 at 02:40 #616628
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    …það sem við eigum, og kunnum að gera við (ofast).
    Ég er allavegana lítið fyrir að brjóta hluti sem ég hvorki á eða kann ekki að gera við (ég læri það svosem oftast á endanum…)
    .
    Note: ekki taka mig of alvarlega!
    kkv, Úlfr á Undanfara II (loksins á dekkjum til að brjóta eitthvað! Hvar er vélaraflið…)
    E-1851





    06.03.2008 at 08:24 #616630
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Það fóru meira en 20 bílar á þorrablót í Setrinu um daginn og ég held að það hafi allir komið alveg heilir heim. Þannig að það er ekki bara í kvennaferðum sem það gerist.
    Kveðja Lella





    06.03.2008 at 11:57 #616632
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Karl aumingjarnir komum aldrei til með að geta toppað konurnar, þær eru fyrirmynd þessa félags og einu alvöru jeppa"menn" klúbsins, þær eru bara lang flottastar. Já og mjög gott viðtal við þær í útvarpinu alveg til fyrirmindar eins og venjulega.





    06.03.2008 at 18:10 #616634
    Profile photo of Margrét Th. Friðriksdóttir
    Margrét Th. Friðriksdóttir
    Member
    • Umræður: 0
    • Svör: 6

    Að ferðast á fjöllum er áhætta sem hver tekur fyrir sig, við förum á bílunum okkar á slóða sem breytast á milli árstíða og tökum því fagnandi að hafa þennan möguleika og þetta áhugamál. Það að vera lélégur eða góður bílstjóri hefur fátt með kyn að gera, varkárni, heppni, hæfileikar, áræðni og æfing hafa mun meira að segja…njótum þess að fara um fjöll og fyrnindi, það er æði – það er lika gott að gera lagað það sem aflaga fer – og fara bara varlegar næst.
    Kvennaferð 2008 var púl, en rosalega var þetta skemmtilegt púl –
    Kveðja MaggaMagga





    06.03.2008 at 20:55 #616636
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Ég er kannski að ganga of langt hérna en eru konurnar ekki bara vanari að taka varlega á "skaftinu"?





    09.03.2008 at 17:52 #616638
    Profile photo of Margrét Th. Friðriksdóttir
    Margrét Th. Friðriksdóttir
    Member
    • Umræður: 0
    • Svör: 6

    að við reynum við taka varlega á því sem á að endast eitthvað!
    Kv
    MaggaMagga





  • Author
    Replies
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.