FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Enn eitt innbrotið í jeppa!!!!!!!!!!

by Ólafur Arnar Gunnarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Enn eitt innbrotið í jeppa!!!!!!!!!!

This topic contains 22 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Ólafur Arnar Gunnarsson Ólafur Arnar Gunnarsson 21 years, 9 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 25.08.2003 at 12:07 #192819
    Profile photo of Ólafur Arnar Gunnarsson
    Ólafur Arnar Gunnarsson
    Participant

    Jæja, þá kom röðin að mér!
    Það var brotist inn í bílinn minn aðfaranótt laugardagsins og hann skemmdur og stolið úr honum. Þetta er Toyota DC og stóð bíllinn fyrir utan björgunarsveitarhús í Kópavogi og var hann vel merktur F4X4 og hjálparsveitinni. Það er bara ekki orðið þorandi lengur að skilja bíla eftir neinsstaðar nema undir ströngu eftirliti og eins og dæmin sanna er ekkert heilagt lengur. Þegar maður er í sjálfboðaliðastarfi fyrir hjálparsveit þá er brotist inn í bílinn mans á meðan, þar sem hann stendur fyrir utan aðalinnganginn í björgunarsveitarhúsið.

    Þetta var samt frekar undarlegt innbrot þar sem aðeins hurðarhúninum farþegamegin og lausamunum var stolið úr bílnum, en talstöðin, geislaspilarinn og önnur verðmæti skilin eftir. Það var öllu umturnað inni í bílnum og það sem hvarf voru nokkur verkfæri, íþróttataska með íþróttabúnaði og árskorti í líkamsræktina, skór og fleira smádót. En það sem er undarlegt er að hurðarhúninum var stolið farþega megin og hurðin beyglur og rispuð til að ná honum. Þetta er þá væntanlega einhver sem hefur vantað hurðarhún á bílinn sinn og ekki tímt að kaupa sér hann sjálfur.

    Ég verð að viðurkenna að það var óþarfi að hafa þetta dót í bílnum til að freista einhverra ógæfumanna, en það hefur aldrei verið vandamál að skilja bíla eftir fyrir utan björgunarsveitarhúsið þangað til núna. Ég vil í framhaldi vara alla við því að láta nokkuð sjást í bílum sínum og skilja þá ekki eftir þar sem einhver getur athafnað sig við þá.

    Ef einhver veit um einhvern sem er núbúinn að fá hurðarhún farþega megin á Hiluxinn sinn eða gengur um í bláum Puma íþróttafötum og hvítum/gulum Nike hlaupaskóm þá megið þið endilega hafa samband.

    Ólafur,
    R-2170,
    897 4505

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 22 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 25.08.2003 at 12:59 #475798
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þetta er dálítið merkilegt með hurðahúninn og svipaða sögu að segja um fleiri þjófnaði og innbrot. Þegar dópistarnir brjótast inn í hús eða bíla eru þeir væntanlega á höttunum eftir einvhverju auðseljanlegu sem hægt er að skipta fyrir næsta skammt. Reyna sérstaklega að ná geislaspilara o.þ.h. dóti og svo kannski veski eða greiðslukortum ef slíkt er að finna. En þegar menn eru að stela svona varahlutum og einstökum íhlutum, þá eru þetta einhverjir sem eru að gera upp og græja bílana sína á kostnað annarra. Annað dæmi kom fram hér um daginn þar sem brettaköntum var stolið af bíl!!! Eins á ég erfitt með að trúa því að það hafi verið einhverjir dópistar sem stálu úr snjóbílnum á dögunum, slíkt lið er yfirleitt ekkert á ferð um fjallvegi.

    Maður getur kannski haft svona mannúðarlega samúð með dópistagreyjunum, þeir eru bara ógæfumenn að reyna að bjarga sér, en þessir aumingjar eiga sér engar málsbætur. Þurfum að vera vakandi fyrir öllum tækifærum til að finna þá og gera eins og einhver stakk upp á, kjöldraga þá á snjóbílnum!
    Kv – Skúli





    25.08.2003 at 17:28 #475800
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Persónulega þá finnst mér mun meira spennandi að nota jeppa til að kjöldraga helvítin.
    Þá kemst maður hraðar, og er heldur ekki bundinn við svona mjúkt undirlag eins og snjó.

    Kveðja
    Björninn





    25.08.2003 at 18:51 #475802
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Hver segir að það sé bara hægt að keyra snjóbíla á snjó…….. :)

    kv
    Rúnar





    26.08.2003 at 13:34 #475804
    Profile photo of Ólafur Arnar Gunnarsson
    Ólafur Arnar Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 32
    • Svör: 544

    Ég get reddað snjóbílnum ef einhver nær þessum helv… apaköttum!

    Þeir tóku líka þjónustumöppuna með öllum orginal bæklingunum/pappírunum sem fylgdu bílnum, þannig að þetta er greinilega einhver Toyota DC eigandi sem vantaði hægri hurðarhún og þjónustubók. Þessi hurðarhúnn er ekki til í Toyota og átti Jamil hann ekki heldur til. Það var nýbúið að spyrja hann um svona hurðarhún, en þar sem Jamil átti hann ekki til, þá var hann bara tekinn af næsta bíl, þ.e. mínum. Málið hefur verið kært og náði lögreglan nokkrum fingraförum af bílnum og er málið í rannsókn.

    Ef þið vitið um einhvern sem hefur vantað hurðarhún á bílinn sinn og er allt í einu búinn að redda sér ófáanlegum hurðarhún, þá endilega hafið samband.

    Ef við náum þessum aðilum sem stunda svona óþverraskap, þá skal ég mæta með snjóbílinn!

    Kv, Ólafur.
    R-2170.
    897 4505.





    26.08.2003 at 14:51 #475806
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það er gott að heyra að það sé aðeins farið að sjást í slóð hans, þá er orðinn möguleiki á að ná í skottið á honum. Hann hlýtur allavega að vera farinn að svitna aðeins ef hann er að fylgjast með spjallinu.

    Ef/þegar hann næst, þá legg ég til að því verði komið á framfæri hér og jafnvel víðar. Það gæti verið öðrum til viðvörunar að sjá að það er ekki alltaf sem menn komast upp með svínsháttinn.

    Kv – Skúli H.





    26.08.2003 at 15:29 #475808
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég verð nú að segja að það kemur mér á óvart hvað menn geta lagst lágt í iðju sinni. Að eyðileggja bíl fyrir einn ómerkilegan hurðarhún og verða sér úti um þjónustubók með þessum hætti sýnir að það er ekki ein ærleg taug í umræddum einstaklingum, jafnvel þótt þeim megi ,,þakka" fyrir að hafa ekki tekið talstöðina í leiðinni.

    Þetta sýnir að maður verður ætíð að hafa varann á sér og skilja aldrei bíl eftir þar sem engar eru mannaferðirnar. Það er helst á slíkum stöðum sem þessir vesalingar láta til skarar skríða. Þó gera þeir þetta nú líka á stórum bílastæðum, svo sem við Kringluna og sundlaugar um hábjartan daginn. Þá er auðvitað betra að hafa hávært þjófavarnarkerfi! Ég held að slíkt dót sé fljótt að borga sig miðað við hvernig ástandið er orðið. Ég er aldrei með neitt í bílnum sem freistað getur þessara ógæfumanna, nema spilarann og CB-stöðina en hvorutveggja er gamaldags og einskis virði og hægt að fá fyrir ekki neitt!
    bv





    26.08.2003 at 21:15 #475810
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Því miður er ekki líklegt að fingraför komi að gagni. Kunningjar mínir í lögreglunni segja mér að gagn að fingaförum sé í besta falli einungis teoretískt og komi aðallega að gagni í sögubókum. Svo eru það rándýru viðvörunarkerfin. Það eru til margar sögur af því að þessir "fagmenn" í innbrotunum stundi það að fitla við hurðarhandföng á bíl með slíku kerfi nokkrum sinnum í röð sama kvöldið/nóttina og hlaupa svo í brott. Þegar eigandinn kemur út til að slökkva á kerfinu, sér hann auðvitað engan "glæpon" og eftir fjórða skiptið þá ákveður hann að helv…. kerfið sé bilað og kveikir ekki á því. Fagmaðurinn fer þá óáreittur inn í bílinn, ef ekki þessa nótt, þá næstu nótt. Svo skulu menn vara sig á einu. Þeir mega ekki undir neinum kringumstæðum gera neitt í málinu sjálfir, það kunna dómstólarnir enn síður að meta en innbrotin sjálf. Það er eitt dæmi um mann, sem mætti innbrotsþjófi sem kominn var inn í húsið hans um nótt og tók fíflið, lamdi hann niður og henti honum út á götu. Getið þið þrisvar hver fékk dóm!!
    Þetta er svona svíþjóðarréttlæti afbrotafræðinganna.





    27.08.2003 at 10:07 #475812
    Profile photo of Ólafur Arnar Gunnarsson
    Ólafur Arnar Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 32
    • Svör: 544

    Ef þetta er staðreyndin þá líkar mér alveg ágætlega við bandarísku lögin, þ.e. að þú mátt skjóta unnbrotsþjóf á heimilinu þínu OG lögsækja hann á eftir hvort sem hann lifir skotið af eða ekki…

    Trespassers will be shot, survivors will be prosecuted!





    27.08.2003 at 14:34 #475814
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Trespassers will be shot, survivors will be shot again!





    27.08.2003 at 16:03 #475816
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Brotist inn í frúarbílinn í nótt og geislaspilaranum stolið. Mjög snyrtilega gert allt saman.

    Skildist á löggunni að þetta væri fjórði spilarinn sem hyrfi þessa nótt, í þessu hverfi.

    Garg.
    Rúnar.





    27.08.2003 at 20:39 #475818
    Profile photo of is
    is
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 994

    Væri sniðugt að láta okkkur vita í hvaða hverfi
    þessir andskotar eru svo menn og konur væru vakandi fyrir því.

    Mk. Kalli.





    27.08.2003 at 20:59 #475820
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Neðra Breiðholt.

    Atvinnumenn á ferð. Mjög snyrtilega gert. Meira að segja reynt að spenna niður bílstjórarúðuna til að brjóta ekkert. Hefur ekki gengið svo afturhurðarþríhyrningurinn brotinn. Ekkert skemmt í mælaborðinu, tækið bara tekið (ódýrasta gerð af Pioneer spilara, DHE-1400) Ekkert annað snert.

    Afspyrnu leiðinlegur geisladiskur fylgdi með.

    kv.
    Rúnar.





    01.09.2003 at 00:44 #475822
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir það var einn að segja mér frá einum sem stundar þetta að stela innanúr og utan af jeppum eina sem ég veit að sá maður sem er að þessu er á toyotu d cap grárri eitthvað breyttum meira veit ég ekki um þetta en ef ég frétti meira af þessu bjána þá læt ég vita





    01.09.2003 at 08:05 #475824
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    ég er nú ekki búinn að kaupa mér jepa ennþá þannig að ég á kanksi ekkert endilega heima á þessu spjalli hjá ykkur en það er á planinu að kaupa jeppa fljótlega.

    Þegar þið talið um að menn séu eitthvað að stela úr og af jeppum hvað eruð þið að mein?? Hverju eru þessir fávitar að stela sem þeir hafa greinilega ekki efni á sjálfir???





    01.09.2003 at 08:50 #475826
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þú spyrð hverju sé helst stolið. Af jeppum að utan er helst teknir kastarar, einnig aðrir aukahlutir sem hægt er að ná af. Í einhverjum tilfellum einhverjum ákveðnum varahlutum sem viðkomandi virðist vanta (eða hefur hugsanlega fengið pöntun á) eins og dæmið með hurðahúninn hér að ofan. Innan úr þeim er svo greinilegt að geislaspilarinn er vinsælastur, en einnig talstöðvar og gps tæki. Svo eru nokkur dæmi um að bílunum er stolið í heild og jaskað út einhvers staðar og skildir þar eftir strippaðir.

    Varnaðarráðstafanir sem hægt er að grípa til er að sjóða punkt á boltana sem halda kösturunum (og öðru sambærilegu sem hægt er að stela af bílnum), taka úr bílnum þau tæki sem hægt er milli ferða (gps og talstöðvar og "front" af geilsaspila), merkja hlutina með merkingu sem ekki verður auðveldlega afmáð, kaupa þjófavarnakerfi, skilja bílana ekki eftir á stöðum sem eru fáfarnir um nætur (iðnaðarhverfi t.d) og ekki síst sína samstöðu um að kaupa ekki hluti sem líklegt er að hafi verið stolið. Því betri markaður sem er fyrir þetta dót, því meiri ásókn er í það.

    Kv – Skúli





    01.09.2003 at 13:22 #475828
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ok og eru menn að komast upp með þetta??

    Hvernig fara menn ad því að stela bílum?? og eru það þá eikkurar sérstakar tegundir semm verða fyrir því.

    Ég er alveg steinhissa á því að svona lagað tíðkist hérna að menn gangi um stelandi rándýrum GPS tækjum og fleiru úr bílum hjá mönnum og leggist jafnvel það lágt að sela bíl manns.





    03.09.2003 at 10:22 #475830
    Profile photo of Ólafur Arnar Gunnarsson
    Ólafur Arnar Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 32
    • Svör: 544

    Jæja, þá komu góðu fréttirnar loksins.
    Öllu því sem stolið var úr bílnum mínum fyrir rúmri viku, fannst í gærkvöldi.
    Dótið fannst stutt frá þeim stað sem innbrotið var framið og reyndist það vera falið á bak við drasl, við hliðina á gám, sem stendur þarna rétt hjá. Mér sýnist að þarna sé allt sem hvarf úr bílnum komið til skila, rennblautt að vísu, en í lagi og er það mikill léttir fyrir mig. Hurðarhúnninn fannst líka og er hann ónýtur og sést á honum að miklar aðfarir hafa verið við að ná honum úr. (Ég set kannski mynd inn á albúmið ef það kemst einhvern tíma í lag!)
    Nú er bara spurningin hvort dótinu hefur verið komið fyrir þarna strax eftir innbrotið eða að dótinu hafi verið skilað eftir að spjallið okkar fór af stað. Ég leitaði m.a. þetta svæði strax eftir innbrotið, en að vísu getur mig hafa yfirsést töskuna þar sem dimmt var úti og taskan svört. Það sem mér finnst líklegt er að þjófarnir hafi ætlað að koma seinna, betur búnir, og taka bílinn í heilu lagi eins og því miður er orðið allt of algengt. Sem betur fer uppgötvaðist innbrotið strax morguninn eftir og var bílnum forðað inn í hús.
    Það sem stendur núna eftir er að ég er 25.000 krónum fátækari og þá er ekki tekið inn í dæmið öll vinnan og tíminn sem fór í þetta mál og það að ég var bíllaus í viku.
    Ég geri ekki ráð fyrir að skemmdarvargarnir náist nokkru tímann, en héðan í frá mun ég aldrei skilja neitt eftir í bílnum sem gæti freistað ógæfumanna og gera allt sem hægt er að gera til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig. Ég er búinn að skrifa niður serialnúmer allra tækja og merkja allt það sem hægt er að stela, m.a. dekk, felgur, kastara ofl. og hvet ég ykkur alla að gera það sama.
    Að lokum vil ég þakka öllum sem hafa hjálpað til í þessu veseni og sérstaklega ykkur á vefnum sem hafa tekið þá í umræðunni hér á spjallinu.
    Stöndum saman gegn innbrotum!
    Kveðja,
    Ólafur
    R-2170.





    04.09.2003 at 18:49 #475832
    Profile photo of Halldór Backman
    Halldór Backman
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 38

    Það er svosem skiljanlegt að þessir drullusokkar brjótist oft inn í jeppana okkar þegar þeir eru hver öðrum flottari og allir stútfullir af dýrum græjum. Hins vegar finnst mér alltaf jafn sérkennilegt að menn sem skrá sig á þessa heimasíðu skuli telja upp í löngu máli allar græjurnar sem þeir hafa í bílunum sínum. Það kæmi mér ekki á óvart ef einhverjir fingralangir fávitar eru að skoða þessa síðu til að leita uppi vel búna bíla.

    Heilræði mitt er þetta. Ekki vera að auglýsa hvað þú ert með góðar og flottar og dýrar græjur. Passaðu þig á því að skilja ekkert verðmætt eftir í bílnum, hafðu gott og öflugt þjófavarnakerfi til öryggis og leggðu bílnum alltaf þannig að þú eða einhver sem þú treystir geti fylgst með bílnum.

    Svo eitt til viðbótar. Ef menn myndu nú sammælast um að kaupa ekki notaðar græjur eða aukahluti af einhverjum tortryggilegum mönnum eða undir grunsamlegum kringumstæðum þá myndi kannski minnka markaðurinn fyrir svona góss.

    Kveðja,
    HB





    04.09.2003 at 20:39 #475834
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Röðinn var víst líka komin að mér.
    Vaknið fyrir hálfum mánuði síðan vantaði allt framan á
    minn bíl.Ég ráðlegg öllum að rafsjóða kastara og grindur
    fast á bílana.
    Hjálp ef einhver veit um einhvern sem hefur eignast kastara
    og grind á Lc90 fyrir lítið þá þigg ég allar ábendingar.
    Gummi sími 8220023.
    R2822.





    05.09.2003 at 00:12 #475836
    Profile photo of Snorri Ingimarsson
    Snorri Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 68
    • Svör: 971

    Ég tek undir með HallaB.

    Á meðan einhver vill kaupa þýfi, þá er stolið. Kaupendur eru því samsekir.

    Svo ættu allir að skrá serilanúmerin á græjunum sínum og slík númer af stolnum taklstöðvum og GPS tækjum mætti birta hér á síðunni.

    Er enginn sem getur grafið merki eða númer á kastara og talstöðvar? Ef við veljum sama stað til að grafa í á öllum tækjum, þá er hægt að sjá hvort viðkomandi tæki er stolið.

    Dekk mætti líka merkja um leið og þau eru skorin með einhverskonar marki. Ég vil þá haf biti aftan í tólfta hvern takka. Aðrir geta þá haft tvibita í tíunda hvern takka. Eða bora auka naglagöt í einhverju mynstri. Erfitt yrði að selja slík dekk.

    Fyrir mjög mörgum árum, þegar aðeins voru til örfáir gangar af 44" í landinu, var brotist inn til Gyfla Púst og hans gangi stolið. Auðvitað komst upp um fíflin þegar þeir reyndu að selja.

    Sing





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 22 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.