FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Engar Árshátíðar fréttir ?

by Magnús Hallur Norðdahl

Forsíða › Forums › Spjallið › Vefsíðan › Engar Árshátíðar fréttir ?

This topic contains 18 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson Halldór Gunnlaugur Hauksson 17 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 22.10.2007 at 18:03 #201023
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant

    Hvað gerðist ekkert á þessari Árshátíð sem er ekki vert að tala um
    eða voru allir settir í þaganaskyldu var svona slæmt voru svona
    margir sér til skammar að það má ekki fréttast, hvað stóð uppúr
    í gleðinni lát heira

    kv,,, MHN

  • Creator
    Topic
Viewing 18 replies - 1 through 18 (of 18 total)
  • Author
    Replies
  • 22.10.2007 at 18:09 #600676
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    er nú árshátíðin yfirstaðin og maður man ekki einu sinni eftir því.





    22.10.2007 at 18:13 #600678
    Profile photo of Ólafur Hallgrímsson
    Ólafur Hallgrímsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 544

    En það hlýtur að hafa verið ógeðslega gaman þó maður muni ekki eftir því





    22.10.2007 at 18:21 #600680
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Þetta var frábær árshátíð og vill á Þakka Benna á Akureyri fyrir góðan undirbúning og svo verð ég bara að mæla með KEA það er flott hótel





    22.10.2007 at 18:29 #600682
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Sló í gegn með einu ofsalegasta dansiballi fyrr og síðar,maturinn ofsalegur og þjónustan frábær.
    Skemmtinefndin sló í gegn og svei mér þá ef þetta hafi ekki verið skemmtilegri hátíð en í fyrra.

    Ps.Benni Ak var bara góður og já KEA er flott hótel.

    Kv Dolli.





    22.10.2007 at 18:39 #600684
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Benni Ak er LANGflottastur
    Árshátíðin var LANGflottust
    Akureyri er LANGflottust
    Danssveit Ofsans… LANGflottust





    22.10.2007 at 19:24 #600686
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Nú þykja mér stimplarnir vera farnir að banka í heddið,,, : )





    22.10.2007 at 19:45 #600688
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Bíddu við, já hún búin… ja ég sko maður bara veit ekki neitt. Jæja ég man ekkert eftir henni og þá hlýtur að hafa verið gaman. Já alveg rétt, það var bara mjög gaman. Eða, eða… var það ekki??? annars…!!

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    22.10.2007 at 19:48 #600690
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Hvað er að frétta af landsfundinum annars. Eina sem ég heyrði var að það var alger þurrkur manna á meðal. Hjálparsveitin var kölluð út en gat því miður ekki bjargað málunum fullkomlega en samt gefið góð ráð.

    Vissu þessir menn ekki að það eru ekki barir norðan heiða, hér bjarga menn sér sjálfir.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    22.10.2007 at 20:06 #600692
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Það er nú nánast útilokað að hjálpa fólki sem hefur ekki hugmynd um hvar það er statt. Flytja heilu dalina milli sýslna……
    Hjálp Lella





    22.10.2007 at 23:04 #600694
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Við Erlingur hljótum að hafa verið saman og svolgrað í okkur sama drykknum því ég man bara ekki neitt. Gott ef fleiri sem þarna voru gætu kannski rifjað þetta upp með okkur. Vorum við ekki skemmtilegir eða vorum við kannski til vandræða…

    kv,

    HG





    23.10.2007 at 12:03 #600696
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég man reyndar ekkert eftir þessum Ella þarna, rámar í einhvern annan Ella, en það gæti auðvitað verið allt önnur Ella.. nema Ella sé.
    Ég man hins vegar ekki eftir neinum vandræðum enda allt sem gerðist eftir klukkan hálf níu um kvöldið mér algerlega hulið.





    23.10.2007 at 13:05 #600698
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    Ég uppástend að ég hafi verið bláedrú, en samt man ég ekkert eftir árshátíðinni.
    Mér hlýtur að hafa verið byrluð ólyfjan.





    24.10.2007 at 01:26 #600700
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Af skrifum kannast ég við mann sem hér á landi býr
    Hann Magnús Hallur Norðdahl heitir, skemmtilegur fír
    og margra spyr hann spurninga það eru hans kýr og ær
    ég gaman hef af gátum hans og í þeim er hann fær.

    Um daginn kom svo spurning ein og allir hrukku við
    af árshátíð hann sprunir vildi hafa af góðum sið
    og ekki stóð á svörunum frá félaganna fjöld
    það svei mér hafði verið mikið gaman þetta kvöld

    Til máls þar fyrstur Ofsinn tók og mæltist honum vel
    því mælskur maður þar á ferð ég vissulega tel
    og víst hann hafði verið þar og gaman var og flott
    en rykugur í hausnum dáldið, minnið ekki gott

    Ólafur til máls þá tók og minnti Ofsann á
    Að ógeðslega gaman hlyti að hafa verið þá
    Og ekki var hans minnið gott því ekki mundi hann neitt
    En vissi þó að hann og Ofsinn skemmt sér höfðu feitt

    Og Dolli nokkur tók til máls og um sig tjáði þá
    Að skemmt sér hefði konunglega balli þessu á
    Í mat og drykk var allt svo gott það næstum var um megn
    Og danshljómsveitin Ofsans hefði slegið vel í gegn

    Í Tryggva augum gengið hafði allt sem áformað
    Því allt var þarna langflottast og ekkert minna en það
    En önnur Ella var það svo, það sagði sig víst sjálft
    Að minnið víst hann missti skömmu eftir átta og hálft

    Erlingur út alla sló svo ekki villst um var
    Hjá honum var allt úr og í um það sem skeði þar
    Hvort árshátíðin búin væri eða ekki var nú eitt
    og maðurinn, hann hreinlega mundi fjandann ekki neitt

    Hjá Halldóri þá skyndilega rifjaðist það upp
    Að Erlingur og hann þeir hefðu þambað sama drukk
    Og áhyggjurnar þeirra voru helst sú arðmæða
    Að kannski hefðu báðir verið nett til vandræða

    Nú fram á ritvöll ruddist Dúkka ein og tók öll völd
    Og bláedrú hún sagðist hafa verið allt það kvöld
    En minni hennar rykugt eins og allra hinna var
    því ólyfjan í vatnið hefði laumað verið þar

    Hér lærdóm nokkurn draga má þó ekki sé það kvöð
    Að alla heimsins hluti þarf að taka í tímaröð
    Og M.H.N. má gæta þess sem víst er auðvitað
    Að spyrja ekki spurninga sem ekki er komið að

    Með góðum kveðjum, Logi





    24.10.2007 at 10:00 #600702
    Profile photo of Eiríkur Þór Eiríksson
    Eiríkur Þór Eiríksson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 354

    Þetta er bara snilld…





    24.10.2007 at 10:48 #600704
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Það er ljóst að 4×4 hefur eignast hirðskáld við hæfi. Að ólöstuðum öðrum misgóðum kveðskap sem hér hefur birst, þá bera drápur Loga af. Fyst var það Jariss drápan sem var nú bara eins og sjálfur Egill Skalla hefði ort hana og svo núna þessi snilld.
    Kv – Skúli





    24.10.2007 at 16:42 #600706
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Þetta er snilld hjá Loga.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    24.10.2007 at 22:15 #600708
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    það er greinilegt að klúbburinn hefur á að skipa einvala liði meðal félagsmanna.
    Logi stóð sig einnig frábærlega eins og margir aðrir í stikuferðinni í haust og lét ekki rok eða rigningu aftra sér.





    25.10.2007 at 10:36 #600710
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Nú er bara að semja lag við þessa snilld. Ég heyri fyrir mér að hafa þetta í fimmunda feeling svona frekar þjóðlegt og með þungu yfirbragði þar sem þetta er frekar alvarlegt mál. Mikið hefur greinilega verið innbyrt að göróttum drykkjum.

    kv,

    HG





  • Author
    Replies
Viewing 18 replies - 1 through 18 (of 18 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.