FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Einhverjir í sprungu á Langjökli.

by Þórarinn Guðjónsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Einhverjir í sprungu á Langjökli.

This topic contains 79 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Kristinn Friðjónsson Kristinn Friðjónsson 15 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 30.01.2010 at 13:52 #210335
    Profile photo of Þórarinn Guðjónsson
    Þórarinn Guðjónsson
    Participant

    Samkv. frétt í MBL féllu tveir í sprungu á Langjökli í dag.

    http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/01/30/fellu_i_sprungu_i_langjokli/

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 79 total)
1 2 … 4 →
  • Author
    Replies
  • 30.01.2010 at 13:54 #680152
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Vonum það besta. baráttukveðjur Ofsi





    30.01.2010 at 14:09 #680154
    Profile photo of Guðjón S. Guðjónsson
    Guðjón S. Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 22
    • Svör: 238

    Kona og barn féllu úr bíl og niður í sprungu. Þyrla LHG farin á vettvang með undanfara Landsbjargar.





    30.01.2010 at 14:14 #680156
    Profile photo of Árni Freyr Rúnarsson
    Árni Freyr Rúnarsson
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 298

    Vonandi fer þetta allt vel og lítil sem engin slys á fólki.





    30.01.2010 at 14:18 #680158
    Profile photo of Guðjón S. Guðjónsson
    Guðjón S. Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 22
    • Svör: 238

    Hnit á vettvangi N 64° 39.123′ / W 020° 026.836′





    30.01.2010 at 14:40 #680160
    Profile photo of Eiður Ágústsson
    Eiður Ágústsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 74

    Á korti: [url=http://maps.google.com/maps?f=q&source=s_q&hl=en&q=64.652050,+-20.447267&vps=1&jsv=202c&sll=37.0625,-95.677068&sspn=58.816238,135.263672&ie=UTF8&geocode=FRKD2gMd3f_H_g&split=0:133d46dg]maps.google.com[/url:133d46dg]





    30.01.2010 at 14:51 #680162
    Profile photo of Ólafur Hallgrímsson
    Ólafur Hallgrímsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 544

    Guðjón, hvar fékkstu upplýsingar um hnitin?





    30.01.2010 at 15:05 #680164
    Profile photo of Guðjón S. Guðjónsson
    Guðjón S. Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 22
    • Svör: 238

    Björgunarsveitir sem eru á vettvangi, sé þetta á sitewatch. Er að reyna að setja inn hér mynd af vettvangi úr mapsource staðsetningu af slysavettvangi.





    30.01.2010 at 15:08 #680166
    Profile photo of Ólafur Hallgrímsson
    Ólafur Hallgrímsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 544

    og er í lagi að pósta þessum upplýsingum þaðan á þennan vef?





    30.01.2010 at 15:10 #680168
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Mér er spurn, hvað vakir fyrir þér Láfi?





    30.01.2010 at 15:12 #680170
    Profile photo of Guðjón S. Guðjónsson
    Guðjón S. Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 22
    • Svör: 238

    Ég get ekki séð að það sé ekki í lagi, þetta er einungis til varnar því að þarna sé sprungusvæði. Ef þessar upplýsingar mega ekki vera hér þá biðst ég afsökunar á því.





    30.01.2010 at 15:13 #680172
    Profile photo of Ólafur Hallgrímsson
    Ólafur Hallgrímsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 544

    Ég er bara að spyrja Guðjón.





    30.01.2010 at 15:16 #680174
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Ég spyr nú eins og Helgi, hvað vakir fyrir Ólafi Hallgrímssyni með þessu ?

    Eru hnit á hættulegum stöðum á hálendinu leyndarmál ? Eða óttast hann að nærstaddir flykkist á staðinn og verði fyrir ? Ef einhverjir eru á svæðinu þá blasir þyrlan væntanlega við þeim.

    Vona bara að allir sé heilir þarna og björgun gangi vel.

    Benni





    30.01.2010 at 15:18 #680176
    Profile photo of Guðjón S. Guðjónsson
    Guðjón S. Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 22
    • Svör: 238

    Einu upplýsingarnar sem ég set hér inn eru hnit af vettvangi, ekkert annað. Hélt að menn vildu fá þessar upplýsingar til að setja inn hjá sér í gps tæki til varnaðar v/sprungusvæða.





    30.01.2010 at 15:27 #680178
    Profile photo of Kristinn Friðjónsson
    Kristinn Friðjónsson
    Member
    • Umræður: 5
    • Svör: 152

    vonum það besta Hugur mans er hjá fólkinu upp á jökli.





    30.01.2010 at 15:37 #680180
    Profile photo of HAG
    HAG
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 14

    [quote="Guðjón S":31jrcpko]Einu upplýsingarnar sem ég set hér inn eru hnit af vettvangi, ekkert annað. Hélt að menn vildu fá þessar upplýsingar til að setja inn hjá sér í gps tæki til varnaðar v/sprungusvæða.[/quote:31jrcpko]

    Takk fyrir þessar upplýsingar fyrir okkur hina sem eigum eftir að ferðast um þennann jökul.
    Með von um góða björgun.





    30.01.2010 at 15:37 #680182
    Profile photo of Þórarinn Guðjónsson
    Þórarinn Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 121

    Ég þakka allavega fyrir hnitin. Er búinn að setja inn í GPSið staðsetninguna með hauskúpumerki sem hættulegan stað.





    30.01.2010 at 15:41 #680184
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég held að menn ættu samt fara varlega í að nota upplýsingar úr sitewatch eða aðgerðargrunni Landsbjargar og birta þær annarstaðar alla veganna á meðan á aðgerð stendur. Allt sem fram fer á þessum stöðum á að vera trúnaðarmál. Ef þarf að koma á framfæri upplýsingum um hættuleg svæði þá væntanlega verða þær sendar út eftir að aðgerð lýkur. Væntanlega munu einnig þeir sem þarna eru á ferð geta sett þær upplýsingar á vefinn.

    BIO

    P.S. þetta eru heldur ekki alveg rétt hnit.





    30.01.2010 at 15:55 #680186
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Fyrirgefið en ég sé ekki að þessar upplýsingar skaði neinn á meðan ekki er farið út í meiri upplýsingar, og ég verð nú að segja og hef sagt það áður í vetur að það setur að mér hroll þegar menn byrja hérna að hóa saman bílum á Langjökul því það er svo djö…. lítill snjór ofan á ísnum og sprungum sérstaklega Borgarfjarðarmegin mér finnst persónulega að allir sem ætla að stunda vetrarferðir ættu að gera sér ferð upp að jökli á hausti áður en snjóar þá sjá menn hvað þeir eru að keyra yfir.
    Og svo vona ég að þau sleppi við meiriháttar meiðsl.

    kveðja Helgi





    30.01.2010 at 15:57 #680188
    Profile photo of Ólafur Hallgrímsson
    Ólafur Hallgrímsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 544

    Alls ekki Benedikt. Miðlun upplýsinga er mjög mikilvæg.





    30.01.2010 at 16:04 #680190
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Þetta snýst nú kannski ekki aðallega um það, heldur að þeir sem hafa aðgang að þessum upplýsingum og eru þá væntanlega í björgunarsveitarstarfi eiga að gæta trúnaðar, trúnaður er eitt af því sem okkur er uppálagt að virða. Þess utan þá er betra að bíða með að gefa svona upplýsingar því það er ekki alveg að marka að taka upp hnit eftir sitewatch sérstaklega ef um handstöð er að ræða og því kannski betra að bíða og fá réttar upplýsingar. Ég vill taka það fram að ég er í svæðisstjórn á mínu svæði og þekki þetta því nokkuð vel. Vill ég bara óska þess að fólkið sem í þessu lenti bjargist heilt á húfi.

    Kv. Björn Ingi





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 79 total)
1 2 … 4 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.