FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Eftirmál sýningarinnar

by Magnús Guðmundsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Eftirmál sýningarinnar

This topic contains 4 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 23 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 26.10.2001 at 17:25 #191189
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant

    Ágætu félagsmenn og aðrir lesendur!

    Bæði á sýningunni og eftir hana hef ég fengið viðbrögð fólks á henni. Mér og æði mörgum öðrum fannst sýningin alltof einsleit þ.e.a.s. að allt of lítið úrval var af jeppaflóru landsmanna. Vísitölu jeppaeigendur spurðu mig hvort þeir hefðu eitthvað í okkar hóp að gera. Lítið fór fyrir því að gamlir reynsluboltar úr okkar röðum útskýrðu eða sýndu sín verk. Það var t.d. enginn að, fyrirtækjabílunum undanskildum, á dekkjum undir 38″. Einn viðmælandi minn sagði við mig: „Ég þarf ekki að fara á þessa sýningu, ég sé þetta allt á uppboðunum hjá Glitni“. Þó að Nissan Partol og Toyota Landcruiser séu án vafa dugandi jeppar, þá eru þeir ekki þeir einu. Ég hygg að þessi sýning hafi skotið yfir ferða- útivistar- og jeppaáhuga almennings.

    Með félagskveðju
    Magnús nr. 2136

  • Creator
    Topic
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)
  • Author
    Replies
  • 01.11.2001 at 17:48 #457646
    Profile photo of Sigurþór Þórsson
    Sigurþór Þórsson
    Participant
    • Umræður: 45
    • Svör: 557

    Ég er sammála þessu sem þú ritar um sýninguna!! Þar var nánast eingöngu að finna Nissan Patrol og Toyota LandCruiser á 44". Alltof einsleit og miklu meiri glans og glamour heldur en flestir sækjast eftir! Ég hefði til dæmis viljað sjá meira af fallegum og aðeins eldri 35-38" breyttum jeppum, sem eru jú talsvert eðlilegri kaup fyrir hinn almenna jeppaáhugamann.





    02.11.2001 at 11:26 #457648
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Vil taka undir þetta, fjölbreytileiki skiptir máli á svona sýningu. Ég get kannski ekki vel lagt dóm á þessa síðustu sýningu þar sem ég var ekki í borginni þessa helgi og komst því ekki til að skoða hana, en það sem ég hef heyrt frá mönnum er í fullu samræmi við það sem hér er verið að segja, þ.e. skorti á fjölbreytileika. Skilst á mönnum að það sem helst var áhugavert á þessari sýningu hafi verið "Hrollur", jeppi samsettur úr ýmsum hlutum og heldur hrár að sjá, og svo gamall Runner lengdur í báða enda. Það eru ekki endilega glæsilegustu kerrurnar sem draga að, skemmtilega uppgerðir og útfærðir bílar geta ekki síður verið áhugaverðir.
    Efast samt ekki um að sýninganefndin hafi unnið gott og fórnfúst starf, en alltaf gott að velta fyrir sér hvað megi gera betur.
    Kv – SHS





    10.11.2001 at 10:27 #457650
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég er alveg sammála ykkur öllum það eina sem vantaði var það að kostaði nógu mikið inn á hana þá hefðu bara þessir með dýru jeppana komið.
    Ekki taka því þannig að ég sé eitthvað beiskur en það er staðreynd málsins að sýningin höfðaði að mestu leyti til þeirra sem eru með bíla 4.5 milj og uppúr. Þrátt fyrir að það hafi verið einhverjir 4-5 bílar sem voru ekki í þessum verðflokk.
    Það sem hinn almenni áhugamaður vill sjá eru þessir venjulegu bílar. Það að borga sig inn á sýningu og sjá patrol og cruiser á 44" og einstaka á 38" í lange baner fær maður okeypis hjá bílaumboðunum. Það eru til fullt af snyrtilegum, verklegum og skemmtillegum bílum sem hefði alveg mátt vera þarna. Það að sýna nokkra bíla sem eru alveg eins nema kannski liturinn er algjör fásinna.





    12.11.2001 at 22:00 #457652
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það eru örugglega margar góðar og gildar ástæður fyrir því að fólk kom ekki á sýninguna.Ein af ástæðunum er stórlega að bílaumboðinn hafa verið með sýningar nokkuð reglulega og að sjálfsögðu ekki rukkað neinn aðgangseyri. Af hverju ætti þá fólk að koma og borga fyrir að sjá sömu bíla hjá 4×4 og borga fyrir það? Þó að það hafi verið ca. 8 Patrol jeppum of mikið, þá er það ekki aðal ástæðan. Eða hvernig vissi fólk hvaða bílar voru inni.
    Það voru reyndar miklu áhugaverðari bílar fyrir utan og var nóg að skoða þá fyrir þá sem ekki týmdu að borga sig inn. Þess ber einnig að gæta að það er alltaf meiri og meiri samkeppni um athygli fólks með hverju árinu sem líður og það hefur líka áhrif. Það þarf heldur ekkert að hafa verið að þessari sýningu, heldur síðustu sýningu og þess vegna hafi fólk ekki komið aftur. En þá verður það sennilega slæmt á þeirri næstu.
    Við lærum af reynslunni og gerum þetta bara betur næst.
    Halli, R1644.





  • Author
    Replies
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.