Ferðaklúbburinn 4x4Efni sem ég sakna frá fyrri vefsíðu. – Ferðaklúbburinn 4×4 https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/efni-sem-eg-sakna-fra-fyrri-vefsidu/feed/ Thu, 01 Oct 2026 14:33:32 +0000 http://bbpress.org/?v=2.5.10-6063 is-IS https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/efni-sem-eg-sakna-fra-fyrri-vefsidu/#post-917189 <![CDATA[Reply To: Efni sem ég sakna frá fyrri vefsíðu.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/efni-sem-eg-sakna-fra-fyrri-vefsidu/#post-917189 Mon, 27 Jul 2015 21:35:21 +0000 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Sælir.

Ég var að endurbæta upphafspóstinn hér að ofan og setti inn tengla sem vísa beint á það efni sem ég setti inn og áleit að gæti komið eitthverri umræðu af stað. Það lítur slælega út fyrir að þetta hörfi til þeirra sem koma hér inn á síðuna eða að eitthver áhugi sé að koma með tillögur.

Nú er skipulögð stikuferð hjá umhverfirnefnd. Þar verður farið með nokkra tugi eða hundraða stika til að vísa veginn rétta leið ef hann er ekki sjáanlegur.

Vefnefnd hefur aðeins eina stiku sem er mjög mikilvæg starfi klúbbsins og eru fáir sem eru að reyna að gera hana sjáanlega en magfalt fleirri sem vilja hana helst ósýnilega í sandinn.

Kv. SBS.

 

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/efni-sem-eg-sakna-fra-fyrri-vefsidu/#post-919942 <![CDATA[Reply To: Efni sem ég sakna frá fyrri vefsíðu.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/efni-sem-eg-sakna-fra-fyrri-vefsidu/#post-919942 Wed, 29 Jul 2015 15:24:21 +0000 Björgvin Rúnar Leifsson Bendi á að sumt af ofangreindu hefur slóðina:

Spjallið – Áhugaefni félagsmanna – Getraunir.

Það er hæpið að fólk átti sig t.d. á því að þráðurinn „Ferðaáætlun – gerast ferðafélagar“ sé undir „Getraunir“.  Þetta á líklega við um fleiri þræði undir „Getraunir“.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/efni-sem-eg-sakna-fra-fyrri-vefsidu/#post-920071 <![CDATA[Reply To: Efni sem ég sakna frá fyrri vefsíðu.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/efni-sem-eg-sakna-fra-fyrri-vefsidu/#post-920071 Wed, 29 Jul 2015 18:39:21 +0000 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Sæll Björgvin.

Þakka þér fyrir athyglina. Á fyrri vefsíðu var reitur sem hét “ Áhugaefni félagsmanna“ Í honum voru spjallþræðirnir með þessum tenglum. Þetta bað ég um að yrði sett inn til að auka flæðið og þjónusta félagsmenn betur á vefsíðunni. Efnið kom með yfir á þessa núverandi síðu en var ekki vel sjáanlegt eins og var á þeirri fyrri. Þessir tenglar á fyrrverandi vefsíðu voru settir upp í fljótheitum en ekki endanlega hannaðir. Þetta verður vonandi til umfjöllunar í vefnefnd á næstunni hvort setja eigi þessa spjallþræði svipað upp eða ekki.

Ég er að endurvekja þetta hér til að kanna hvort eitthver áhugi sé fyrir þessu efni. Ég hef útbúið talningu í gegnum Google Analytics til að fylgjast með heimsóknum á þessa tengla. Þar fá „Brandarar við hæfi. Nýir og notaðir.“ og „Videó safn. Innsetning fyrir félagsmenn.“ mesta aðsókn.

Það hjálpar mikið að menn tjái sig hér um þessi málefni. Svo er eitt vel skiljanlegt að menn hafi gefist upp á þessum vefsíðumálum okkar og eru hættir að koma hingað, skoða efnið, skrifa á spjallið, setja inn myndir og fl.

Eins og vefsíðan er núna þarf margt að endur-skipuleggja og hreinsa til. Vefsíður deilda, nefnda og skálasíða eru óviðunandi og til skammar. Þessar síður verða að hafa forgang fyrir veturinn og helst fyrr.

Kv. SBS.

 

]]>