FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Efni í dráttarbita

by Ragnar Þórðarson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Efni í dráttarbita

This topic contains 3 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson Samúel Þór Guðjónsson 16 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 20.03.2009 at 09:43 #204069
    Profile photo of Ragnar Þórðarson
    Ragnar Þórðarson
    Participant

    Sælir.
    Hvaða efnisþykkt hafa menn verið að nota af teinum til að búa til dráttarbita í prófíltengi. Er með 5x50x50 prófíl, ca 30 – 40 cm langan og ætla að bora á hann gat til að setja tein í gegn. Þetta er til að setja spottann í þegar maður dregur aðra.

    Hef heyrt 20mm tein. Eruð þið með einhverjar hugmyndir, sérstaklega þeir sem tala af reynslu?

  • Creator
    Topic
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)
  • Author
    Replies
  • 20.03.2009 at 10:47 #643970
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Slepptu þessum tein. Mín reynsla er sú að þetta er bara til að skemma spottana (þessi beygðu augu) eða bogna (ef þeir eru bara beinir og boraðir í gegn)
    .
    Ég smíðaði svona "T" stykki framan á minn. 50×50 prófíll c.a. 200mm á lengd (sem fer inní) og annan 50×50, 150mm á lengd c.a. soðinn á fyrri prófílinn þannig að þeir myndi T.
    Þetta hefur amk ekki brugðist ennþá. Sjálfsagt væri betra að nota rör sem er 50mm að utanmáli (2" rör er of stórt t.d. þyrfti að vera glussarör eða eitthvað svipað)
    Gæta sín bara á að suðurnar séu gallalausar og sterkar.
    .
    Ég hef amk smíðað haug af þessu (fyrir vini og vandamenn) og aldrei klikkað þann tíma sem ég hef notað þetta, og nóg hefur verið tekið á þessu dóti hjá mér.
    En ég hef séð skemmda spotta eftir augustykkin þarna og bogna teina, bæði 16 og 20mm. =)
    .
    Vona að þetta gagnist eitthvað.
    kkv, Úlfr
    E-1851





    20.03.2009 at 12:48 #643972
    Profile photo of Ragnar Þórðarson
    Ragnar Þórðarson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 202

    Takk fyrir þetta, skoða þetta þá frekar. Ég ætti þá að vera með nóg efni úr að moða með þessa tæplega 400 mm.
    En með rörið, ertu þá að tala um að skera boga í prófílinn sem hálft rörið passar í og sjóða þannig við? Er það þá til að vernda kaðalinn eða fá meiri styrk í suðum?





    20.03.2009 at 13:09 #643974
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Já, annaðhvort að setja rör á prófílinn eða hreinlega bara rör, inní prófílfestinguna líka, en ef þú átt bara prófíl þá endilega notaðu hann. Suðan verður væntanlega eitthvað sterkari fyrir vikið með röri (lengri suðuflötur) en aðalega til að vernda kaðalinn. Annars hef ég samt ekki lent í neinu veseni með að það séu að myndast brúnir á lykkjuna hjá mér, enda eru ávalir endar á prófílnum.
    Bara númer 1,2 og 3, hafa þetta nógu hreint og sjóða þetta almennilega. Það er fátt leiðinlegra en að brjóta eitthvað svona dót og fá þetta beint í hnakkann í gegnum afturúðuna… Það er líka ágætt að vera með einhverja öryggislínu á spottanum.
    .
    En það er betra að byrgja barnið áður en brunnurinn dettur í það.. eða hvernig sem þessi málsháttur var… :Þ
    .
    kkv, Úlfr.





  • Author
    Replies
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.