FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Drulluakstur

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Umhverfismál › Drulluakstur

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Kári Rafn Þorbergsson Kári Rafn Þorbergsson 22 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.03.2003 at 12:46 #192282
    Profile photo of
    Anonymous

    Get ekki annað sagt en að það eru akkúrat svona ummerki og myndir sem koma óorði á alla sem eiga jeppa…
    Persónulega finnst mér þetta ekki sniðug jeppamennska.

    sjá hér:
    http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/images/334-705-4273.jpg

    Kv. Reynir G.

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 06.03.2003 at 12:57 #470038
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Það er að segja……. að við öll lendum í óhöppum sem þessum. Ef mér telst rétt til, þá er þarna slóði sem endar í polli / mýri / drullu. Þá myndi þetta flokkast sem slys, sem allir læra af. En ef þetta er ekki slóði, þá er eigandinn kjáni á tvo vegu. Annars vegar að búa til þessi för og síðan að birta myndina á síðu sem þessari.

    Það er kannski rétt að viðkomandi svari fyrir sig…

    P





    06.03.2003 at 13:40 #470040
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    það er náttúrulega spurning hvort að þessi slóði sé ekki bara eftir bílinn þar sem það virðist vera mjög blautt þarna.





    06.03.2003 at 13:42 #470042
    Profile photo of Þröstur Eyvinds
    Þröstur Eyvinds
    Participant
    • Umræður: 18
    • Svör: 38

    Þetta er til skammar fyrir félagið. Það að þessi mynd skuli birtast með merki félagsins er engum til sóma. Hvet til þess að hún verði þegar afmáð af vefnum.





    06.03.2003 at 13:46 #470044
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það er rétt að þetta er eitthvað sem við almennt viljum ekki sjá. Mér skildist þó á textanum með myndinni að þetta sé í mýrinni á svæðinu þar sem torfærukeppnin á Hellu er haldin og þá spæna keppendur þarna fram og til baka, en að vísu laga þeir í flugbjörgunarsveitinni svæðið eftir keppni.

    Þetta leiðir reyndar hugann að því hvort hætta sé á að þessi þáttur í keppninni á Hellu komi þeim hugmyndum í kollinn á óhörnuðum jeppamönnum að það sé allt í lagi að djöflast í svona mýrarsvæðum.

    Kv – Skúli





    06.03.2003 at 15:37 #470046
    Profile photo of Elmar Ari Jónsson
    Elmar Ari Jónsson
    Participant
    • Umræður: 5
    • Svör: 50

    ég ætla að byrja á því að segja að við vorum þarna á fer daginn fyrir keppni ´98 eða ´99. þetta svæði er í einni þraut sem keyrð er og er auðvitað ekki sjón að sjá eftir það! Ég er allfarið á móti nátturuspjöllum og skemmdum á gróðri!!!. Ég og mínir ferðafélagar og vinir höfum aldrei að mínu viti ollið skemmdum á náttúrunni!!!. En mér finnst að menn ættu að passa á sér túlann!! maður verður að vita hvað maður er að tala um áður en að maður fer að úthúða einhverjum!. ég hélt að menn hefðu aðeins meiri þroska en þetta.





    06.03.2003 at 16:00 #470048
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Innilega sammála Elmari…
    Það er allt of mikið að kellingum úr Vesturbænum hérna á spjallinu… hlaupa með eitthvað af stað vitandi ekkert í sinn haus…hvarflar yfirleitt ekki að mönnum að athuga málið.. bara gaspra eitthvað út í loftið oft á tíðum bara til að koma einhverju rugli í gang…
    Sem sé…Pössum á okkur túllann..
    Gleðikveðja
    Pétur Gísla





    06.03.2003 at 16:00 #470050
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Hvað sem hverju líður, þá er verulega auðvelt að misskilja þessa mynd, og er hún vatn á millu allra umhverfisofstækismanna o.s.frv. Og þú getur náttúrulega bara sjálfum þér um kennt Elmar, þar sem þú alveg steingleymdir að fræða okkur hin fíflin um staðreyndir málsins.
    Vona að þú reddir því sem fyrst og bætir ofangreindum sannleika inn í textasvæðið við myndina :)

    Það er jú einu sinni þannig að mörgum finnst algjör óþarfi að láta sannleikann skemma góða sögu (mynd).

    Rúnar.

    ps. Var einu sinni skammaður fyrir utanvegaakstur, og viti menn, það hefði eflaust mátt sjá á einum stað eða tveim hjólför á milli jarðýtufaranna þar sem ég keyrði.





    06.03.2003 at 16:30 #470052
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Ég hef ekki áhyggjur af jeppamönnum sem margir hverjir vita að þetta er torfærusvæðið á Hellu !
    Ég hef áhyggjur af húsmóðirinni í vesturbænum sem hefur engar upplýsingar aðrar en þæa sem hún sér á myndinni og það er utanvegaakstur og náttúruspjöll og ályktunin sem hún dregur er að allir jeppamenn eru sóðar.
    Það þýðir ekkert að vera að bera á borð fyrir okkur að við eigum að halda kjafti þar sem við vitum ekki hvað við erum að tala um, við eru að tala um þessa mynd sem er á vefnum.
    Ég er sammála öðrum hér á vefnum að menn sem eiga svona myndir í forum sínum, vinsamlegast setjið þér í fjölskildu albúmið en ekki hér á vefinn.

    Kv. vals





    06.03.2003 at 16:33 #470054
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þessi mynd gefur góða ástæðu til að koma með athugasemd um utanvega akstur og náttúruspjöll hvað svo sem fram fór. Ég veit ekkert um mýrina á Hellu!!!
    Nú er hætt við því að heimsóknir á þessa síðu gætu aukist mjög mikið um næstu helgi og vikuna á eftir og fólk skoðar myndirna og dæmir út frá þeim. Myndin er merkt félaginu.

    og PBG þessi tilvitnun þín hér:
    "Það er allt of mikið að kellingum úr Vesturbænum hérna á spjallinu… hlaupa með eitthvað af stað vitandi ekkert í sinn haus…hvarflar yfirleitt ekki að mönnum að athuga málið.. bara gaspra eitthvað út í loftið oft á tíðum bara til að koma einhverju rugli í gang"

    Það er kannski rétt að ég hefði getað hringt í Elmar og spurst fyrir um þessa mynd en af einhverjum völdum kunni ég ekki við það.
    Veit samt ekki alveg hvað þú ert að meina með þessu og þá hvort þessu var beint til mín eða annara!!! En ég tel þessa umræðu af hinu góða þar sem hún hefur þó leitt hið sann í ljós og kemur þá í veg fyrir frekari rangtúlkun myndarinna.

    Höldum umræðum málefnalegum og já pössum á okkur túllan!!!!! 😉

    Höldum umræðum málefnalegum
    kv. ReyniG VERÐANDI FÉLAGSMAÐUR





    06.03.2003 at 17:08 #470056
    Profile photo of Kári Rafn Þorbergsson
    Kári Rafn Þorbergsson
    Member
    • Umræður: 114
    • Svör: 480

    Góðan dag.

    Fyrst að torfærusvæðið á hellu er ekki lokað þá hlítur að vera að það meigi vera inn á því.
    Ef það væri lokað þá mætti nátturulega ekki vera þar.
    einnig væri hægt að loka þessa mýri af og nota hana bara í keppnum.

    kv sportari





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.