Forsíða › Forums › Spjallið › Færð á fjöllum › driflokur..
This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Stefán Stefánsson 19 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
13.01.2006 at 08:58 #197047
Anonymousgeta drifllokur frosið fastar.. ætlapi nefninlega að setaja 4 wd i öllum þessum snjó en þá gerðist ekki neitt.. þess vegna var ég að s´pá hvort að þetta gæti verið frosið fast eða einfaldlega bra bilað og ef þetta er bilað , hvernig veit ég hvor er biluð , er einhver leið önnur en að rífa þetta undan
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
13.01.2006 at 10:50 #538836
Driflokur eru annaðhvort af eða á, ef þær eru á þá gæti verið líklegt að þær séu brotnar, einnig gæti verið líklegt að það sé einhvað annað að eins og að það sé búið að stela undan framskaftinu hjá þér. Gáðu fyrst hvort lokurnar seu brotnar það er mjög einföld aðgerð.
13.01.2006 at 11:00 #538838
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
hvernig finnur maður að þær séu brotnar eða ekki ?
13.01.2006 at 11:22 #538840Það getur vel verið að önnur eða báðar lokurnar séu stirðar og tengi ekki á þó þeim sé snúið. Ef það er rakí í þeim getur þetta gerst í frosti. Það er einfalt að komast að því hvort lokurnar tengdar, hafa bílinn ekki á framdrifi og athuga hvort hægt er að snúa fram öxlunum. Ef lokurnar eru í lagi og tengdar, þá er ekki hægt að snúa þeim.
Eg myndi prófa að taka lokurnar af, liðka þær og smyrja með ÞUNNRI olíu.-Einar
13.01.2006 at 15:41 #538842
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
en hvernig er það eiga þessar lokur að fara svona einn tveir og bingo.. eða fer þetta frekar í átaki.. þvi að þetta virkaði síðast þegar ég var að nota þetta en þetta virkaði ekki í morgun ekkert búinn að nota þetta í fleiri daga .. bendir þá ekki margt til að þetta sé eitthvað raka/frost vandamál ?
13.01.2006 at 20:42 #538844ef að lokurnar eru frostnar þá þarft’u að "taka þær úr" og þrífa og smyrja ef þær eru brotnar þá þarft’u
að "taka þær úr" þetta endar alltaf á því að þú þarft
að "taka þær úr".Svo elsku kallinn minn "taktu þær úr".En ég held svosem að þetta sé frostið að stríða þér ef ég skil lýsinguna rétt.
Með kveðju og von um skjótan bata.
KV. Kalli bifvélamannavirki.
13.01.2006 at 21:17 #538846
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
þegar að egvar buinn að keyra bílinn í allgóða stund þá alltí einu voru lokurnar komnar inn einhverja hluta vegna… þannig að ég ætla bara að hafa hann í 4wd í nótt svo að þetta frjósi ekki fast aftur..
En að öðru fyrst að billin er orðinn góður aftur .. er ekki alveg með góðu móti hægt að fara að jeppast í kringum þingvelli og inná uxahryggi/kaldadal eða lyngdalsheiði um helgina ætti ekki að vera komin ágætis föl þar ? eða er allt bara krapa drulla ?
13.01.2006 at 21:46 #538848Það erlíka algengur misskilningur að lokunar eigi að vera löðrandi í koppafeiti, en það er alls ekki rétt!
13.01.2006 at 22:40 #538850Afhverju á ekki að vera koppafeiti?
Var að stússa í mínum um daginn og það var löður af feiti, löðraði bara aftur í þær í góðri trú um að þrna ætti feiti að vera góð og mikil.
13.01.2006 at 23:21 #538852Sæll
Ég er enginn bifvélavirki en lenti í basli með drifloku á trooper gamla. Ég átti engra kosta völ en að rífa lokurnar í sundur til að liðka og gerði það gersamlega að farast úr áhyggjum að koma þeim ekki aftur á. En lokan er í raun afar einfaldur búnaður bara 2 gormar sem reyndar þarf pínulitla útsjónasemi við að koma saman aftur fyrir byrjendur en alltsaman hafðist það þó.
Á lokukvikindið setti ég svo vel af koppafeiti og það hefur enst ágætlega síðan en það gæti verið ágætt að nota annaðhvort rauða kopafeiti (ægilega góð) eða eitthvað linara.
Lokan hefur ekki brugðist mér síðan
Kv Izan
13.01.2006 at 23:23 #538854VERTU BARA HÓGVÆR MEÐ KOPPAFEITINA
kV:KALLI KOPPUR
14.01.2006 at 02:29 #538856Keypti lokur í Fjallabílum/StálOgStansar og þar var mér sagt að nota ekki feiti, heldur smurolíu.
-haffi
14.01.2006 at 14:08 #538858Sega það bannað að nota koppafeiti, að það sé ekki rétt efni í þetta. Við félaganir höfum verið að prufa okkur afram í þessu og útkoman hefur verið að það virki best með sem minnstu feiti.
14.01.2006 at 19:01 #538860Driflokur er veiklulegur búnaður með litlum gormkrafti.
Málið er því að vera með feiti sem rekur vatn í burtu (þannig að smá raki festi þær ekki) en þá þannig að það sé ekki stíft eins og smjörlíkí úr ísskápnum við mínusgráður (ath. getum átt von á -30°C).
Það að treysta á að þetta þiðni virkar ekki vel þegar maður er fastur einhversstaðar.
Geri ráð fyrir að synthetísk fjölþykktaolía (t.d mobil 1) og trúlega betri gerðir gírolíu hafi þessa eiginleika.
l.
19.01.2006 at 18:04 #538862Það er líka til Syntesísk koppafeiti. Fjallabílar sem eru á jöklum og geta átt von á miklu frosti eiga að vera með syntesískar olíur (ekki hálf syntesískar) á öllu. Mótorolíur sem eru 5-40 eða 0-40 og gírolíur sem eru 75-90. Syntesískar olíur þola frost mikið betur en aðrar olíur. Þær eru líka þynnri. Því þynnri sem olían er því fljótari er vélin að ná upp smurningu í kaldræsingu. Það á líka við um drif, gírkassa og millikassa.
19.01.2006 at 21:21 #538864Þú skalt bara smyrja mjög þunnt lag af feiti á alla hreyfanlega hluti. MJÖG ÞUNNT og nota góða frostþolna feiti, einu sinni var til blá feiti sem var alltaf eins óháð frosti og blandaðist ekki vatni. Ef þú finnur eitthvað svoleiðis þá ertu í góðum málum.
Ef þú pakkar lokuna með feiti Þá verður bara erfiðara fyrir rillustykkið að renna uppá öxulinn og ef að gormurinn er þreyttur þá fer lokan sjálfsagt ekki á.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
