FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Diskalás í 9″ Ford

by Hjörleifur Helgi Stefánss

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Diskalás í 9″ Ford

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss Hjörleifur Helgi Stefánss 17 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 25.10.2007 at 14:54 #201034
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant

    Sæl öll.

    Ég ætla að skipta út No Spin diskalæsingum í Bronconum og skipta um hjólalegur og pakkdósir í leiðinni. Gamla læsingin svíkur orðið og gerir mest lítið en ég á aðra sem á að vera í lagi. Mig langar að vita áður en lengra er haldið hvað felst í því að skipta um læsingu, hvað þarf að rífa o.s.frv og einnig hvort hægt sé að prófa No spin á einhvern hátt áður en hún fer í? Drifin eru nefnilega það eina sem ég hef aldrei átt við í blessuðu fjósinu..

    Hjölli.

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 25.10.2007 at 21:06 #600810
    Profile photo of Hrolfur Árni Borgarsson
    Hrolfur Árni Borgarsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 878

    Númer 1 No Spin er ekki diska læsing eins og nafnið
    reyndar ætti að segja þér No Spin svíkur ekki nema að það brotni.Það er alltaf læst ef átak er frá pinjón en ef þú slærð af sleppir læsingin.
    Það er mjög einfalt að opna No Spin,annað hvort 3
    eða 4 skrúfur ef kamburinn er ekki boltaður á og skoða að innan ef ekki er brotið kastala hjól eða
    gormur er allt í lagi með læsinguna.

    Kveðja jeepcj7 semermeðfulltafnospin





    25.10.2007 at 22:18 #600812
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Þá er babb í dollunni. Læsingin sem ég hef í lúkunum er einhverskonar djö.. diskalæsing. Hvernig má reyna hana áður en hún er lamin í og þarf að stilla inn drifin þegar þessu er komið fyrir??

    H





    25.10.2007 at 22:37 #600814
    Profile photo of Hrolfur Árni Borgarsson
    Hrolfur Árni Borgarsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 878

    Ég þekki ekki leið til að prófa diskadót en þú mátt vita að hún mun virka alltaf nema þegar þörf er á.
    Og já þú þarft að stilla allt inn upp á nýtt.
    Kveðja jeepcj7 nospinrules
    ´





    25.10.2007 at 23:04 #600816
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Magnað.

    H





    25.10.2007 at 23:54 #600818
    Profile photo of Björn Guðmundsson
    Björn Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 28

    Svona lás er limited slip differential venjulega er hann 100% læstur, en við ákveðið átak gefur hann eftir. Það eru stilliskinnur 1 eða fleiri, sem ásamt gormunum og ástandinu á diskunum ráða því hvenær lásinn gefur eftir.

    Stinga öxlunum í læsinguna festa annan (t.d. í skrúfstykki) og taka á hinum með átaksmæli. Ef þú notar gömlu diskana og plöturnar á átakið þegar lásinn gefur eftir að vera að minnsta kosti 40 ft-lb en með nýjum diskum 150-250 ft-lb.

    Svo þarf náttúrulega að nota olíu fyrir limited slip differential.





    26.10.2007 at 09:04 #600820
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það á ekki að þurfa að hreyfa pinjóninn þegar skipt er um læsingu, það er mikið einfaldara að stilla drifið, þegar bara þarf að stilla bakslagið á kambinum og álagið á hliðarlegurnar, en þegar líka þarf að stilla pinjóninn, eins og þegar skipt er um hlutföll.

    Gagnstætt því sem margir halda, þá gerir limited-slip læsing, sem er í lagi, mjög mikið gagn í snjóakstri. Limited slip læsingar nota ýmist diska, skátennt tannhjól (torsen) eða keilu kúplingar.
    Allar vinna þær þannig að ákveðið hlutfall af átaki þess hjóls sem hefur minna viðnám, flyst yfir á hitt hjólið. Í snjó dugar þetta yfirleitt til þess að koma í veg fyrir að bíllinn spóli bara á öðru hjólinu. Ef annað hjólið hefur nánast ekkert grip, t.d. ef það er á glæra svelli, eða á lofti, þá gera svona læsingar þó lítið gagn. Þá er þó oft hægt að bjarga málnum með því að bremsa aðeins. þá myndast mótstaða sem verður til þess að átak flyst á það hjól sem hefur grip.
    Helsti ókosturinn við limited slip læsingar, er að þær eru alltaf á, sem er oft mikill
    ókostur í hálku.

    -Einar





    26.10.2007 at 16:40 #600822
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Track Lock heitir kvikindið. Krufði hana í gærkvöldi, pantaði diska og gorma og í skal hún. Hver ætlar að skreppa dagsstund í Borgarfjörð og stilla inn drifið með mér?

    Hjölli.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.