This topic contains 3 replies, has 1 voice, and was last updated by Lárus Rafn Halldórsson 16 years, 8 months ago.
-
Topic
-
Sælir
Ég er með dana 60, 8 gata afturhásingu sem fer undir 1981 dodge ram. Og það þarf að fara í gegnum hana og ég var að hugsa um að nota tækifærið og láta diskabremsur að aftan..
.
Haldiði að það væri sniðugt? Hverjir eru helstu kostir og ókostir við að láta diskabremsur að aftan? Ég er þá að hugsa um að láta Ljónstaðabræður fara í gegnum hásingarnar (hin er dana 44)
.
En ég á eftir að hringja í þá og tala við þá, ætlaði bara að fá það á hreint hvort þetta diskamál væri sniðugt, ábyggilega skemmtilegra að viðhalda þessu heldur en skálunum auk þess að bremsurnar verða öflugri.
.
Rakst á þráð hérna um hvernig menn væru að mixa handbremsu á þetta. Það er eitthvað sem ég get líklega rætt um við Ljónstaðabræður. Nú ef einhver með sambærilegan bíl hefur verið að stússast í þessu að þá má hann endilega koma með hugmyndir.
.
Erum við að tala um mjög dýran pakka haldiði? Það þarf hvort sem er að taka bremsukerfi í gegn.
.
kv
Tómas
You must be logged in to reply to this topic.