FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Dísel Jeep

by Gísli Sverrisson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Dísel Jeep

This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Einar Kjartansson Einar Kjartansson 20 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 15.12.2004 at 12:54 #195054
    Profile photo of Gísli Sverrisson
    Gísli Sverrisson
    Participant

    Sælinú.

    Mér leikur forvitni á að vita hvernig dísel Cherokee jepparnir hafa verið að reynast, þ.e. vélin.
    Burtséð frá áliti manna á bílnum sjálfum, hvernig er endingartími á vélinni, er hún túrbínulaus orginal, veit einhver um breyttan dísel jeppa?
    Ég er að miða við gamla boddíið, 2.5 vélina. Bíllinn sem ég hef augastað á er 96″ módel.
    Endilega ausið úr viskubrunnum ykkar.

    kveðja,
    Gísli Sverrisson.

  • Creator
    Topic
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Replies
  • 15.12.2004 at 13:24 #511104
    Profile photo of Gísli Sverrisson
    Gísli Sverrisson
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 332

    Hve miklu skyldu þeir eyða af olíu að jöfnuði?





    15.12.2004 at 13:49 #511106
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég á 95 árgerð af bíl með svona vél. Túrbínan og millikælirinn koma með bílnum orginal. Bíllinn er ekinn tæplega 160000 km, var í rúmlega 80 þúsund þegar ég eignaðist hann. Síðan ég eignaðist bílinn hefur verið skipt um ventlalokspakkningu og glóðarkerti. Það hefur einusinni gerst að undirliftustöng villtist, hún var sett á sinn stað og hefur síðan verið til friðs.
    Vélin er alveg orginal hjá mér, ég er mjög ánægður með kraftinn, ég á ekki í neinum vandræðum með að fylgja ferðafélögunum sem eru flestir með stærri vélar í þyngri bílum.
    Þegar vélin er gangsett köld þá heyrist aðeins í henni, sérstaklega ef glóðarkertin eru ekki í lagi. Eftir að vélin er orin heit heyrist lítið í henni. Ef rafgeymir og glóðarkerti eru í lagi, þá fer hún hjálparlaust í gang þó frostið sé um og yfir 20 gráður.

    -Einar





    15.12.2004 at 13:56 #511108
    Profile photo of Gísli Sverrisson
    Gísli Sverrisson
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 332

    Ég sé að þinn er breyttur fyrir 36". Hefurðu mælt eitthvað eyðsluna á honum?

    kv.
    Gísli





    15.12.2004 at 13:57 #511110
    Profile photo of Gísli Sverrisson
    Gísli Sverrisson
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 332

    og eitt annað, hvað vigtar hann svona breyttur hjá þér?





    15.12.2004 at 15:02 #511112
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég held að eyðslan sé um 10 lítrar á hundraðið í sumarferðum, heldur meiri innanbæjar. Í snjónum er eyðslan mun minni en á bensínbílunum sem ég átti á undan, þótt vélaraflið sé verulega meira, ég fór t.d. á einum tanki frá Hrauneyjum að gosstöðvum í Grímsvotnum og til baka á Selfoss, þann 4 nóv síðastliðinn.
    Annars er erfitt að mæla eyðsluna nákvæmlega því það getur verið þolinmæðisverk að fylla tankinn og það hversu mikið fer á tankinn fer nokkuð eftir því hvernig bíllinn stendur. Ég hef heyrt að það sé hægt að laga þetta með því að breyta önduninni fyrir tankinn.

    Fyrir sérskoðun sýndi viktin 990 kg að framan og 700 kg að aftan, samtals 1690 kg. Áður var hann skráður um 1550. Þessi munur liggur dekkjum og felgum, loftpúðar, stífur og brettakantar eru léttari en flatjárnin og blikkið sem fór við breytingar.

    -Einar





    15.12.2004 at 15:24 #511114
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir,
    Ég átti svona bíl,óbreyttann, árg. 1995, keyrðan 160.000 km.
    Mér fannst bíllinn nokkuð skemmtilegur að keyra í byrjun, en svo fór hann að bila, undirlyftur, vatnsdæla, heddpakkning, hedd og svo eitt og annað smávegis.
    Ég átti þennan bíl í ca. 1 ár, hann kostaði mig á einu ári um 670.000 kr. í viðgerðir og varahluti, þegar að hann var loksins kominn í gott lag,þá var ég búinn að fá alveg nóg af honum og seldi hann. Ég heyrði svo af því að ca. 8-9 mánuðum seinna hefðu tvö hedd til viðbótar farið í þessum bíl.
    Ég verð að segja það, að þetta var skemmtilegur bíll að keyra á meðan hann var í lagi, kraftmikill miðað við aðra dísel bíla, en það breytir ekki því að ég myndi aldrei aftur fá mér svona bíl.
    Kannski var ég bara óheppinn :-)

    Kveðja HG





    15.12.2004 at 16:11 #511116
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég á Cherokee með 4L vélinni og hef verið að horfa í dísel bílinn, hlítur að muna miklu ef þetta eru breyttir bílar hvað eyðslu varðar.

    Hef heyrt að gera verði ákveðnar breytingar á stýrisbúnaði í þessum bílum við upphækkun.
    Í hverju felst það.





    15.12.2004 at 16:50 #511118
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Bíllinn minn er hækkaður um c.a. 10 sm að framan, með klossum og OME gorumum. Ég hef ekki breytt stýrisgangi en ég færði festinguna á hásingunni fyrir þverstífuna aðeins með því að bora nýtt gat.
    Mér hefur verið ráðlagt að minnka hallann á togstönginni með því að snúa stýrisendum við þannig að togstöngin komi ofan á arminn á liðhúsinu. Ég hef ekki gert þetta og finn ekki að bíllinn sé neitt lakari í stýri en hann var óbreyttur. Ef halli á togstönginni er minnkaður svona, þá þarf líka að minnka hallann á þverstífunni til að hún haldist samsíða togstönginni.

    -Einar





  • Author
    Replies
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.