FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Dísel í kulda

by Ágúst Úlfar Sigurðsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Dísel í kulda

This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 23 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 24.02.2002 at 19:10 #191354
    Profile photo of Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Participant

    Sælir enn og aftur.
    Ég hef enga reynslu af díselbílum og hef nýlega eignast minn fyrsta olíubrennara, 12 ára Pajero. Í frostinu í gærmorgun sem mældist ca 13 gráður var dísellinn verulega tregur í gang, þótt hann samþykkti það um síðir. Hann snérist ágætlega (nóg rafmagn) og kveikti í með reyk og tilheyrandi, vélin vildi bara fremur stoppa en ganga þegar ég sleppti startaranum – þar til eftir góða stund. Það er stutt síðan ég tjékkaði glóðarkertin og ég hugsa að þau séu í lagi (6 volta hraðkerti með tímastýringu).
    Mér varð hugsað til þess hvernig myndi ganga ef frostið færi upp í alvöru fjallafrost í stað Breiðholtsblíðunnar.

    Nú langar mig til að fræðast af reyndum díseleigendum í f4X4 hvort þetta sé óeðlilegur slappleiki eða hvort menn hafi jafnaðarlega startsprey eða önnur töfratól meðferðis til notkunar í kulda.
    Er e.t.v. eðlilegt að beita startara í díselbílum lengur en á bensínbílum (10 – 20 sekúndur eða meir) ?

  • Creator
    Topic
Viewing 14 replies - 1 through 14 (of 14 total)
  • Author
    Replies
  • 24.02.2002 at 23:04 #459340
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Wolf

    Ég er búinn að kvera á díesel í 10 ár (4 bíla á þeim tíma) og oft í talsverðu frosti í vetrarferðum (15-26 stiga frost). Mín reynsla er sú að þetta gengur vel, ef menn passa sig að vera með vetrarolíu með góðum bætiefnum eða steinolíublandaða olíu. Reyndar er ég steinhættur að setja steinolíu í díeselinn eftir að olíufélögin fóru að selja alvöru vetrarolíu með miklu frostþoli. Mikilvægast af öllu er þó að gæta þess að eldsneytiskerfið sé hreint og rakalaust (tankar og síur).

    Að mínu viti hlýtur eitthvað óeðlilegt að vera að hrekkja pajeroinn þinn (nú veit ég auðvitað ekki hvað henn er keyrður, en vélin getur líka verið orðin slitin og óþétt).

    Ef þú ert klár á að olían sé fín, síur og eldsneytirkerfi í lagi og forhitakrakerfið, þá myndi ég næst láta þjöppumæla græjuna. Gangi þér vel 😉

    Með ferðakveðju,

    BÞV





    25.02.2002 at 08:52 #459342
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir

    Ég er með 2001 árg. af Patrol keyrður 32000. Í frostinu á Laugardaginn sem mældist 11 gráður í bílnum hjá mér. Þá þurfti að hita bílinn 6 eða 7 sinnum áður en hann "dröslaðist" í gang og þá gekk hann eins og gamall traktor í svona hálfa mínútu.
    Í morgunn þá mældist frostið 6 gráður hjá mér og þá þurfti að hita 3 áður en hann fór í gang og aftur gekk hann eins og gamall traktor í svona hálfa mínutu.
    Það er ekki nema 6 þúsund síðan skipt var um síu svo það er örugglega ekki hún.
    Pabbi gamli er með svona bíl líka, en hann er með olíufýringu sem hann notar alveg óspart og hans bíll dettur alltaf í gang. Er málið að það þarf olíufýringu til að þessir bílar komist í gang.
    Ég var að "spugulera" hvort þetta sé þekkt vandamál hjá Patrol eigendum sem eru með 3,0 bílinn.

    Kveðja Steini
    adalsteinn@jak.is





    25.02.2002 at 10:00 #459344
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir

    Ég er líka með Nissan (Double Cab) og hann dettur yfirleitt í gang í fyrsta eftir að glóðarljósið er slökknað (smá traktorsgangur fyrstu andartökin í -10 til -20). Hef verið í allt að 20 stiga frosti og alltaf í gang í fyrsta án vandræða.
    Var með LC90 áður og man ekki eftir að hafa verið í vandræðum með að koma honum í gang.
    Man samt eftir þessu í Pajero ’87 að hann var tregur í kulda og þurfti nokkrar umferðir með hitarann áður en hann fékkst til að vakna.

    Kveðja
    Siggi_F

    P.S. Nota alltaf ESSO, veit ekki hvort það skiptir máli eða hvort olían þar er betri en annarsstaðar.





    25.02.2002 at 10:28 #459346
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir

    Er líka búin að vera í vandræðum með minn bíl í frosti en vill aðallega kenna geymunum um hjá mér – er að fara setaj nýja geyma og er velta fyrir mér hvort það borgi sig að fá sér þurrgeyma – hefur einhver reynslu af því?

    kv Runólfur





    25.02.2002 at 11:55 #459348
    Profile photo of Heiðar S. Engilbertsson
    Heiðar S. Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 414

    Vorum á 25 bílum inn í Laugum um helgina og frostið fór niður fyrir 20° C. Engin teljandi vandræði við gangsetningar





    25.02.2002 at 12:10 #459350
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Er á Toyotu DC 96 191.000 km Núna í frostinu sem hefur verið þetta 5 til 13 stig, þá hefur hann alltaf hrokkið í gang strax og ljósið er slokknað.. Átti lika MMC L200 91 273.000 km, sama með hann, rauk í gang alveg um leið og tikkið heirðist allan timan sem ég átti hann…





    25.02.2002 at 13:24 #459352
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Er með Mússó ´98 módelið með dísel vélinni…..dettur ALLTAF í gang eftir að ljósið slokknar…truntu gangur fyrstu 5 – 10 sekúndurnar…..

    Þessi bíll er ekinn 90.000 km

    Kv
    Snake





    25.02.2002 at 21:59 #459354
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Sælir

    Ég er með Patrol líka og áður en ég lét skipta um vél núna fyrir jól var hann farinn að þurfa soldið start en ekki neitt vandamál. Ég setti þetta bara í samband við að vélin væri orðin óþétt og þegar nýja vélin var sett í hætti þetta alveg þótt frostið hafi farið í -20. Þegar bílar eru settir í gang kaldir þá skiptir olían í sjálfu sér ekki öllu ef hún er ekki frosin eða byrjuð að vaxa. Það sem skiptir mestu máli er að bíllinn þjappi vél og snúist sæmilega þegar það er startað og líka getur verið gott ef maður er á stað þar sem er heitt vatn að hella heitu vatni á oíuverk,spíssa og síuna…

    Hlynur R2208





    26.02.2002 at 13:24 #459356
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Vorum á Grímsfjalli 23/2 um morguninn var -26c Toyotur Dc og LC 70 fóru í gang á "traktorsgangi" og reykjarsvælu enda með 2 rafgeyma og þá líklega 24 v á startaranum sem munaði öllu miðað við hina bílana sem voru með 1 geymi =12v sem dettur niður í ca 8v við þennan kulda. 2 stk patrol "99 og "94 +Toy Forrunner (Bensín)þurftu verulega (start)hjálp. Frosið var í eldsneytissíu en helt á hana heitu vatni og hafist patrolinn "99 í gang með startkapla tengda við 2 bíla.
    Eldri Patrolinn hafðist fljótlega í gang með startköplum ("Verð að muna eftir að skifta að minnsta kosti einu sinni á ári um síu en ekki bara muna eftir því upp á jökli já og muna svo eftir startgasi fyrir Bensínbílinn ") Í Jökulheimum næstu nótt var 19c° og fóru allir í gang á fyrsta snúning. Með jöklakveðju Bjarni Guðberg





    26.02.2002 at 20:01 #459358
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Fáið ykkur bara TOYOTU þá verða þessi vandamál úr sögunni.Kv:M





    26.02.2002 at 21:33 #459360
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég þori ekki að treysta því að það verði Patrol eigandi nálægur til að draga mig ef það verður þungt færi og ég á Toyotu…





    27.02.2002 at 00:43 #459362
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Er á ’87 Toyota DC og hann er keyrður meira en flestir ykkar kunna að telja á upprunalegu vélinni og hann þarf aldrei meira en 2-3 snúninga og þá flýgur hann í gang. Var með ónýta geyma seinasta vetur og það kom fyrir að hann fór ekki í gang ef ég stóð hann ekki í botni í startinu en það var bara geymunum að kenna. Kanski er þetta eitthvað sem tengist merkinu í grillinu. :)





    03.03.2002 at 02:21 #459364
    Profile photo of Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 653

    Sælir, og takk fyrir innleggin.

    Ég býst við að ræsingarvandamál mín séu einkum af tveim ástæðum:

    1. Ég er vanur bensínbílum með kveikjukerfi í 100 prósent lagi, þoli ekki blauta kertaþræði með útleiðslu og gangsetningarvandræði. Geri strax við ef svoleiðis kemur upp. Ef stutt start dugar ekki þá er eitthvað að.

    2. Pajeroinn minn er orðinn 12 ára og ekinn næstum kvartmilljón kílómetra. Sennilega eru original stimpilhringirnir á sínum stað ennþá og ég hef ekki hugmynd um hver þjöppunin er, nema að eftir ganghljóðinu er hún svipuð á öllum fjórum.

    Nokkrum dögum eftir að ég setti þennan umræðuþráð í loftið kom 15 stiga frost í Breiðholtinu. Ég bjóst við hinu versta og glóðaði því tvisvar áður en ég byrjaði að starta og eftir 5 – 7 sekúndna start var vélin farin að svara inngjöf og allt í lukkunnar velstandi eftir það.
    Þetta er greinilega spurning um reynslu eins og á svo mörgum öðrum sviðum.

    Mig langar þó til að spyrja vana jöklafara hvort þeir mæli með að nota startsprey á díselbíla þegar í harðbakkann slær, og ef svo er hvort ekki sé hætta á að það sprengi út í soggreinina og skemmi millikælinn eða aðra parta þar.

    Frostkveðjur

    Wolf





    04.03.2002 at 04:38 #459366
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    eftir að ég kynnstist olíubrennara vil ég ekkert annað sennilega er glóðarkertis kerfið bilað hjá þér hjá mér toyota Hi-Lux 83 er kerfið virt þar til græan er komin með normal ganghita það er að segja stimpla glóðarkertin en soggreinar kertið dettur út nánast strax út það hefur komið fyrir í -28°c að ég hafi startað tvisvar grjótmulningsvélar gangur ef eitt stimpla glóðar kerti er farið skiptu um öll ef eitt er bilað með brennara kveðjum GS





  • Author
    Replies
Viewing 14 replies - 1 through 14 (of 14 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.