FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

demparar sem passa við range rover gorma?

by Páll K Kristófersson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › demparar sem passa við range rover gorma?

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Uni Hrafn Karlsson Uni Hrafn Karlsson 15 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 15.01.2010 at 20:15 #209939
    Profile photo of Páll K Kristófersson
    Páll K Kristófersson
    Participant

    Sælir félagar og gleðilegt árið, ég er með Hilux sem er með gormafjöðrun og var ég að setja nýja range rover gorma að aftan. Það voru Rancho 9000 demparar í bílnum sem voru orðnir ónýtir. Nú vantar mig að fá að vita hvað menn eru helst að mæla með í demparamálum. Þar sem ég er nú ekki þekktur fyrir neinn konuakstur þá vil ég hafa fjöðrunina þannig að það séu ekki dældir í toppnum og tannaför í stýrinu!

    Kv Palli Kristófers

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 15.01.2010 at 22:53 #677170
    Profile photo of Uni Hrafn Karlsson
    Uni Hrafn Karlsson
    Member
    • Umræður: 44
    • Svör: 306

    Rancho 9000 … stillanlega.. og málið er dautt. Er með RR gorma líka, er með demparana á mýkstu stillingu þegar bíllinn er tómur,, herði aðeins á þeim þegar maður hleður í bílinn og von er á miklum ójöfnum til að minnka líkur á samslætti.





    15.01.2010 at 23:34 #677172
    Profile photo of Elmar Snorrason
    Elmar Snorrason
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 519

    Rancho 9000 og Rancho 9000 er nú ekki það sama, fjöldinn allur af týpunúmerum undir. Ég var aðeins að skoða þetta áðan og þetta er heill frumskógur. Mig langar líka í alminnilega dempara undir luxinn minn, þá allan hringinn þó afturendinn sé á forgangi. Ef menn eru að hugsa um að panta utan frá þá er ég tilbúinn að skoða það en auðvitað þarf að skoða búðirnar hérna heima líka. Hvað er Benni að selja þokkalega slaglanga utanvegadempara á?





    15.01.2010 at 23:55 #677174
    Profile photo of Uni Hrafn Karlsson
    Uni Hrafn Karlsson
    Member
    • Umræður: 44
    • Svör: 306

    RS9000 … eru með 9 stillingum sem hægt er að stilla með höndum eða tengja við loftkerfi og stýrikerfi.
    Allar aðrar tölur eins og RS9*** XL eru lengdir á dempurunum og tegund festinga,, auga /pinni osfr





    16.01.2010 at 17:16 #677176
    Profile photo of Páll K Kristófersson
    Páll K Kristófersson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 276

    Sælir já ég var akkurat búinn að skoða þetta á netinu líka og það var alveg dobía af tegundum sem var hægt að velja um.
    Veit ekki alveg hvaða demparar það eru sem Benni er að selja en ég býst við að það sé nú ívið billegra að panta þá að utan, miðað við hvað allt hefur hækkað hérna heima. Þessir eru gefnir upp fyrir tacomu. Spurning hvort þeir henti ekki vel fyrir luxarann.

    http://www.autopartswarehouse.com/sku/U … 6+Steering

    En takk fyrir þetta, þarf að skoða þetta vel





    16.01.2010 at 20:29 #677178
    Profile photo of Kristján Arnór Gretarsson
    Kristján Arnór Gretarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 971

    [quote="RamLing":31pwba9g]Rancho 9000 … stillanlega.. og málið er dautt. Er með RR gorma líka, er með demparana á mýkstu stillingu þegar bíllinn er tómur,, herði aðeins á þeim þegar maður hleður í bílinn og von er á miklum ójöfnum til að minnka líkur á samslætti.[/quote:31pwba9g]
    Er 90% viss um að stillingarnar á rancho ná bara yfir sundurslagið, þannig þeir minka vagg og veltu, en hafa breitast ekkert hvað samslátt varðar.





    16.01.2010 at 21:19 #677180
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Grunar það líka, en dempað sundurslag minnkar náttúrulega líkur á samslætti…..





    16.01.2010 at 21:51 #677182
    Profile photo of Uni Hrafn Karlsson
    Uni Hrafn Karlsson
    Member
    • Umræður: 44
    • Svör: 306

    Mín reynsla er sú að þetta stillir samþjöppun líka, þeir eru harðari saman eftir því sem maður skrúfar upp í honum. Finnst best eins og tilraunauppsetningin er hjá mér núna, harðasta (9) að framan, mýksta (1) að aftan, þegar maður keyrir yfir þessi sýnishorn af hraðahindrun. Alltof harður saman að framan núna, ætla setja þá í 5-6 og halda áfram með 1 að aftan.

    Sjá einnig [url:3tytxkyk]http://www.summitracing.com/search/brand/Rancho/Product-Line/Rancho-RS9000-Shocks/?autoview=SKU[/url:3tytxkyk]

    [url:3tytxkyk]http://www.bc4x4.com/pr/2000/rs9000/rs9000.cfm[/url:3tytxkyk]

    Á báðum stöðum er talað um compression og rebound :þ





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.