FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Defender 2007 á 38

by Skúli Haukur Skúlason

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Defender 2007 á 38

This topic contains 25 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Kjartan Bergsson Kjartan Bergsson 17 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 18.06.2007 at 10:10 #200438
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant

    Hér má sjá fyrsta eintakið af nýja Defendernum (2007) sem breytt er fyrir 38 tommur. Og það sem er kannski óvanalegt við þennan er að honum er ekki breytt af íslensku breytingaverkstæði eða í íslenskum bílskúr heldur er honum breytt af Landrover sjálfum. Þeim þótti hins vegar tilhlýðilegt að koma með hann hingað til að reyna hann og sjá hvort þetta sé að gera sig.
    Kv – Skúli

  • Creator
    Topic
Viewing 5 replies - 21 through 25 (of 25 total)
← 1 2
  • Author
    Replies
  • 20.06.2007 at 10:33 #592636
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Mér fannst líka óskaplega skemmtilegt þegar ég keypti hjá BSA sérhannaða feiti í liðhúsin á Breska heimsveldinu. Á pakkningunni stóð að feitin væri gerð fyrir liðhús á Landroverum árg. 1948-1998. Stundum er fundið að því með Landann að hann hafi ekki þróast í 50 ár. Þetta er kannski ekki að öllu leiti rétt en samt nokkur sannleikur í þessu. Enda afhverju að breyta því sem virkar. Framleiðslufyrirtæki eru oft mjög upptekin af vöruþróun og er það talið nauðsynlegt til að halda þeim gangandi, vera alltaf með einhverjar nýjungar. Þetta er samt kannski ekki endilega alltaf neytendum til hagsbóta. Gott dæmi er vöruþróun á rakblöðum. Þar kemur alltaf fram með ákveðnu millibili einhver ný vitleysa, tveggjablaða, þriggjablaða, klístursrönd sem á að ‘mýkja húðina’ og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta gerir hins vegar í raun ekki neitt fyrir okkur, það eina sem skiptir máli er að efnið í blöðunum sé gott þannig að þau bíti vel og endist. Það er hins vegar segin saga að skömmu áður en nýjung kemur fram fer endingin á gömlu útgáfunni niður á við, þeir fara að nota lélegra efni. Síðan kemur nýja útgáfan sem virðist þá vera svo miklu betri, endast betur og bíta betur …. þangað til næsta vöruþróun er á næsta leiti. Hafiði pælt í þessu!!!
    Er kannski sama upp á teningnum hjá sumum bílaframleiðendum sem reglulega koma fram með nýja og endurbætta útgáfu? Hvaða aðferðum er beitt þar til að fá okkur til að kaupa nýja bílinn?
    Kv – Skúli





    20.06.2007 at 11:06 #592638
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Ég hélt nú að endingin á Land Rover væri svona góð vegna þess að á 10-ára fresti er alltaf búið að skipta út öllum pörtum hans vegna "eðlilegs viðhalds"?

    kv
    Rúnar.





    20.06.2007 at 11:58 #592640
    Profile photo of Sigurður T. Valgeirsson
    Sigurður T. Valgeirsson
    Member
    • Umræður: 25
    • Svör: 144

    ..Vel mælt Skúli ;o), það mætti kannski setja saman ráðgefandi nefnd LR eigenda til að vera markaðsdeild B&L til aðstoðar ef þá skortir hugmyndaflug til að kynna kosti og eiginleika þess að eiga Defender:oÞ En nóg um það…
    En það má svo má ekki gleyma umhverfisvænleikaþætti málsins á þeim tímum sem varla er um annað talað um en náttúruumhverfisvænleikavistvænt eða annað þvíumlíkt. En að framleiða bifreið með öllu sem fylgir, ég tala nú ekki um að farga svo hræinu svo í lokin örfáum árum seinna. Er sérdeilis aldeilis óumhverfisvænt að svo til öllu leyti, með tilheyrandi mengandi afleiðingum, í raun bara sóun á takmörkuðum náttúruauðlindum okkar mannnanna.
    Skoðum nú aðeins LR Defender út frá þessu sjónarmiði.
    #Ál í yfirbyggingu = léttari en ella = eyðir minna eldsneyti en ella, og auðvelt að skipta út bút og bút í boddíi…þarf kannski smá flugvirkjaverkþekkingu, álplötu og hnoð. Og líklega er álið í dag úr einhverjum endurnýttum gosdósum að auki!
    #Vélarstærð sem dugir til og eldsneytiseyðslan því ekki meiri en þörf er á og kolefnisjöfnunarþörf því með minnsta móti.
    #Endist von úr viti = þarf að smíða færri og þarf að farga færri bílum (ég vísa í komment hér að ofan þ.e. menn vita ekki hvað LR endist lengi!).
    #Af þeim örfáu sem lenda í förgun af einhverjum ástæðum má nýta megnið af þeim í varahluti í aðra LR(yfir margra áratuga bil ekki bara síðustu 3 ára!). Þannig að endurnýtingarhlutfallið er hátt.
    # Það má fá alla varahluti í þetta og það á mjög svo sanngjörnu verði , þannig að ekki þarf að losa sig við tiltölulega heilt eintak út af skorti eða okri á varahlutum í eldri árgerðir.
    #Einfaldleiki í viðgerðum lágt flækjustig..

    Þetta er því bifreiðarConcept endurnýtingarhugsun, nýtingu en ekki sóun ;o)

    Og svo náttla gott fyrir veskið og meiri háttar þrill :o)

    Hver getur nú státað af öðru eins?
    Ég er mest hissa á að UmhverfisGrænir séu ekki búnir að uppgötva þetta, hvað þá að markaðsdeild B&L fari nú að vinna vinnuna sína og Skallagrímur úr Þistilfirðinum hætti að aka á asískum grjónabrennara.
    Lifið heil!

    Siggi T
    "bæði blautur og rykugur" ;oÞ





    20.06.2007 at 22:39 #592642
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    Sagt er að blaðafulltrúi Landrover hafi verið spurður að þvi á blaðamannafundi í tilefni kynningar á 2007 árgerðinni hvað kaupendur mættu búast við að Land Rover entist lengi. Og það stóð ekki á svari:
    "Thja.. við vitum það nú eiginlega ekki sjálfir, við erum nú ekki búnir að smíða hann nema í tæp 60 ár þannig að það er nú eiginlega ekki komið í ljós ennþá!"





    02.07.2007 at 16:28 #592644
    Profile photo of Kjartan Bergsson
    Kjartan Bergsson
    Member
    • Umræður: 10
    • Svör: 64

    Sælir ég er ekki sammála að sá nýji sé latur. Þessi vél er mjög skemmtileg og torkar fínt. Það er að vísu minni hávaði í 2007 árgerðinni sem getur haft áhrif á þrill factorinn :).
    Hef átt bæði c.a. 87Hö 110 Td og 122 Hö Defender TD5 (með kubbi) og finnst þessi nýji sprækur og skemmtilegur á sinn einstaka "Defender" hátt.
    Er að kaupa þann nýja og að koma "aftur heim" (eins og börnin mín orðuðu það þegar þau mátuðu Defenderinn 😉 … eftir að hafa "haldið frámhjá" í rúmt ár með sprækri japanskri dræsu (174 Hö Navara á 35um). Navarann er mjög skemmtilegur akstursbíll en ekki alveg jafn hrifin af grófustu slóðunum og Defenderinn.





  • Author
    Replies
Viewing 5 replies - 21 through 25 (of 25 total)
← 1 2

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.