This topic contains 36 replies, has 1 voice, and was last updated by Jón Örn Eyjólfsson 17 years, 10 months ago.
-
Topic
-
Já við höfum ákveðið nokkrir að smella okkur í smá ferð á laugardaginn, ætlum að fara sömu leið og litla nefndin fór um helgina, ætlum okkur að klára hringinn upp Lyngdalinn og niður frá Kaldadal. Við fórum þessa leið með einn 33″ síðustu helgi en snérum við þegar hann var búinn að affelga og festa sig í öllu sem hægt var að festa sig að ég held .
En nú förum við á bílum sem eru minnst 35″ og eru allir velkomnir í samfloti ef einhver er einn og langar í svona ferð, þá sleppur þú við það að fara einbíla sem er ekki sniðugt á þessum tíma á þessum slóðum.
Förum á 35″ Land Rover Stuttum, MMC pajero 38″, Ford Econlince 38″ og jafnvel einum öðrum 38″ Ford econline.
Endilega ef einhver vill kíkja í með í smá krapasull og skemmtileg heit þá er það alveg meira en velkomið að fljóta með okkur
You must be logged in to reply to this topic.