FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

D110 Mitsubishi Front Air Locker

by Bjarki Clausen

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › D110 Mitsubishi Front Air Locker

This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Guðni Grímsson Guðni Grímsson 21 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 20.06.2003 at 12:33 #192668
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant

    Posted: 16 June 2003 at 5:26pm | IP Logged



    Yes Errol is correct, there has been a big push to get this product developed over the last 2 years and now ARB has agreed to do it. Thanks to all the people who sent emails to Greg Milton expressing their interest in this product (US & Japanese guys also). 

    MEMORANDUM

    TO: All ARB Sales Staff and Distributors

    FROM: Greg Milton

    SUBJECT: RD110 Mitsubishi Front Air Locker

    DATE: June 5th 2003

     

    Please be advised that we have now committed our Air Locker engineering team to develop the Mitsubishi 28 spline Air Locker.

    Initial production cannot yet be locked in but we are aiming for supplies to start flowing this calendar year.

    As we have had a number of local and overseas enquiries for this application which up until now we have not been able to satisfy, we will be informing several Pajero club members of this decision. This is likely to initiate some enquiries and we are now able to accept orders for the RD110 as this differential will be known

    Full application information is not yet known, however what we do know is that this new Locker will fit:-

    Pajero (Montero) 1991(NH) on petrol and diesel models except 3.0litre automatics.

    All Challenger (Montero Sport) models.

    We also believe but have not yet fully confirmed that it will fit the Triton in most applications.

    Pricing is identical to RD23.

    As more information comes to light we will keep you informed.

    Thanks and Kind Regards

    Greg Milton

    National Sales and

    Operations Manager

     

    Back to Top

  • Creator
    Topic
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)
  • Author
    Replies
  • 20.06.2003 at 22:30 #474374
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Þetta eru ekki smá flottar fréttir fyrir okkur eigendur þessara bíla. Ertu einhverju nær um hvað þessi verðtilvísun þýðir á okkar markaði?(RD23)





    21.06.2003 at 10:41 #474376
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    Þetta eru það svo sannarlega..

    Því ég veit að ég elska mína framlæsingu og finnst það grundvallarmannréttindi að geta sett slíka í bílinn sinn.

    Kveðja Fastur





    22.06.2003 at 10:59 #474378
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þetta þýðir samkvæmt fyrri reynslu að lásin ætti sennilega að vera komin á markað eftir eitt ár eða þar um bil. En það vill svo skemmtilega til að nú þegar er hægt að fá Íslenska Algrip lásin í þennan bíl og eru einmitt fyrstu bílarnir komnir með þennan lás. Ég held að Jói í Wurth og BÞV séu komnir með svona lás í hjá sér.
    Það sem þeir eiga við með RD23…er að hann verður á sama verði og þessi typa sem er í Toyotu 8" drif. Þá er verðið í dag um 115,000-.

    kveðja

    Halldór





    22.06.2003 at 16:34 #474380
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    þú færð ARB lás í 8" toyotu hjá http://www.allprooffroad.com á $649 sem eru aðeins 30.500 íslenskar krónur og það kostar varla 85 þús kall að koma þessu heim.





    22.06.2003 at 16:36 #474382
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    það er víst 48 þús sem hann kostar (smá klikk á reiknivélinni) en það er samt skítbilligt miðað við þá sem selja þetta hérna heima.





    23.06.2003 at 00:03 #474384
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það er mjög algengt, hér á netinu, að menn mæli með sérinnflutningi á vörum af því að það sé svo dýrt hér heima.
    Það er ekki nóg að segja að þetta kosti bara 48.000-ísl og svo sé bara smá flutningskostnaður. Þetta er ekki alveg svona einfalt. Það bætast við tollar, vörugjöld, VSK, flutningur innanlands og flutningur yfir hafið og að auki er þetta líka altaf einhver fyrirhöfn fyrir hvern og einn.
    Ég spyr ykkur sem hugsið alltaf svona er það einlægur vilji ykkar að það séu ekki starfandi fyrirtæki sem eru að þjónusta okkur jeppamenn hér heima?
    Eða eiga þau kannski bara að vera til svo að hægt sé að skoða vöruna og panta hana síðan sjálfur erlendis frá?
    Fyrirtæki eins og Arctic Trucks, Bílabúð Benna, Fjallasport og fl. eru okkur jeppamönnum í 4×4 mjög hliðholl. Alltaf að styrkja okkur á einn eða anna hátt.
    Þessi hugsana gangur beinist aðalega að þeim sem styrkja klúbbinn okkar hvað mest og gerum okkur grein fyrir því að það er fólk á bak við þessi fyrirtæki bara eins og þú og ég.
    Ef allir hugsa svona þá endar það með þvi að við verslum bara allir í gegnum tölvuna okkar og þegar þarf að vesenast í sambandi við ábyrgðir á hlutum þá verðum við bara að gera svo vel og standa í því sjálfir. Hvað gera menn t.d. ef upp koma gallar eða vantar einhverja hluti í pakkana.
    Það er vist öryggi í því að versla við þessi fyrirtæki sem starfa á þessum markaði ekki sýst í þeim tilfellum þegar eitthvað kemur upp á.
    En öll samkeppni og aðhald er af hinu góða og er sjálfsagt að fylgjast með hvað hlutir eru að kosta erlendis og benda mönnum á ef eitthvað óeðlilegt er í gangi í sambandi við verðlagningu hjá verslunum.
    En það þarf að vera sanngirni og það þarf að taka allt með í reikninginn.
    Þjónusta kostar líka.

    Kveðja
    Halldór
    A-111





    23.06.2003 at 01:56 #474386
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Það er orðið vel smurt á þegar þú færð 2 og hálfa læsingu úti á verði einnar hérna heima. Það er ekki svona dýrt að koma þessu heim, og svo má ekki gleyma því að arctic trucks og benni eru ekki að versla á sama verði og við hinir.
    En svo verðum við að taka tillit til þess að þessar verslanir verða að kaupa í magni og liggja með þetta á lager um ókomin tíma. Við megum að sjálfsögðu ekki vera ósanngjarnir gagnvart þeim í öllu en það eru svona dæmi sem fær fólk til að skoða aðra möguleika eins og að kaupa frá USA á netinu. Og ég hvet fólk til þess svo að þessi fyrirtæki sjái að sér í álagningu, það er ekki svo mikið "vesen" að renna niður í tollafgreiðslu og borga dótið út.





    23.06.2003 at 09:45 #474388
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það vill svolítið loða við okkur Íslendinga þessi gamli kaupfélagsandi þar sem hagkvæmnin ræður ekki hvar menn versla heldur allskonar önnur sjónarmið. Víða úti á landi er rekinn áróður fyrir því að versla í heimabyggð til að styrkja verslunina þar (jafnvel þó verðmunurinn geri meira en dekka kostnað við að skreppa í næsta kaupstað) og raunar nákvæmlega sama sjónarmið sem Halldór er að setja fram.

    Við höfum þessa tvö möguleika, versla við söluaðilana hérna heima og þá líklega borga eitthvað meira, eða panta hlutina á lægra verði gegnum netið með þeim ókostum og þeirri áhættu sem því fylgir. Þetta eigum við bara að meta kalt út frá eigin skinni án þess að láta einhverja hollustu við söluaðilana ráða, hversu hliðhollir okkur sem þeir kunna að vera. Ef verðmunurinn er það mikill að okkur finnst hann réttlæta umstangið og áhættuna sem fylgir því að kaupa þetta í gegnum netið, þá gerum við það. Ef það verður mikið um það að menn fari þá leið dregur verulega úr sölu hjá fyrirtækjunum hérna heima og þá er annað hvort fyrir þau að lækka verðið þannig að þau verði samkeppnishæf eða að komast að þeirri niðurstöðu að það sé ekki rekstrargrundvöllur fyrir þessari starfsemi með samkeppnishæfu verði og loka sjoppunni. Þessi fyrirtæki er öll að reka fína þjónustu og veruleg þægindi að geta skroppið upp á Höfða eða inn á Nýbýlaveg eftir því sem mann vantar, en ef það er að kosta okkur meira en við erum tilbúin til að borga er engin ástæða til þrjóskast við það.

    Ég er samt ekkert viss um að verðmunurinn sé það mikill þegar upp er staðið að almennt taki því að kaupa hlutina beint. Það þarf allavega að reikna það dæmi alveg til enda og sitja svo uppi með töluvert drjúgan plús á endanum, ég þarf allavega að sjá fram á nokkuð góðan gróða til að standa í þessu. Gæti verið forvitnilegt að sjá raunhæf dæmi um það frá þeim sem hafa gert þetta. En sjálfsagt að halda þeim Lofti, Benna og Reyni á tánnum þannig að þeir geri örugglega allt til að hafa vöru á góðu verði fyrir okkur.

    Kv – Skúli H.





    23.06.2003 at 10:32 #474390
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þetta er spurning um hvað menn láta bjóða sér. Driflæasing sem er framleidd í Ástralíu kostar í smásölu undir 48 þúsundum í USA en 115 þúsund á Íslandi. Smásalinn í usa þarf að sjálfsögðu líka að greiða flutningskostnað og að standa undir kostnaði við ábyrgð og þjónustu.
    Samt er þessi verðmunur ekki mikill miðað við okrið á talstöðum, smásöluverð á Yaesu VHF
    radioamatör handstöð er um 8 þúsund í USA meðan verið er að bjóða slíkar stöðvar á um 40 þúsund hér. Þessar stöðvar eru framleddar í Japan, þannig að flutningskostnaður leggst að sjálfsögðu á þessar stöðvar í USA líka.
    Einu sinni voru ofurtollar á flesum vörum á Íslandi en það er ekki lengur. Nú er það ekkert náttúrulögmál að allt þurfi að vera margfalt dýrara á Íslandi, t.d. virðist vera hægt að kaupa t.d. tri-band GSM farsíma á mun betra verði á Íslandi en í USA.
    Fyrir síðustu jól var hægt að kaupa farmiða til USA á rúmar 20000 þúsund krónur, þannig að það er ekki mjög flókið að spara sér verulega peninga á svona græjum.





    23.06.2003 at 15:59 #474392
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Hef aðgang að fólki sem starfar við innflutning og bað það að fletta upp á hverskonar gjöld væru af innflutningi á talstöðvum. Þau fullyrtu að á þeim væru engin gjöld, en hinsvegar þyrfti leyfi (leyfisflokkur LPS) Fjarskiptastofnunar um hvort tækin uppfylltu CE – reglur og svo framvegis. Eina sem er greitt í tollinum er 24,5% VSK. Þau sögðu mér hinsvegar, að innflytjendur rafmagns- og rafeindatækja hér legðu á s.n. ábyrgðargjald vegna þeirra viðtæku ábyrgðar sem söluaðilar slíkra tækja hér þyrftu að sæta skv. lögum. Þetta gjald er hinsvegar ansi frjálslegt, satt aðs egja hefur hver innflytjandi frjálst val um hvernig hann reiknar það. Hugmyndin er sumsé sú, að þetta gjald myndi sjóð hjá innflytjandanum sem standi undir kostnaði við ábyrgð á gölluðum vörum. Reglur erlendra framleiðenda gagnvart dealers varðandi claims eru yfirleitt miklum mun þrengri en þær kvaðir, sem íslensk lög leggja innflytjendum á herðar. Hvort þetta nægir til að skýra muninn get ég ekki svarað, en þetta var mér sagt af fólki, sem er að vinna í þessu alla daga.
    kv.





    23.06.2003 at 20:39 #474394
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég er sammála Skúla að það er nauðsynlegt að sýna smá aðhald þeim sem eru í viðskiptum almennt og auðvitað er gáfulegast fyrir mann sjálfan að versla þar sem verðið er hagkvæmast og einnig er þetta allt undir manni sjálfum komið hvaða áhættu maður tekur í viðskiptum.
    En kaupfélagssjónarmiðin eiga líka rétt á sér. Hver man ekki eftir "kaupum Íslenskt" eða "verslum í heimabyggð" þetta er hugsað til að skapa atvinnu.
    Ég segi fyrir mig að ég versla gular ORA baunir frekar þó þær séu eitthvað dýrari bæði vegna þess að þær eru betri og ég tel mig vera að tryggja að Jón Jónsson sem er að vinna hjá ORA haldi frekar vinnunni sinni.
    En þetta er mismunandi hvernig fólk lítur á þessa hluti sem betur fer og sitt sýnist hverjum.
    En það sem ég hnaut um var hvernig þessu var slengt fram, Stebbi er ekki sá eini sem gerir þetta, að þessi lás kostaði bara 649$x gengi dagsins.
    Þetta hefur örugglega verið án skatts sem er um 9% úti.
    Það væri gaman ef einhver með þekkingu nenti að slá þessu fram með öllum kostnaði og þá ég við með öllum kostnaði.

    kveðja

    Halldór





    11.02.2004 at 21:38 #474396
    Profile photo of Guðni Grímsson
    Guðni Grímsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 120

    Veit einhver hvernig þetta mál stendur, í öllum bæklingum frá ARB síðan Okt 2003 er sagt að þessi læsing komi á markað seint á árinu 2003

    kv GG
    #3039





  • Author
    Replies
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.