Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › cummins
This topic contains 31 replies, has 1 voice, and was last updated by Stefán Stefánsson 19 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
02.02.2006 at 13:07 #197219
Anonymouség er með 2000árg af ram og er að fara að smíða í hann opið púst og er að spá hvað ég ætti að hafa rörið svert
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
02.02.2006 at 14:29 #541164
Ættir að finna einhverjar upplýsingar [url=http://www.turbodieselregister.com/forums/forumdisplay.php?s=&forumid=13:1qj72pi0][b:1qj72pi0]hér[/b:1qj72pi0][/url:1qj72pi0].
–
Bjarni G.
02.02.2006 at 14:53 #541166Sæll Bjarni, hvað vigtar svona Cummins græja?
-haffi
02.02.2006 at 14:58 #541168Rúmlega 500 kíló…
–
Bjarni G.
02.02.2006 at 15:06 #541170Er það bara vélin eða með kössum? 😛
-haffi
02.02.2006 at 16:19 #541172Bara vélin…
–
Bjarni G.
02.02.2006 at 18:12 #541174Það er alvöru járn í þessu dóti. Samanburður á stimpilstöngum úr 7.3 PowerStroke og cummins (5.9):
[img:124oa3lm]http://www.fordcummins.com/images/rodcomparison.jpg[/img:124oa3lm]
06.02.2006 at 17:57 #541176
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
en er ekki fordin v8
06.02.2006 at 18:32 #541178
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
þetta er smá munur enda er cummings vélin gerð fyrir báta
kv dóri hauks
06.02.2006 at 21:06 #541180er þessi þriðja stimpilstöng sem er ómerkt, þessi lengst til vinstri?
En jú, jú, Cummins er eins og margar góðar vélar til í ýmsum útgáfum og stærðum, m.a. til notkunar í bátum og skipum, þ.e. þá með sjókælingu og öllu sem því tilheyrir, og svo til hinna ýmsu iðnaðarnota. Þær eru í flutningabílum, herbílum, vinnuvélum og hvað veit ég. En alstaðar eru þær orðlagðar fyrir endingu og styrk.
06.02.2006 at 23:21 #541182Nú er 5.9L Cummins línu sexa ekki satt. Hver er þá ástæðan fyrir hallanum á legubakkanum? Halla þessar vélar eins og gamlar Peugeot vélar ?
06.02.2006 at 23:25 #541184
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég held að sú minnsta sé úr 6,5GM, það leiréttir mig einhver ef þetta er rangt.
ÓE
06.02.2006 at 23:39 #541186hún er lína 6 og hallar ekki
hef ekki skýringu á hallanum á bökkunum
07.02.2006 at 00:10 #541188Hef séð svipaðar stengur í Benz línuvélum. Líklega er stöngin og legusætið sterkara svona í laginu, en ekki eins og hinar sem eru á myndunum. Líklega tekur hún sprengislagið betur svona.
Hlynur
07.02.2006 at 00:31 #541190
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
hallin á samsetiningu stinpilstangarinnar er til að það sé hægt að draga stöngina í gegnum silinderinn stangarllegan er það sver að það þarf að skáskera stöngina til að koma þessu upp þetta er þekkt í skipabansanum.
07.02.2006 at 00:32 #541192Það að hafa sveifarbakkan svona er til styrkingar. þetta er margfalt öflugra byggingalag en t.d. stangirnar þarna við hliðina á. Allar krosshausvélar, til dæmis, eru með sama byggingarlag á stangarlegubökkum og myndin sýnir.
07.02.2006 at 00:52 #541194já ég er nú á sömu skoðun og þeir Hlynur og Ragnar.
þó svo ég hafi aldrey litið ofan í svona vél
Mundi
09.02.2006 at 16:59 #541196
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
þettað eru bara bestu dísilvélarnar
09.02.2006 at 18:42 #541198stimpilstangarinnar hjá Cummins er engöngu til að hægt sé að taka stimpilinnn upp úr slífinni. Hefur ekkert að gera með styrk.
Kveðja.
Elli.
09.02.2006 at 21:58 #541200Sæll Elías.
Ég get (því miður) ekki verið sammála um að þetta tiltekna byggingalag á stimpilstöng 5,9L Cummings vélarinnar hafi ekkért með styrk að gera.
Ég þekki svolítið til þessara véla, því þar sem ég var síðast vélstjóri þá voru tvær hjálparvélarnar af Cummings gerð. Ljósavélin var af B gerð 5,9L 12 ventla en stóra hjálparvélinn sem sá um háþrýstiolíukerfi skipsins var af C gerð og hún var sex strokka 8,3L og 12 ventla (allsvakalegt verkfæri það, mæli með henni í Pattan)Þetta byggingalag er einnig til að liðka fyrir stimpildrætti, rétt er það. Samskeyti bakkans og stangarinnar eru líka frábrugðin en það sést ekki á þessari ágætu mynd.
Það gefur nokkurnvegin auga leið að kraftarnir á boltana, sem festa bakkan og stöngina saman, verða alls ekki þeir sömu og á t.d. þeim stöngum sem sýndar eru þarna á myndini.
En einsog ég sagði ofar í þræðinum þá er þetta sama byggingalag og á stimpilstöngum stóra krosshausvéla, þar sem slaglengdin er kannski uppá 180cm til 220cm og þar yfir.Kveðja Ragnar Karl
10.02.2006 at 09:32 #541202
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
[img:io5dqgu7]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/4003/28208.jpg[/img:io5dqgu7]
Eru ekki samskeyti stangarlegubakkanna betur staðsett með tilliti til álags ef samskeytunum á stönginni er velt eins og gert er á t.d. Cummins 5,9L ? .
ÓE
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
