This topic contains 17 replies, has 1 voice, and was last updated by Benedikt Þorgeirsson 17 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
16.01.2007 at 20:16 #199411
Vantar einhvern sem tekur að sér að massa og bóna bílinn minn, eða veit um fyrirtæki sem getur tekið 44″ bíl í þrif.
kv Jón Þór 8214585 / jon62@internet.is -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
16.01.2007 at 20:24 #575906
eg held að esso geirsgötu komi honum inn
16.01.2007 at 20:48 #575908já þeir ættu að koma honum inn en þeir eru fljótlega að loka fljótlega svo betra að flýta sér
kv dabbi
17.01.2007 at 00:26 #575910Það er bónstöð í Vatnagörðum 16, farðu og talaðu við Sigga (eigandann) og segðu að þú sért í 4×4.
Ég hélt að hann væri með ALLA jeppa í bænum.
17.01.2007 at 08:45 #575912Sæll, við getum tekið svona stórann bíl og stærri ef útí það er farið.
Kv Benni úr Kópsson Bílaþrifum Hyrjarhöfða 4 110 RvK tímapantanir í síma 567-7676 eða 662-1000
17.01.2007 at 19:36 #575914Fór með bílinn í Bón og Þvott Vatnagörðum 16 og er hann eins og nýr fékk extreme bón og þrif á bílinn ég mæli hiklaust með þeim fljót og góð þjónusta
kv jþg
17.01.2007 at 20:30 #575916hlær í betri bíl frá bílasölu Guðfinns eða hvað-nú færðu kanski nýtt merki Nonni minn,á samt eftir að taka(bón)verkið út.
kv tt
19.01.2007 at 07:23 #575918Ég er svo forvitinn að ég verð að spyrja hvað það hafi kostað að láta bóna gripinn. Fékkstu 4×4 afslátt?
Kveðja,
Klemmi.
19.01.2007 at 12:51 #575920Einu sinni átti ég bíl og á honum var eitthvað sem menn kölluðu "lakkherðir". Þetta var það allsvakalegasta "bón" sem ég hef verið með á nokkrum bíl. Entist endalaust, tjöruleysir ekkert mál og gljáinn svakalegur.
Nú virðist enginn lengur vita hvað þetta er. Einhver sem þekkir þetta og hvar er hægt að fá svona ?
Kveðja,
JKK
19.01.2007 at 13:08 #575922Sæll Jóhann.
Efnið sem þú ert að tala um hefur gengið undir ýmsum nöfnum, helst þá Brimgljái, við erum með efni sem heitir Klear Seal og er sama hugmynd og Brimgljáinn, tveggja þátta efni sem við gefum ár í endingu.
Verð á stórum bílum 23.500-26.000,- hægt er að skoða verðið eittvhvað fyrir meðlimi klúbbsins.
Kv Benni úr Kópsson Bílaþrifum 567-7676
Og Klemenz verðin hjá okkur eru frá 10.090,- fyrir stóran Jeppa, þetta er miðast við Alþrif+teflon sem er 6 mánaða bón.
Og þar sem ég get ekki breytt titlinum í svari mínu þá heitir þetta Brimgljái ekki Brimmgljái
19.01.2007 at 13:38 #575924Strákar ég hef líka verið að flytja inn sambærilegt efni sem er 2-4 þátta fer eftir lakkinu á bílnum.
Venjulega dugar 2ja þátta efnið. Verðið á 2ja þátta er til 4×4 lima er 13.000.- Ástæðan fyrir að ég fór að flytja þetta inn sjálfur var sú að ég var búinn að prufa allt þetta dót hér heima með misgóðum árangri. Þetta efni sem ég er með kemur frá GEM og er mjög gott efni, alger skítur að vinna með en svínvirkar. Ending er gefin upp 5 ár þannig að hér heima má reikna með 10-16mánaða endingu.
Sjáið bara bílinn hjá TNT, skoðið lakkið hjá honum, það verður bara ekki fallegra…Efnið endist sennilega 15-25 umferðir (stórir brúsar beint úr verksmiðju, betra verð!)
Hafið bara samband ef þið viljið frekari uppl.
Benni
896 6001
ATH! þetta efni sem ég er með er alvöru Teflon ekki eitthvað bóndrasl með tefloni í!
19.01.2007 at 16:57 #575926Sæll Benedikt, ansi seluru alvuru Teflonið þitt ódýrt!! Svona miðað við að ferdesimeter af hreinu Tefloni kostar 600.000,- kr hingað komið, það er lítill teningur af tefloni og eina fyrirtæki í heiminum sem notar það er Nasa á geimflaugar sínar.
Það er einn aðili í öllum heiminum með einkaleyfi á Teflon og hann selur ferdisimeterinn á 600.000,- sem er svo þynnt út í mörg hundruð ef ekki þúsund lítra og það er Teflonið sem við þekkjum.Og svo er Teflon og Brimgljái ekki sami hluturinn.
En það er gott að þú ert dottinn inná gott efni en sama hversu gott það er þá ertu ekki með hreint Teflon væni.
19.01.2007 at 17:12 #575928En hvað með gamla mjallarbónið? er það ekki að virka? hef einu sinni notað svoleiðis og var það hrein martröð að ná því af en bíllinn var góður í tæpt ár. Hvað er í því? er hætt að selja það?
Ég fékk eitthvað mjallarhraðbón sem átti að bera yfir mjallarbónið þegar það var komið á bílinn svo það væri auðveldara að ná því af.
19.01.2007 at 19:39 #575930Sæll Magni
Nei gamla góða mjallarbónið er sellt t.d á Esso.
Varðandi þetta efni sem þú ert að tala um þá hafa menn verið að blanda saman Mjallarhraðbóninu og svo gömlu góðu mjöllinni.
Best er að vinna Mjallarbónið hlut fyrir hlut, þar að seigja, bera á eitt bretti og taka strax af, svo húdd og koll af kolli.
Ef menn bera á allan bílinn þá vill það gerast að menn týnast inní skúr í allt að viku!!
Fyrir einhverjum árum síðan kom eitthvað stelpugrey með bílinn sinn í Kópsson útataðann í Mjallarbóni og náði því ekki af
Við þurftum að vélarvinna bílinn með rokkum til að ná því af..
En hún hefur eflaust ekki bónað síðan þá 😉
19.01.2007 at 22:43 #575932gerði einmitt sömu mistök og stelpan í fyrsta skiptið sem ég bónaði með mjallarbóni… ég og félagi minn vorum heilt kvöld að rífa af bílnum með nýþvegnum handklæðum sem höfðu verið þvegin án mýkingarefnis (grjóthörð), þvílík vinna en húðin á bílnum var mögnuð eftir… en hef reyndar ekki bónað með mjöllinni síðan…
20.01.2007 at 11:59 #575934er nóg að bera annan umgangyfir það til að leysa það upp og nudda það svo af.
Það er algengur misskilningur að það sé betra að láta bónið þorna á bílnum það er allsekki hugmyndin með Mjallarbón. Eins og réttilega var bent á hér að ofan þá á að bera bónið á parta af bílnum í einu og þurrka af áður en þornar. Hugmyndin er að endurnýja rétt rakastig lakksins og láta fituna úr bóninnu nuddast inn til að láta áhrif fitunnar vinna til að fá réttan eðlilegan raka (moisture) í lakkið og hrinda frá H2O vatnsdropum.
Ég nota oftast Mjallarbón á mína bíla og líkar vel. Það er ódýrt og tekur ekki mikið meiri tíma en venjulegt letibón og hefur þau efni sem þarf til að viðhalda eiginleikum lakksins.
Ég held að það sé meira áríðandi að bóna og þvo bílinn oft (Þvo a.m.k. 1x viku & bóna 1x mán) heldur en að nota einhver iðnaðarbón fyrir tugi þúsunda.
20.01.2007 at 20:01 #575936"sukki" vertu ekki með þetta bull og þvaður þó þú hafir fundið fyrir "samkepni" Teflon er framleitt af DuPont og að því ég best veit þá eiga þeir þetta merki með húð og hár og fæst það bæði í vökva formi og duft formi. Vissulega er þetta ekki 100% teflon heldur þinnt út og kann ég ekki að fara með hlutföll né annað. Þú hefur greinilega ekki unnið "heimavinnuna" betur en þetta miðað við þessar fullirðingar þínar hér að ofan, eins ber að geta að ég sagði aldrei að það efni sem ég væri að bjóða væri óblandað Teflon… [img:9kjdvyg0]http://www2.dupont.com/Teflon_Industrial/en_US/assets/images/lia_logo_lg.gif[/img:9kjdvyg0]
20.01.2007 at 20:22 #575938Sæll nafni…
Ég held að það sé lítil samkeppni af kalli útí bæ með bón í brúsa, þú skrifaðir orðrétt :
"ATH! þetta efni sem ég er með er alvöru Teflon ekki eitthvað bóndrasl með tefloni í!"Ertu þá ekki að seigja að þú sért með hreint Teflon?
Eins skrifa ég að það er einn framleiðandi af þessu í heiminum sama og þú nefnir svo…..
Ertu nokkuð fullur?
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.