FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Common Rail í eldri vélar

by Ágúst Úlfar Sigurðsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Common Rail í eldri vélar

This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Helgi Þór Heiðarson Helgi Þór Heiðarson 20 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.03.2005 at 17:01 #195604
    Profile photo of Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Participant

    Sælir.

    Eftir lestur á greininni um „Nýju díselvélina“ í bílakálfi Moggans hefur hvarflað að mér hvort það sé raunhæfur kostur að breyta eldri díselvélum í Common Rail útfærslu til að gera þær umhverfisvænni og sparneytnari. Hefur nokkur séð breytingasett fyrir eldri gerðir díselvéla til að gera þær að Common Rail eða þarf e.t.v. miklu meira til en nýtt díselverk og spíssa?

    Ágúst

  • Creator
    Topic
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)
  • Author
    Replies
  • 06.03.2005 at 17:06 #518264
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Í framhaldi af línum wolf langar mig að bæta við fyrirspurn um það hvort geti verið að það þurfi öflugri stimpla í vél með svona eldsneytiskerfi. Einn náungi, sem þykist hafa vit á dieselvélum sagði mér þetta. En by the way, verður maður ekki að fara að endurskoða viðhorfið til dieselrokkanna ef olíuverðið fer í 112 pr. lítra þann 1.7. miðað við verðið í dag? (Svo er eftir að vita á hvaða róli eldsneytisverð verður á þeim tíma!)





    06.03.2005 at 17:14 #518266
    Profile photo of Guðmundur Magni Helgason
    Guðmundur Magni Helgason
    Participant
    • Umræður: 82
    • Svör: 767

    Er dísellinn ekki í ca. 45kr. í dag? ef svo er þá fer hann í 90 kr. 1.júli ekki 112.
    Það er búið að gefa það út að það leggist 45 kr. ofaná líterinn, stendur í tilkynningunni um breytinguna sem ég fékk sent heim.





    06.03.2005 at 18:30 #518268
    Profile photo of Vilhjálmur Arnórson
    Vilhjálmur Arnórson
    Member
    • Umræður: 23
    • Svör: 316

    Þetta er náttúrulega allt rafstýrt og programmerað eftir álagsskynjara, vinn mikið á traktor sem er með svona kerfi og þetta er stórskemmtilegt, sagður 110hp og skilar þeim vel (4 cyl.) miðað við margt annað, hann er reyndar alltaf dáldið lengi í gang, meðan kerfið er að ná sér upp en þetta er allgjör snilld, hef aldrei séð svartann reyk úr honum, og er þó oft látið reyna á togið neðst niðri, svo er snerill í mælaborðinu sem er hægt að nota til að stilla niður max rpm og þá getur maður haft handolíugjöfina í botni ef það er t.d. verið í verkefnum þar sem að þarf að halda ákveðnum snúning þó að það komi brekka eða einhver fyrirstaða, svo slær þetta sjálfkrafa af ef maður er að fara niður brekku eða ef álagið minnkar skyndilega, eini gallinn að mínu mati að þegar tölvunni finnst snúningurinn vera orðinn og lágur þá bara drepur hún á og það drepst frekar harkalega á mótornum, en þetta er að öðru leyti hin mesta snilld, en ekki reynir maður að fikta í þessu sjálfur ef þetta bilar eitthvað.





    06.03.2005 at 20:19 #518270
    Profile photo of Hafliði Jónsson
    Hafliði Jónsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 410

    Olíugjaldið er jú 45 kall, en svo bætist virðisaukaskattur ofan á það…..

    Heitir ekki lengur þungaskattur, heldur olíugjald. Flott trikk hjá skattmann til að skrapa innan úr veskinu okkar!





    07.03.2005 at 02:08 #518272
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    ég hef nú tekið eftir því að D4D vélarnar frá toyota eru með töluvert lægri þjöppu en gömlu 2L rokkarnir sem maður er vanur. Ekki veit ég hvað það á að fyrirstilla, en þetta gæti orðið vandamál ef menn ætla að breyta.

    svo er það annað með þessar 112 kr ykkar, hvering er það er ekki virðisaukaskattur á þessu í dag?

    45/1.245 = 36,1446 (núverandi verð án vsk)
    36,1446 + 45 = 81,1446 (verðandi verð án vsk)

    81,1446 * 1.245 = 101,025 kr (verðandi verð með vsk





    07.03.2005 at 08:25 #518274
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Ég er jafn forvitinn og Ágúst, er hægt að setja Common Rail kerfi í bíla með eldra olíuverki. Hvernig væri að halda umræðunni við upphafleg skrif, það er búið að ræða dísel-gjaldið marg oft í öðrum þráðum.

    Ef einhver veit eitthvað um Common Rail kefið, fyrir utan þessa 54 þræði sem eitthvað verða að fara, þá væri ánægjulegt að hann/hún mundi tjá sig hérna í þessu spjalli.

    kv. vals





    07.03.2005 at 13:42 #518276
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Það var nú spurt um þetta á fyrirlestrinum um daginn og svarið var að það væri ekkert mál að koma svona uniti fyrir á eldri vél. Eina vandamálið er að tölvuheilinn þarf að tengjast við heilan haug (einhver hundruð ef ég man rétt) af vírum sem liggja eitthvað (í allskonar skynjara þ.e.a.s.). Og það gerir þetta einfaldlega að vonlausu verki, (þ.e.a.s. þetta er ekki hægt). Þar fyrir utan þá þyrfti líklega að endurforrita heilann svo hann passaði fyrir viðkomandi vél.

    Gæti kannski verið hægt að setja common-rail á eldri vél sem framleiðandi hefur síðan sjálfur sett common-rail á, en þá væri líklega mun ódýra, einfaldara og betra að yngja bara upp bílinn…!

    kv
    Rúnar.





    07.03.2005 at 17:43 #518278
    Profile photo of Axel Sigurðsson
    Axel Sigurðsson
    Member
    • Umræður: 55
    • Svör: 1116

    það er alveg á tæru að þetta er ekki hægt að setja á eldri vélar nema að framleiðandinn hafi framleitt breytingakitt á bílinn sem ég hef ekki heyrt um ennþá, á bakvið hönnun á þessu kerfi í hverjum bíl liggja þúsundir vinnustunda við að finna út réttu spíssana á móti réttri forritun á tölvunni á móti þeim þ.e. tími á innspýtingu hve margar innspýtingar, magn eldsneytis og svo framvegis, sumar common rail vélar eru að spýta þrisvar sinnum inn eldsneyti í hverri sprengingu en flestar eru held ég að setja tvær innspýtingar í hverri sprengingu, þannig að ég held að þetta sé vonlaust verk…





    07.03.2005 at 22:12 #518280
    Profile photo of Helgi Þór Heiðarson
    Helgi Þór Heiðarson
    Member
    • Umræður: 11
    • Svör: 150

    Sælir

    Væri ekki heldur auðveldast að kaupa bara common rail vél með öllu og skella ofaní húddið?

    Bara hugmynd… :)

    Kveðja
    Helgi





  • Author
    Replies
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.