Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Chevy kassar
This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Lúther Gestsson 23 years ago.
-
CreatorTopic
-
05.03.2003 at 11:39 #192275
AnonymousVeit einhver hvaða gírkassa hægt er að nota við Chevy 350?
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
05.03.2003 at 13:08 #469994
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ertu að tala um beinskiptingu eða sjálfskiptingu? Því ef þig vantar ssk. þá geturðu troðið næstum hvaða skiptingu sem er.Plús það að það er til alveg endalaust mikið af þessum skiptingum. En hvað beinskiptingu varðar, þá er úrvalið töluvert minna. Og ég veit nú ekki betur en að þær séu barasta ekki nærri því jafnskemmtilegar í akstri. Ogreyndar líka óhentugri í utanvegaakstri.
Kveðja Andri.
05.03.2003 at 13:57 #469996
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
ég er að ath með beinsk. kassa
05.03.2003 at 14:57 #469998Á vef Novak Conversions eru m.a. upplýsingar um tengingar [url=http://www.novak-adapt.com/knowledge/chevy_small_block_v8.htm:14pbg436]gírkassa[/url:14pbg436] við Chevy Small Block V8. Það fjölbreyttir möguleikar.
-Einar
05.03.2003 at 17:45 #470000Sæll Brynjar,
ég á gírkassa úr Scout T-19 með millistykki og kúpligshúsi fyrir GM var með kassann við 350 og svo 6,5 mjög lár fyrsti gír og bakkgírinn enn lærri 4 gíra og allir sincrónaðir einnig er á þessu dana 20 millikassi. Allar legur eru nýjar i gírkassanum.
Kveðja Hjörtur og jakinn. 8951961.
05.03.2003 at 17:58 #470002Einu sinni sáu menn ekki sólina fyrir 5 gíra Benz kössum sem voru orginal við 314 vélina. (eins og er í 508 608 ofl)
Þetta eru sterkir kassar með mjög lágan 1 gír en það þarf að smíða milliplötu til að koma þessu saman.
Hlynur R2208
05.03.2003 at 18:27 #470004
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
TH 400 frá GM er vinsæl skipting, einnig ættir þú að skoða TH 700R-4 sem er sjálfskipting sem er með extra lágum fyrsta gír og líka overdrive fyrir highway driving. En það er hægt að láta í 700 skiptinguna B&M shifter kit sem gerir þér kleyft að skipta henni eins og um beinskiptingu væri að ræða. Svipað og nýjir bílar eru að koma með í dag, þannig ertu með bæði sjálfskiptingu og beinskiptingu í sama kassanum.
06.03.2003 at 14:40 #470006
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Takk fyrir þetta strákar, kemur að góðum notum. Getur síðasti ræðumaður útskýrt þennan sjálfskipta beinskiptibúnað nánar? Hljómar spennandi.
06.03.2003 at 17:06 #470008Sælir félagar.
Mig langar að segja ykkur frá búnaði sem ferðafélagi minn Bjarki Waage notaði með góðum árangri hér á árum áður.
Hann ók FORD F-250 extra cab. Í honum var 6,9 lítra vél með Bjarkasmíðaðri Scania Túrbínu (virkaði helvíti vel). Aftan á vélinni var original sjálfskipting og aftaná henni var svo 4 eða 500 kg. Fuller vörubíla gírkassi með einhver ósköp af gírum og innbyggðan þrefaldan loftskiptan millikassa. Það var nóg að gera að raða upp gírunum á þeim bænum. Þetta er eini bíllinn sem ég veit um sem sannarlega var alvöru- bæði beinskiptur og sjálfskiptur…
Ef ég man rétt var hann með 316 gíra áfram og eittvað um 20 afturábak og heildarniðurgírunin var áður óþekkt stærð… Þetta kallar maður LÓLÓ!
Ferðakveðja,
BÞV
06.03.2003 at 17:10 #470010Nei Björn er þetta ekki bara skrökvulýgi
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
