This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Benedikt Sigurgeirsson 15 years ago.
-
Topic
-
Sælir.
Ég á 4L Cherokee ´97. Í gær tókst mér af minni miklu snilld að keyra hann út í tjörn og festa þannig að farþega hliðin fór á kaf.
Þarna sat hann í klkkutíma þangað til að ég var dreginn upp úr.
Hann fór í gang og ég hafði hann í gangi allann daginn og smám saman fóru rúður að virka og samlæsing.
En fjarstýringin er dauð.
Tvö ljós komu svo á mælaborðinu. „AIRBAG“ og „CHECK ENGINE“. Ég tékkaði olíuna og hún er svört og fín. En þegar ég bakka upp að skúrnum við heimkomuna þá flæðir einhver bleik blanda undann bílnum. Virðist vera vatn og sjálfskiptivökva blanda og mér sínist hún koma þar sem skipting mætir vél.
Hann var líka mjög „harður“ í skiptingum á leiðinni í bæinn.Hvað á ég að gera. Skipta bara um vökva, eða er skiptingin ónít???
Hjálp óskast.
MBKV
Örn.
You must be logged in to reply to this topic.